Morgunn - 01.12.1942, Blaðsíða 35
MO RG UNN
161
Og vegna þess aö málefnið er svo mikilvægt, — mikilvægasta
niáliS, sem til er í heimi, sagði Gladstone, og margir djópvitrir and-
ans menn hafa tekið undir það, — þá þarf það að eignast sitt eigið
hús, helst dálitla höll, bæði til þess að starfið, sem unnið er fyrir
það, eigi sér fastan samastað og athvarf, og einnig til þess að
benda megi á það sem verðugt minnismerki, sem allir festa
auga á, um hið mikla og góða mál.
Með góðu trausti til félaga og vina.
I húsnefnd eru:
K riatinn Daníelsson, Bókhlöðustíg 9, form., GuSjjón Scemundsson,
húsameistari, Tjarnargötu 10C, Jón Jónsson frá Mörk, verkstjóri,
BræSraborgarstíg 8B, Málfríður Jónsdóttir, frú, Frakkastíg 14,
Siylivatur Brynjólf'sson, tollembættismaSur, Óðinsgötu 4, ritari,
Sigurjón Pétursson, kaupmaður, Þingholtsstræti 22A, Soffía M. Ól-
ufsdóttir, frú, Skólavörðustíg 19.
Plató
(■429—327 f. Kr.) er af mörgum talinn enn konungur
allra heimspekinga og hefir haft geisileg áhrif á heim^
speki og hugsun hins vestræna heims fram til þessa
dags. Hann hafði sömu skoðanir og hinn frægi læri-<
faðir hans, Sókrates, á sálinni og sambandi jarðneskra
manna við þá framliðnu. ,,Til eru — segir hann — dan
monar, andar, sem eru sálir framliðinna, og sérhver
maður hefir að förunaut sérstakan anda, sem er vernd'
ari hans og fylgir honum jarðlífið á enda. Þegar lík-
aminn deyr, tekur þessi verndarandi við sálunni og
fylgir henni á ákvörðunarstaðinn til hinnna eilífu aldin-i
garða. Guðdómurinn hefir ekkert beint samband við
mennina. Hvers konar samband milli guða og manna
annast daimonar, andar, hvor sem það samband gerist
í svefni manna eða vöru. Þeir eru íklæddir lofti, fara
gegn um himnana, dveljast ofar stjörnunum og búa á
jörðunni".
li