Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Side 18

Morgunn - 01.12.1942, Side 18
144 MO RG UNN ur með sjó, og var ferðinni heitið í ýmsar veiðistöðvar á norðanverðu Reykjanesi. Við fórum svo sem leið liggur og segir ekkert af ferðum okkar, fyrr en við komum suður á Stapa.. Suður Hraunin höfðum við rætt um reimleikann á Stapanum, en af mikilli góðvild og án þess að hall- mæla þeim, sem þar kynnu að ferðast um ósýnilegir. Ég sat í framsæti hjá bílstjóra, en sex sátu í aftur sætum. Er við komum upp á hástapann, sé ég að mað- ur gengur, eða öllu heldur líður áfram, móts við fram- hjól bílsins. Rétt um sama leyti verður mér litið á bíl- stjórann, og sé að honum líður ekki vel. Stýrishjólið riðar í höndum hans, og hann er eitthvað óstyrkur. Ég ávarpa hann þá nokkuð snöggt, og spyr hvað sé að. Hann segist ekki vita það, en segir að hann geti ekki stýrt bílnum. Ég bið hann blessaðan að hægja ferðina, — því hann ók nokkuð hratt. Hann gerir það samstundis, en um leið og hann hefir gert það, heyrast smellir og bíllinn fellur niður að framan og bílstjór- inn stöðvar hann á sama augabragði. Við hlaupum út sinn hvoru megin og sjáum, að sprung- ið er á báðum framhjólunum og vindlaust með öllu. Hér er ekkert að gera, nema bíða og bæta skemmd- irnar. — Fimm farþeganna ákveða strax að ganga áfram meðan aðgerðin færi fram, en ég varð eftir ásamt öðrum farþega. Bílstjórinn byrjar nú aðgerðir af kappi og ég reyni að hjálpa honum. Bílstjórinn spyr mig hvort ég hafi orðið nokkurs var, er fátið kom á hann við stýrið. Ég vafð að játa að svo hefði verið. Hann óskaði mjög eindregið að fá að vita hvað það hefði verið. Ég var mjög á báðum átt- um, vissi ekki nema hann yrði hræddur við það, ef við yrðum þarna á ferð um kvöldið í dimmu, sem útlit var íyrir að við myndum verða. Ég afréð þó að segja honum eins og var. Ég sagði honum nú hvað ég hefði séð, og lýsti manninum, svo

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.