Morgunn - 01.12.1952, Qupperneq 66
144 MORGUNN
urn grun, frá hverjum væri verið að segja af vörum miðils-
ins.
Látna konan var eindreginn spíritisti, hafði um áraskeið
fylgt vel eftir starfi sálarrannsóknafélagsins, og verður þá
ekki skiljanlegt, að óðara og hún fékk ráðrúm til hafi
löngun hennar til þess vaknað, að koma að þessu miðils-
sambandi og gera þar vart við sig, og að þá hafi athygli
hennar óðara beinzt að vinkonu hennar, sem óvænt situr
þennan fund?
Annað er einnig næsta athyglisvert í þessu máli. Röddin
af vörum miðilsins segir frá því, að nýlátna konan sé enn
mjög óstyrk, þess vegna þurfi móðir hennar, látin fyrir
allmörgum árum, að styðja hana. Móður hennar er vel
og rétt lýst af vörum miðilsins, nafn hennar nefnt og bæj-
arnafnið. Ef gert er ráð fyrir þvi, að þarna hafi vitneskjan
um lát konunnar borizt sem fjarhrif langt að í vitund
hins sofandi miðils, er eftir að skýra hlutdeild látnu móður-
innar í þessu atviki.
Engum er Ijósara en þeim, sem mikla reynslu hafa af
miðlafyrirbrigðunum, hve geysilegum erfiðleikum það er
bundið, að ná ákjósanlegum sönnunum. Langflest af því,
sem fram kemur, sannar í rauninni ekkert, og vegna þess,
hve við mörgu er tekið dómgreindarlítið, verður hinum
efagjörnu erfiðara að trúa. Ekki að sjálfsögðu af því að
þeir vilji ekki sannfærast, heldur oft einfaldlega vegna
þess, hve vandlátir þeir eru sannleikans vegna.
Ég tek annað dæmi úr reynslu D. D. Home, mannsins,
sem ég hygg mestan miðil í sögu sálarrannsóknanna,
mannsins, sem var jafn frábær að sannleiksást — og stund-
um allt að því sannheilögu lífi — sem að stórfelldum miðils-
hæfileikum. Því miður gefur bókin um hann, sem út kom
í íslenzkri þýðingu fyrir fáum árum, næsta ófullkomna
mynd af honum sem miðli og þó einkum sem manni.
Fyrir réttri öld, árið 1852, kynntist Home Cheney-fjöl-
skyldunni, merku fólki vestur í Ameríku, sem upp frá