Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Page 66

Morgunn - 01.12.1942, Page 66
192 MO RG UNN mannanna og félagslífi. Um friðhelgi einkalífsins væri ekki lengur að ræða. Viðkvæmustu einkamál þeirra og leyndustu hugsanir yrðu að gómtömu munngæti á stræt- um og gatnamótum, helgustu tilfinningar þeirra að leik- hnöttum þvaðurs og rógmælgi. Lítill fengur myndi mönnum og reynast það, þótt „sjötta skilningarvitið" færði þeim hæfileika til að sjá út í heima ókominna tima. Slik víkkun á skynhæfileikum þeirra væri líkleg- ust til þess eins að valda kyri-stöðu og lömun í öllu at- hafnalifi þeirra, kvíða og ógnun við ægivald komandi örlaga, sem þeim væri um megn að breyta eða skjóta sér ondan. Vér þekkjum mörg dæmi þess úr daglegu lífi, þegar óttinn við hið ókomna sezt að í sál einstaklings- ins. Þekkið þér ekki öll einhver dæmi þess, hvernig kvíð- inn við hið ókomna gerir viljalíf mannanna stundum aflvana, lamar athafnaþrekið og brýtur mótstöðuaflið niður. Stundum veldur hugarástand þetta fullkominni uppgjöf. Einstaklingurinn leggur árar í bát, starir sljóf- um augum út í gráð'ð og bíður þess, er koma muni. Þessi mynd úr lífi einstaklingsins yrði að eins hópmynd úr lífi mannanna almennt séð, ef þeim væri unnt að reikna út örlög ókominna tíma með stærðfræðilegri nákvæmni. Þekking sú, sem menn hafa aflað sér við rannsóknir á skráðri sögu mannkynsins, líffræðilegri þróun tegund- anna, mannfræði og fornlífsfræði og íhugun á grund- vallarstaðreyndum í félagslegri og andlegri sambúð mannanna, hnígur að því, að gera tilgátuna um það, að þessir óvenjulegu skynhæfileikar nái um síðir festu og þróun í lífi framtíðarmannanna í búningi nýrra skiln- ingarvita æði ósennilega. Þetta er að eins sagt með til- liti til sannleikans, að eins vegna hans sjálfs. Eins og áður hefir verið tekið fram, þá virðist réttmætt að stað- hæfa, að slíkt væri ekki að eins ósennilegt, heldur og óhugsandi. „Það, sem um þetta hefir verið sagt, er enn ein viðbótarsönnun fyrir áðursögðum skoðunum mín- um“, segir próf Bozzano.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.