Fréttablaðið - 10.11.2010, Page 24
10. NÓVEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● bækur
Það er ekki öllum gefið að töfra fram dásemdir í
eldhúsinu. Sumir kunna ekki einu sinni að sjóða
egg! Sem betur fer má ýmislegt læra af góðum
bókum.
Bókin Þú getur eldað! er kjörin fyrir alla þá sem eru
að stíga sín fyrstu skref í matargerðarlistinni. Höf-
undur bókarinnar er Annabel Karmel sem hefur um
árabil skrifað um næringu og mataræði barna og hafa
bækur hennar komið út víða um heim en nú er fyrr-
greind bók komin út í þýðingu Nönnu Rögnvaldar-
dóttur.
„Þetta er mjög handhæg og sniðug bók fyrir alla
byrjendur,“ útskýrir Nanna. „Allar uppskriftirnar eru
þannig úr garði gerðar að krakkar geta eldað þær
sjálfir – þó að stundum geti verið gott að hafa ein-
hvern fullorðinn viðstaddan líka.“
Í bókinni eru skýrar leiðbeiningar með hverri upp-
skrift þar sem matreiðsluaðferðinni er lýst skref fyrir
skref. „Foreldrar vita stundum ekki hvað þeir geta
leyft krökkunum að gera í eldhúsinu, hvernig upp-
skriftir henta þeim, en í þessari bók eru alls konar
skemmtilegar hugmyndir fyrir krakka og
aðra byrjendur til að prófa í eldhúsinu,“
segir Nanna.
Í bókinni eru meðal annars leiðbeiningar
um hvernig sjóða skal egg, steikja pönnu-
kökur, baka brauð, útbúa pestó og pipar-
kökur og meira að segja uppskrift að æð-
islegum berjaís. Nanna bendir á að oft séu
krakkar viljugri að smakka það sem þeir
hafa sjálfir gert og þannig getur þeirra
eigin matseld hjálpað til við sigrast á mat-
vendni. Auk uppskriftanna og skýringar-
myndanna er líka að finna upplýsingasíð-
ur í bókinni sem auðveldar notendum hennar að
þekkja hráefnin og áhöldin sem notuð eru í eldhúsinu
sem og leiðbeiningar um hollt mataræði.
Í tilefni af útkomu bókarinnar efnir Eymundsson til
uppskriftasamkeppni fyrir áhugasama krakka. Þátt-
takendur á aldrinum 8-13 ára eru hvattir til að senda
inn uppskrift, ásamt ljósmynd af réttinum, á netfang-
ið eymundsson@eymundsson.is og eru vegleg verð-
laun í boði. Nánari upplýsingar um keppnina má finna
á heimasíðu Eymundsson.
„Allar uppskriftirnar eru þannig úr
garði gerðar að krakkar geta eldað þær
sjálfir,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir
sem þýðir bókina.
Í bókinni er að finna skýrar leiðbeiningar með hverri uppskrift þar sem matreiðsluaðferðinni er lýst skref fyrir skref.
Handboltahetjan Logi Geirsson er ekki
háaldraður maður. Hann er nýorðinn 28 ára
en á dögunum kom út bók sem ber undir-
titilinn „atvinnumannasaga Loga Geirsson-
ar“ og er líkast til fyrsta bindið í bókaflokki
um líf hans. Hann hefur í það minnsta komið
nógu víða við nú þegar til þess að fylla rúmar
250 síður af afar spennandi efni.
Henry Birgir Gunnarsson er höfundur
bókarinnar um Loga en í henni má meðal
annars lesa um bernskuár hans í Hafnar-
firðinum, hvernig hann vann sig út úr feimn-
inni og ákvað að verða atvinnumaður í hand-
bolta og síðan um sorgir hans og sigra bæði í
Þýskalandi og með íslenska handboltalandslið-
inu. Smáatvik í leik árið 2007 átti eftir að skipta
sköpum fyrir hann og leiðin niður af toppnum
var að sögn ísköld. Og Logi lætur allt flakka!
Hvort sem það eru spaugilegar frásagnir af
glæfraskap og partíum eða einlægar frásagn-
ir af því hvernig honum leið þegar hann fékk
fyrsta samninginn sinn eða þegar sonur hans
fæddist.
Bókin 10.10.10, sem kom út 10. október
síðastliðinn á afmælisdegi Loga, er afar opin-
ská og óvenjuleg þroskasaga sem á ekki síst er-
indi við ungt fólk, hvort sem það stundar íþrótt-
ir eða ekki. Boðskapur bókarinnar er ekki síst
sá gullvægi sannleikur að hugurinn beri mann
hálfa leið og með elju og vinnusemi geti allir
náð markmiðum sínum.
Bókin fyrir strák-
ana … og stelpurnar
Í bókinni má meðal annars lesa um bernskuár Loga í
Hafnarfirði, hvernig hann vann sig út úr feimninni og
ákvað að verða atvinnumaður í handbolta.
● Það er fagnaðarefni að nú
séu bækur um Múmínálfana fá-
anlegar aftur. Á dögunum var
bókin Halastjarnan endurútgef-
in en von er á kvikmynd byggðri
á þeirri sögu á
næsta ári. Sög-
urnar um fólk-
ið og furðuver-
urnar í Múm-
índalnum, eftir
finnska rit-
höfundinn og
myndskreyt-
inn Tove Jans-
son, hafa
hrifið les-
endur um allan heim og eru að-
dáendur sagnanna á öllum aldri.
Bækur Jansson um múmínálfana
komu fyrst út á íslensku fyrir fjór-
um áratugum í þýðingu Stein-
unnar Briem. Nýja bókin geym-
ir nákvæma endurgerð af útgáfu
Arnar og Örlygs á Halastjörnunni
frá 1971.
● Blaðasnápurinn Tinni er ekki
síður kær lesendum frá 7-77 ára.
Í vor var byrj-
að að endurút-
gefa mynda-
sögurnar ást-
sælu um
ævintýri hans
og hins orð-
ljóta Kolbeins
kafteins.
Nú eru
komnar út alls fjórar bækur:
Leyndardómar Einhyrningsins,
Skurðgoðið með skarð í eyra,
Fjársjóður Rögnvaldar rauða og
Krabbinn með gylltu klærnar.
Nýja útgáfan er í minna broti en
þær eldri og hefur sú nýbreytni
mælst misvel fyrir hjá hörðustu
aðdáendunum. Innihaldið stend-
ur þó ávallt fyrir sínu og það er
gaman að rifja upp kynnin af
Tinna!
● Aðdáendur myndasagnaflokks-
ins Goðheima eru ófáir en bækur
þær nutu gríð-
arlegra vin-
sælda hér á
landi á síð-
ari hluta síð-
ustu aldar og
má til sanns
vegar færa að
margir hafi
lært sína nor-
rænu goðafræði af þessum róm-
uðu bókum danska teiknarans
Peters Madsen. Nú hefur verið
ákveðið að endurútgefa seríuna
vinsælu, vegna fjölda áskorana og
er fyrsta bókin, Úlfurinn bundinn,
komin út en þar segir af ævintýr-
um þrumuguðsins Þórs.
● Strumparnir koma síðan öllum
í gott skap. Þessar litlu bláu verur,
sem eru í senn
afar krúttleg-
ar og uppá-
tækjasam-
ar, hafa tekið
sér bólfestu
í hérlendum
hjörtum og
nú eru loks-
ins komnar út nýjar bækur um
Strump ana, bæði lesbækur og
vinnubækur. Sögubækurnar fjalla
um Öðruvísistrump og Strympu
en þrautabækurnar tvær eru stút-
fullar af skemmtilegri dægradvöl.
En gætið ykkar þó, Kjartan galdra-
karl er aldrei langt undan!
NOTALEG NOSTALGÍA
Bókin Þú getur eldað inni-
heldur fjölda uppskrifa sem
henta krökkum og öðrum
sem eru að stíga sín fyrstu
skref í matargerðarlistinni.
Höfundurinn Annabel Karmel
hefur um árabil skrifað um
næringu og mataræði barna.
Vönduð matreiðslubók
fyrir börn og byrjendur