Fréttablaðið - 10.11.2010, Side 46
30 10. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
„Sýningin verður lokaviðburðurinn í viku Unglist-
ar, listahátíðar unga fólksins,“ segir María Niel-
sen, nemandi Tækniskólans í Reykjavík en hún er
einn af skipuleggjendum tískusýningar sem hald-
in verður í Tjarnarbíói á laugardaginn. Alls taka
33 nemendur á fataiðnbraut Tækniskólans þátt í
tískusýningunni og sýna þar hönnun sína og hæfni í
handverki.
„Við erum búin að vera að vinna að sýningunni
í allt haust,“ segir María og því ljóst að undirbún-
ingurinn er mikill. „Stelpur sem eru að læra förð-
un hjá Airbrush & Makeup School hjálpa okkur að
farða módelin og hárgreiðslunemar Tækniskólans
sjá um hárgreiðsluna. Svo fáum við líka nemendur á
ljósmyndabrautinni í skólanum til að taka myndir.“
Það er því ljóst að ansi margar deildir Tækniskólans
koma að sýningunni. Fyrirsæturnar sem sýna hönn-
unina eru allar þaulvanar og tóku flestar þeirra þátt
í Elite Models-fyrirsætukeppninni sem haldin var
á dögunum. „Þetta er í fyrsta skipti sem við fáum
alvöru módel til að vera með,“ segir María.
Spurð hvað hönnuðirnir ætli að sýna segir María
það vera misjafnt eftir hverjum og einum. „Sumir
nemendurnir eru að læra kjólasaum, aðrir klæð-
skerann og enn aðrir sérsaum, svo það verður hægt
að sjá ansi margt frá okkur. En ég get sagt það að
sýningin hefur aldrei verið jafn vegleg.“
Tískusýningin verður í Tjarnarbíói á laugardags-
kvöldið og hefst hún klukkan átta, en aðgangur er
ókeypis. -ka
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ég var svolítið svekktur með þá
og fannst þeir fara illa með mig.
Ég ákvað hins vegar að horfa
fram á veginn, segja upp vallar-
stjórastarfinu á Vodafone-vellin-
um og fara í skóla til að læra sjálf-
ur hvernig á að skrifa handrit,“
segir Gestur Valur Svansson leik-
stjóri. Tríó er heiti á nýrri gaman-
þáttaröð sem fer í sýningar eftir
áramót á RÚV en Gestur skrifar
bæði handritið að þeim og mun
leikstýra þáttunum. Gestur Valur
vakti mikla athygli fyrir þremur
árum þegar hann lýsti því í samtali
við Fréttablaðið að hann væri hug-
myndasmiður Næturvaktarinnar,
en nú er sá tími liðinn og Gestur
hyggst hasla sér völl í kvikmynda-
gerðinni sjálfur.
Gestur er þegar búinn að ráða
aðalleikara í þættina en það eru
þau Steinn Ármann Magnús-
son, Þórhallur Sverrisson, Berg-
ur Þór Ingólfsson og María Guð-
mundsdóttir og leikaraparið Tinna
Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson.
Þættirnir fjalla um nágrannaerjur
íbúa í þriggja íbúða raðhúsi. Þætt-
irnir verða teknir upp í Mosfells-
bæ en tökur hefjast í næstu viku.
Að sögn Gests Vals var hand-
ritið að Tríói tilbúið fyrir tveimur
árum en þá hrundi allt fjármála-
kerfið. „Ég lét því þýða tvo þætti
yfir á dönsku og sendi til Caspers
Christiansen,“ útskýrir Gestur en
Casper er annar af Klovn-tvíeyk-
inu. Þeir tveir hittust síðan í Los
Angeles þar sem Casper, að sögn
Gests, lýsti yfir mikilli ánægju
með handritið. „Hann útskýrði
fyrir okkur hvernig þeir hefðu
staðið að sínum málum, hvað þeir
hefðu átt lítinn pening og svo fram-
vegis og svo framvegis. Við ætlum
að gera þetta á svipaðan hátt og
þeir, taka þetta upp hratt og hrátt.“
GESTUR VALUR: VINNUR MEÐ ARNARI GUNNLAUGS OG CASPER ÚR KLOVN
Hætti sem vallarvörður og
ákvað að gera gamanþætti
Gestur bætir því við að samstarfi
hans og Caspers sé síður en svo
lokið, þeir ætli sér að skrifa hand-
rit að Hollywood-kvikmynd saman
og eru þegar búnir að leggja lín-
urnar fyrir það.
Framleiðslufyrirtækið Clear
River Production sér um fram-
leiðsluna á Tríói en Garðar á það
ásamt Arnari B. Gunnlaugssyni
sem kannski er þekktastur fyrir
afrek sín á knattspyrnuvellin-
um. „Ég hafði samband við hann
fyrir um ári síðan og eftir nokkur
fundarhöld lét hann slag standa.
Við höfum háleitar hugmyndir og
stefnum langt, ætlum alla leið til
Hollywood.“ freyrgigja@frettabladid.is
STJÖRNULIÐ
Gestur Valur Sveinsson segist
njóta aðstoðar Caspers Christi-
ansen, Klovn-stjörnu, við að
útfæra hugmynd að nýrri
gamanþáttarö sem verður sýnd
á RÚV eftir áramót. Arnar B.
Gunnlaugsson knattspyrnu-
kappi rekur framleiðslufyrir-
tækið Clear River Product-
ion ásamt Gesti Val
en það framleiðir
þættina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég eignaðist fyrirbura í fyrra
og mundi eftir því hvað það var
mikið vesen að fá húfu sem pass-
aði á hana,“ segir Hafdís Prisc illa
Magnúsdóttir, sem nýlega aug-
lýsti á samskiptasíðunni Face-
book að hún ætlaði að prjóna
fyrirburahúfur handa vökudeild
Barnaspítala Hringsins. „Ég vissi
að það vantaði húfur svo ég ætl-
aði bara sjálf að prjóna. Svo datt
mér í hug að auglýsa hjá vinum
mínum, hvort þeir myndu vilja
vera með mér í þessu og svo vatt
þetta bara upp á sig. Núna vilja
mörg hundruð manns prjóna
húfur,“ segir Hafdís, en hægt er
að finna prjónaviðburðinn á Face-
book og má hver sem er taka upp
prjónana og vera með.
Hafdís og maðurinn hennar
eignuðust dóttur í fyrra og ætla
að gera það að hefð að gera eitt-
hvað fyrir vökudeildina á afmæl-
isdegi stelpunnar og á jólunum.
„Á jólunum í fyrra komum við
með ótrúlega margar tertur fyrir
starfsfólk vökudeildarinnar. Núna
langaði okkur að gera eitthvað
sem myndi gagnast deildinni.“
Harpa segist ekki vera með
miklar kröfur varðandi húfurn-
ar, eina sem skiptir máli er að
garnið erti ekki. „Þær verða
að vera úr 100% bómull og að
þola 60 gráðu þvott. En það
má prjóna í öllum litum og
allar gerðir eru velkomnar.“
Hafdís segist ekki vita með vissu
hversu margar húfur hún muni
geta afhent en að hún sé virki-
lega ánægð með viðtökurnar.
„Það er bara byrjun nóvember
og ég stefni að því að afhenda á
aðfangadag. Svo vonandi get ég
komið með góðan poka handa
þeim, eða tvo,“ segir Hafdís. - ka
Hundruð prjóna
fyrir vökudeild
ÖFLUGAR MÆÐGUR Hugmyndin að
húfunum spratt upp þegar Hafdís
dvaldi á vökudeild Barnaspítalans með
nýfædda dóttur sína. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Kiljan er elítu-þáttur þar sem er
djúpt tekið á málunum og bækurn-
ar gagnrýndar. Þátturinn okkar
heitir Segðu mér frá bókinni þinni.
Hver rithöfundur hefur sex mínút-
ur til að segja frá verkinu sínu og
kynna sig,“ segir Ingvi Hrafn Jóns-
son, sjónvarpsstjóri ÍNN. Menning-
in sem umlykur yfirleitt aðdraganda
jólanna verður hafin til vegs og virð-
ingar á sjónvarpsstöðinni í nýjum
bókmenntaþætti á sunnudögum sem
verður stjórnað af fjölmiðlamannin-
um góðkunna, Sigurði G. Tómassyni.
Sigurður kveðst ætla að lesa bækur
rithöfundanna áður en hann tekur
viðtöl við þá. „Mér finnst það van-
virða við þá að gera það ekki,“ segir
hann í samtali við Fréttablaðið.
Ingvi, sem var sjálfur nýkominn
heim frá Ameríku þegar Fréttablað-
ið náði tali af honum, sagði augljós-
lega mikla eftirspurn eftir svona
þætti miðað við þau viðbrögð sem
þeir hefðu fengið. „Við sendum út
boð til áttatíu höfunda og ef allir
vilja mæta þá verðum bara að fjölga
þáttunum en þetta er bara okkar leið
til að koma til móts við okkar áhorf-
endur,“ segir Ingvi. Hann segir þætt-
ina ekki vera kostaða af bókaforlög-
unum en þau hafi hins vegar sýnt
þessu mikinn áhuga.
Þetta verður hins vegar ekki eina
menningartengda efnið sem er að
hefjast á dagskrá ÍNN. Því nýr
tónlistarþáttur lítur dagsins ljós á
fimmtudagskvöldum klukkan hálf
tíu. Þar munu íslenskir tónlistar-
menn og lagahöfundar fá tæki-
færi til að kynna sig og sína tón-
list. „Þátturinn heitir Rokk og
tja, tja, tja. En ég man ekki hvað
þáttastjórnandinn heitir, ég
hef ekki einu sinni hitt
hann enn þá.“ - fgg
NÝR MENNINGARVITI
Ingvi Hrafn hefur
fengið Sigurð G. Tóm-
asson til að stjórna
bókmenntaþætti
á ÍNN sem hefur
göngu sína á
sunnudaginn.
„Mér finnst Serrano voða gott.
Ég fæ mér taílenskan burrito. Ég
er mjög fastheldin á það og þori
aldrei að skipta um.“
Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, Evrópu-
meistari í fimleikum.
FATAHÖNNUÐIR FRAMTÍÐARINNAR Helga Jóakimsdóttir, Elísa-
bet Maren Guðjónsdóttir, María Nielsen og Björg Gunnarsdótt-
ir munu allar sýna hönnun sína á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Töff tískusýning í Tjarnarbíói
Hrafninn hefur menninguna til flugs
ÆÐRI ÖÐRUM
L Ö G U M
Stjórnarskrá
lýðveldisins
Íslands er nú
fáanleg í kilju.
Rit sem allir
Íslendingar
ættu að þekkja.