Fréttablaðið - 10.11.2010, Blaðsíða 10
10 10. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
N
B
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
LAUSNIR FYRIR HEIMILI | landsbankinn.is | 410 4000
Við tökum vel á móti þér um land allt.
Viðskiptavinum með lán hjá Landsbankanum standa til boða nokkrir
kostir til að lækka mánaðarlega greiðslubyrði sína til skemmri tíma.
Léttari greiðslur
- til skemmri tíma
Fastar greiðslur
· Greidd er föst fjárhæð af láninu í allt að 12 mánuði
· Fyrir þá sem eru með íbúða- eða fasteignalán
Frestun afborgana
· Einungis eru greiddir vextir af láni í allt að 12 mánuði
· Fyrir þá sem hafa orðið fyrir verulegri tekjuskerðingu eða ófyrirséðum
breytingum á aðstæðum
Frestun afborgana og vaxta
· Greiðslum af íbúða- eða fasteignalánum er frestað í allt að 12 mánuði
· Fyrir þá sem hafa orðið fyrir verulegri tekjuskerðingu eða ófyrirséðum
breytingum á aðstæðum
Lækkun yfirdráttar
· Skammtímaskuldir í formi yfirdráttar og kreditkortaskuldar eru
endurfjármagnaðar á hagstæðari kjörum
· Fyrir þá sem vilja losna við skammtímaskuldir
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
2
7
2
Ríkisstjórn kynnti í gær
verkefni til að örva atvinnu-
líf á Suðurnesjum. Til
greina kemur að flytja
Landhelgisgæsluna til
Keflavíkur og Þróunarfé-
lagið verður eflt. Ekkert
er ákveðið um stóriðju eða
einkasjúkrahús. Sveitar-
stjórnarfólk er ánægt með
samstarfsvilja stjórnar.
Mögulegt er að Landhelgisgæsl-
an verði flutt til Keflavíkurflug-
vallar á næstunni og Þróunarfé-
lag Keflavíkurflugvallar getur
stóraukið verkefni sín á næst-
unni. Þetta er meðal helstu atriða
sem ríkistjórnin kynnti á blaða-
mannafundi í Reykjanesbæ í gær.
Þar var rætt um hvernig bæta
mætti stöðu mála á Suðurnesjum.
Hagkvæmnisathugun á flutningi
Gæslunnar verður kynnt 1. febrú-
ar næstkomandi.
Þrátt fyrir að stjórnin gæfi lítið
út um stöðu ýmissa atvinnumála
sem hafa verið í umræðunni, svo
sem álver og kísilverksmiðju í
Helguvík, flugstarfsemi ECA
og nýtt einkarekið sjúkrahús að
Ásbrú, voru ráðherrar og sveit-
arstjórnarfólk jákvæð varðandi
framhaldið.
Aðgerðirnar voru samþykktar
á fundi ríkisstjórnar í gær en um
morguninn hafði stjórnin fundað
með fulltrúum sveitarstjórna.
Mikil ólga hefur verið á svæð-
inu undanfarið þar sem atvinnu-
leysi er hvergi meira en einmitt
þar. Heimamenn hafa því þrýst á
stjórnvöld að taka af skarið, sér-
staklega í atvinnumálum.
Meðal annarra verkefna sem
kynnt voru til sögunnar voru að
stofnað verður til samráðsvett-
vangs ríkisstjórnar og sveitarfé-
laga til að vinna að málum svæð-
i sins, stutt verði við klasaverkefni
á sviði líforku, sveitarfélögin hafi
með sér samstarf í félagsmálum
og umboðsmaður skuldara opni
útibú á Suðurnesjum. Þá verður
einnig stutt við menntunarverk-
efni á svæðinu.
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra sagði að dregin hefði
verið upp glögg mynd af stöðu
Suðurnesja.
„Staðan á þessu svæði er með
þeim hætti að atvinnumál þarf að
taka mjög föstum tökum,“ sagði
Jóhanna.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra tók undir þau orð
og boðaði meðal annars breytingu
á skattalögum til að greiða fyrir
framgangi gagnavers að Ásbrú og
auknum fjárveitingum til Þróun-
arfélags Keflavíkurflugvallar til
að flýta verklegum framkvæmd-
um við húsakost á svæðinu.
Steingrímur bætti því við að
þar myndi fjölgun starfa fyrst
koma í ljós. „Strax í vetur ætti
það að geta skilað störfum fyrir
iðnaðarmenn og fleiri.“
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, sagði í lok fundar
að hann væri ánægður með vilja
stjórnarinnar til að vinna með
sveitarfélögunum.
„Það er meira virði heldur en
að telja upp hversu mörg störf
komi út úr einstaka verkefnum á
þessari stundu. Við erum saman
á þessu skipi og erum vonandi að
róa í sömu átt.“
Boða aukna samvinnu í atvinnumálum
Á SAMA BÁTI Ríkisstjórnin kynnti í gær fjölmargar aðgerðir til hagsbóta fyrir Suðurnesjamenn. Meðal annars er íhugað að flytja
starfsemi Landhelgisgæslunnar til Keflavíkurflugvallar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Að myndaður verði formlegur samráðsvett-
vangur stjórnvalda ríkisins og sveitarfélaga
á svæðinu um atvinnu-, mennta- og
velferðarmál.
2. Að skoðaðir verði vandlega kostir þess að
flytja starfsemi Landhelgisgæslu Íslands á
öryggisvæðið við Keflavíkurflugvöll.
3. Að lagt verði fram frumvarp til laga um
breytingu á lögum um virðisaukaskatt
sem geri samkeppnisstöðu gagnavera hér
á landi samkeppnisfæra við gagnaver í
löndum innan ESB.
4. Að veita Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar
250 milljónir aukalega til að hraða fram-
kvæmdum og auka nú þegar möguleika til
frekari atvinnuuppbyggingar á þróunar-
svæðinu.
5. Að hrundið verði af stað kynningar- og
markaðsátaki á ónotuðum fasteignum
Þróunarfélagsins á varnarsvæðinu.
6. Að Þróunarfélaginu verði falið að setja á
stofn Hersetusafn á gamla varnarsvæðinu í
einu af fjölmörgum húsum félagsins.
7. Að unnið verði með starfshópi um
atvinnumál á Suðurnesjum sem iðnað-
arráðherra hefur skipað og ný verkefni
verði lögð fyrir starfshópinn sem rýnir þau
og metur. Jafnframt muni starfshópurinn
vinna nýjar tillögur í samstarfi við heima-
menn og leggja fyrir ráðherra og stofnanir.
8. Að stutt verði við verkefni sem Nýsköp-
unarmiðstöð hefur verið falið að hefja
undirbúning að um klasasamstarf á sviði
líforku sem tengist jarðvarmaverum á
Reykjanesi.
9. Að hámarkstímabil greiðslu bóta úr
Atvinnuleysistryggingasjóði verði lengt
tímabundið úr þremur árum í fjögur ár.
10. Ríkisstjórnin leggi fram fjármagn til að
ráðinn verði starfsmaður/verkefnisstjóri
sem haldi utan um formlegt samstarf sveit-
arfélaga um velferðarmál á Suðurnesjum.
11. Umboðsmaður skuldara fái aðstöðu á
Suðurnesjum og taki þar á móti fólki sem
þarf á þjónustu embættisins að halda. Til
að byrja með þarf að setja tvo starfsmenn
í verkið þar sem nauðungarsölur eru hlut-
fallslega mjög margar á Suðurnesjum m.a.
tífalt fleiri en á höfuðborgarsvæðinu.
12. Rekstrargrundvöllur menntastofnana á
Suðurnesjum verði tryggður og samstarf
þeirra styrkt með sérstakri fjárveitingu.
13. Fisktækniskóla Íslands verði tryggt eitt
stöðugildi.
Aðgerðir ríkisstjórnar fyrir Suðurnes
FRÉTTASKÝRING: Ríkisstjórnin kemur til móts við Suðurnesjamenn
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is