Fréttablaðið - 23.10.2010, Side 96
60 23. október 2010 LAUGARDAGUR
HANDBOLTI Valsmenn þekkja ekki
margar langar taphrinur í hand-
boltanum enda eru þeir eitt allra
sigursælasta félag í sögu íslenska
handboltans. Það kemur því
kannski ekki á óvart að Valsliðið
hafi aldrei byrjað Íslandsmót jafn
illa og nú, en liðið situr á botni N1-
deildar karla og er eina stigalausa
liðið eftir fjórar umferðir.
Valsmenn töpuðu með 17 marka
mun fyrir nágrönnum sínum út
Safamýri í fyrrakvöld. Það er
ekki nóg með að þetta hafi verið
stærsta tap liðsins á Íslandsmóti
heldur var þetta fjórða tap Vals í
fjórum fyrstu leikjunum og það
hefur aldrei gerst síðan handbolta-
menn fóru að leika í löglegum sal
árið 1966.
Valsmenn töpuðu þremur fyrstu
leikjum sínum síðast fyrir þrem-
ur árum en tókst þá að gera jafn-
tefli á móti HK í Digranesi í fjórðu
umferðinni. Valsmenn unnu síðan
næstu þrjá leiki og enduðu að
lokum í 3. sæti í deildinni.
Valsliðið hafði tvisvar byrjað
jafn illa fyrir þessa slæmu byrj-
un fyrir þremur árum en liðið tap-
aði einnig þremur fyrstu leikjum
sínum 1968-69 og 1974-75. Valsliðið
endaði taphrinu sína 1968 með 17-
12 sigri á KR í fjórða leik sínum,
tapaði síðan aðeins 2 af síðustu 7
leikjum sínum og endaði í 4. sæti.
Sex árum síðar töpuðust einn-
ig þrír fyrstu leikirnir þrátt fyrir
að Valsliðinu hafi verið spáð mjög
góðu gengi fyrir tímabilið. Vals-
menn enduðu taphrinu sína
með 17-15 sigri á Gróttu, unnu
alls níu leiki í röð og enduðu
að lokum í 2. sæti á eftir Vík-
ingum, sem unnu þá sinn
fyrsta Íslandsmeistaratitil.
Á þessari upptalningu má
sjá að Valsliðinu hefur tekist
að hrista af sér þessar þrjár
verstu mar-
traðarbyrj-
anir fram
að þessari
sem liðið
glím-
ir við í
dag. Það
er samt
mikill
munur á
einu, Valsmenn töpuðu þessum
níu leikjum 1968, 1974 og 2007 með
samtals 25 mörkum en hafa tapað
fyrstu fjórum leikjum sínum í ár
með samtals 28 marka mun.
Júlíus Jónasson tók við Valslið-
inu fyrir tímabilið en það bjóst
enginn við því að þessi goðsögn af
Hlíðarenda stæði í þessum sporum
eftir fjóra leiki.
Það er ekki beint í karakter eins
besta varnamanns íslensks hand-
bolta en varnarleikur Valsmanna í
byrjun þessa tímabils hefur verið
hörmulegur. Liðið er búið að fá á
sig yfir 30 mörk í hverjum leik,
fékk á sig 20 mörk í báðum hálf-
leikjum á móti Fram og hefur feng-
ið á sig yfir tíu fleiri mörk að með-
altali í leik en á síðasta tímabili.
Það er ekki eins
og Valsmenn séu
búnir að klára
erfiðustu leik-
ina því fram
undan eru leik-
ir á móti topp-
liðum Akur-
eyrar og FH
sem hafa hvor-
ugt tapað leik.
ooj@frettabladid.is
Versta byrjun Valsmanna
Valsmenn eru í fyrsta sinn stigalausir eftir fyrstu fjóra leiki sína á Íslandsmóti
og í sárum eftir stærsta tap sitt frá upphafi á móti Fram í fyrrakvöld.
Flestir tapleikir Vals í
röð í upphafi tímabils
4 töp 2010-11
Valur-Haukar 26-30 tap
Selfoss-Valur 32-30 tap
Valur-HK 28-33 tap
Fram-Valur 40-23 tap
(Næsti leikur við Akureyri)
3 töp 1968-69
Valur-ÍR 23-28 tap
Haukar-Valur 19-17 tap
FH-Valur 18-16 tap
(Valur-KR 17-12 sigur)
3 töp 1974-75
Valur-Víkingur 17-19 tap
Haukar-Valur 20-18 tap
Fram-Valur 14-11 tap
(Valur-Grótta 17-15 sigur)
3 töp 2007-08
Valur-Haukar 20-23 tap
Stjarnan-Valur 27-22 tap
Valur-Afturelding 21-22 tap
(HK-Valur 24-24 jafntefli)
ÍSLAND–LETTLAND
Undankeppni EM 2012
Laugardalshöll
Miðv. 27.október
Klukkan 19.40
Miðasala á
A-landslið karla hefur leik
í undankeppni EM 2012 og
fyrstu andstæðingarnir eru
Lettar. Strákarnir okkar hafa
staðið sig frábærlega á síðustu
stórmótum og þurfa á þínum
stuðningi að halda til að
tryggja sér sæti á
EM í Serbíu.
Fjölmennum á völlinn og
styðjum strákana okkar!
Áfram Ísland!
M
ed
ia
G
ro
u
p
eh
f
|
A
u
g
lý
si
n
g
ar
|
H
S
Í
2
0
1
0
Akureyri – Haukar 25-19 (12-10)
Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 8/1 (11), Oddur Grétarsson 6/1 (11/2), Heimir
Örn Árnason 5 (8), Geir Guðmundsson 4 (10), Halldór Logi Árnason 2 (3).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 22/1 (41/4, 54%), Stefán U. Guðnason 0 (1/1, 0%).
Mörk Hauka (skot): Þórður Rafn Guðmundsson 5/3 (11/4), Freyr Brynjarsson 3 (6),
Björgvin Hólmgeirsson 3 (9), Heimir Óli Heimisson 2 (2), Gísli Jón Þórisson 2 (8),
Stefán Rafn Sigurmannsson 2 (9), Einar Örn Jónsson 1 (1), Tjörvi Þorgeirsson 1 (5).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundss. 10 (23/1, 43%), Aron R. Eðvarðss. 10 (22/1, 46%).
HANDBOLTI Frábær vörn og mögnuð
markvarsla Sveinbjarnar Péturs-
sonar lagði grunninn að öruggum
sex marka sigri Akureyrar á Hauk-
um, 25-19, í N1-deild karla í gær.
Þetta er fyrsti sigur Akureyrar á
Haukum á heimavelli síðan félagið
var stofnað árið 2006.
Halldór Ingólfsson sagði að það
ætti að vera veisla þegar Björg-
vin Hólmgeirsson væri tekinn
úr umferð, búið væri að æfa það
vel. Björgvin var í strangri gæslu
Odds allan leikinn og aðrir leik-
menn Hauka virðast hafa gleymt
öllu af æfingasvæðinu en sóknar-
leikur liðsins var afleitur. Liðið
tapaði mörgum boltum og skot
þess voru afleit. Mörg fóru
langt fram hjá eða yfir markið
en Sveinbjörn var frábær þess
utan. Hann varði yfir helm-
ing skotanna, 54%.
„Það á enginn að
vinna okkur þegar við
spilum þessa vörn og
með Bubba í stuði
í markinu,“ sagði
kampakátur Atli
Hilmarsson sem
var stoltur af sínum
mönnum. „Við höfum
spilað þrjá leiki á
einni viku og unnið
þá alla svo ég er
stoltur. Björgvin
er þeirra lang-
besti maður sóknarlega og við veðj-
uðum á réttan hest þar. Vörnin var
frábær og Bubbi sá um rest. Hefð-
um við nýtt færin okkar betur hefð-
um við unnið með meiri mun,“sagði
Atli.
„Helvítis morgunæfingarnar
í allt sumar klukkan 6 hjá Dino
(Dean Martin, innsk.) eru að skila
sér,“ sagði Heimir Örn brosandi en
hann stýrði sókn Akureyrar vel.
„Ég fann það eftir fimm mínútur
að við myndum vinna. Haukar voru
aldrei líklegir til að komast í gegn.
Sóknin okkar var léleg í seinni en
vörnin þeirra var góð. Karakterinn
og andinn sem við erum að sýna
er glæsilegur,“ sagði Heim-
ir en Haukamaðurinn Freyr
Brynjarsson var ekki jafn
sáttur.
„Þeir spiluðu mjög góða
vörn og komu okkur á
óvart með að spila 3-2-
1. Við eigum að vera
klárir í það þegar
Bjöggi er tekinn úr
umferð en við lent-
um í stökustu vand-
ræðum og það er
ekki hægt að bjóða
upp á 19 mörk skor-
uð. Við völdum vit-
laust í sókninni en
við eigum helling inni.
Við erum ekki enn komnir
í gang,“ sagði Freyr. - hþh
Akureyri vann fyrsta heimasigurinn á Haukum í sögunni:
Haukar aldrei líklegir