Fréttablaðið - 18.11.2010, Qupperneq 8
18. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Fjarar undan evrunni?
Evrópulönd sem hafa evru sem
gjaldmiðil sendu í vikunni frá sér
yfirlýsingu vegna stöðu Írlands og
áréttuðu vilja sinn til að styðja við
landið í skuldavanda þess, allt til
að tryggja fjármálastöðugleika í
evrulöndunum.
Umræðan hefur um margt
verið á þá lund í vikunni að veru-
lega halli á evruna. Þannig sagði
Herman Van Rompuy, forseti leið-
togaráðs Evrópusambandsins, á
mánudag að evrulöndin yrðu að
vera samstíga ætti evrusvæðið að
lifa af. Á Írlandi hefur umræðan
svo verið á þá lund að evran kunni
jafnvel að vera að líða undir lok.
Gylfi Zoëga, prófessor í hag-
fræði við Háskóla Íslands, telur
þó vand séð að evran sé í miklum
vandræðum þótt einstök lönd lendi
í vandræðum með bankakerfi
sín. Bankavandamálin séu erfið
viðureignar en evran virki fremur
sem vörn fyrir hagkerfi þeirra
við þessar aðstæður en sjálfstætt
vandamál. „Ef hún veikist þá er
það gott fyrir allar evruþjóðirnar,“
segir hann og bendir á að veikari
evra komi til með að efla útflutn-
ingsgreinar í
skuldsettum
evrulöndum
og hjálpa til
við efnahags-
bata þar.
Áhugavert
verður, að mati
Gylfa, að bera
saman hvernig
Ís l a nd i og
Írlandi reiðir
af þegar fram
í sækir. Staða
Íra sé þó betri
að því leyti að
skuldir þeirra
séu ekki verð-
tryggðar eins
og hér og auk-
ist því ekki við
veikingu gjald-
miðilsins. Um
leið sé Írland útflutningsland sem
myndi græða mikið á veikingu
evrunnar. „En við erum náttúru-
auðlindaland sem lítið tekur við
sér utan að ferðamönnum fjölgar
kannski aðeins.“
Bankavandamál Íra og raunar
Spánverja segir Gylfi eiga upp-
runa sinn í sprunginni fasteigna-
bólu, en vandkvæði Grikklands séu
af allt öðrum toga. „Grikkland er
með ríkisgeira sem ekki er í lagi,“
segir hann og telur að velta megi
því fyrir sér hvort þessi vandræði
komi gjaldmiðlinum yfirhöfuð við.
„Ef Írar væru með sjálfstæðan
gjaldmiðil væru þeir komnir okkar
leið. Þeir hefðu ekki getað bjarg-
að sínu myntkerfi,“ segir Gylfi og
bendir á að umræðan á vettvangi
Evrópusam-
bandsins nú
sýni að Írar hafi
bakhjarl í sínum
efnahagsvand-
ræðum. „Og það
er gott, en svo
leiðir reynslan
bara í ljós hver
verður betur
staddur, við eða
þeir.“
Eiríkur Bergmann, dósent og for-
stöðumaður Evrópufræða seturs,
segir vanda evrusvæðisins hafa
legið fyrir frá upphafi. „Hann felst
einkum og sér í lagi í því að þarna
er skilið á milli fjármála stjórnunar
ríkja og peningamála stjórnunar.
Menn vissu að þetta myndi leiða
til vandræða,“ segir hann en
kveður aðildarríki myntbanda-
lagsins ekki hafa verið til búin að
framselja yfirstjórnunar vald í
ríkis fjármálum til sameigin legrar
yfirstjórnar þegar til þess var
stofnað. Efnahagsþrengingar þær
sem gengið hafa yfir heiminn hafi
leitt þessar brotalamir enn fremur
í ljós, segir Eiríkur. Hástemmdar
yfirlýsingar ráðamanna Evrópu-
sambandsins um vanda skuldsettra
evruríkja séu tilraun til að beita
þau agavaldi sem ekki fékkst með
evrunni á sínum tíma.
„Menn vita að til að halda úti
gjaldmiðli innan sextán ólíkra
ríkja þá þarf meiri samstillingu
í ríkisfjármálum en farið var af
stað með,“ segir hann og vísar
til hugmynda Angelu Merkel,
kanslara Þýskalands, um að taka
upp heimild til að beita ríki sekt-
um sem missi tök á ríkisfjármálum
sínum. „Inn í þessa kröfu eru menn
nú að tala. Þetta þýðir ekki í alvöru
að menn séu að tala um að taka á
ný upp gömlu ríkisgjaldmiðlana,“
segir Eiríkur, en útilokar ekki að
þróunin gæti leitt til þess að ríkj-
um sem ekki séu tilbúin að gangast
undir aukið boð vald sambandsins
í ríkis fjármálum verði hent út úr
evrusvæðinu. „En ansi margt þarf
að ganga á til að það gæti gerst.“
olikr@frettabladid.is
GYLFI ZOËGA
Í DYFLINNI Fáni Evrópusambandsins (ESB) speglast í rúðu í Dyflinni á Írlandi. Fjár-
málaráðherrar evruríkja ræddu í vikunni leiðir til að koma í veg fyrir að skuldavandi
Íra hefði margfeldisáhrif á önnur skuldsett evrulönd. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Yfirlýsingagleði sýnir
vanda evruríkjanna
Veiking evrunnar hjálpar skuldsettum evrulöndum með því að bæta skilyrði
fyrir útflutningsgreinar þeirra. Orðræða um að skuldsett evrulönd ógni evru-
svæðinu og ESB endurspeglar viðleitni til að auka stjórn ESB á fjármálum ríkja.
Ef Írar væru
með sjálf-
stæðan gjald-
miðil væru
þeir komnir
okkar leið.
Þeir hefðu
ekki getað
bjargað sínu
myntkerfi.
GYLFI ZOËGA
HAGFRÆÐI-
PRÓFESSOR
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið
Kjarngóð næring
Ósaltað
Ósykrað
Engin aukaefni
www.barnamatur.is
Lífrænn
barnamatu
r
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Spil og jóladagatöl með þínum myndum.
Hannaðu þín
eigin spil eða
jóladagatal
á oddi.is
og fl.
ÍTALÍA, AP Margt bendir til að stjórn-
málaferill Silvio Berlusconi sé á síð-
asta snúningi, þótt hann hafi hingað
til staðið af sér alla erfiðleika.
Í desember verða greidd atkvæði
á þjóðþingi Ítalíu um vantrausts-
tillögu á hendur Berlusconi. Hann
hefur ekki lengur öruggan meiri-
hluta á þinginu því fyrrverandi
bandamaður hans, Gianfranco Fini,
hefur sagt skilið við stjórnina ásamt
fjórum ráðherrum úr flokki sínum,
sem heitir Framtíð og frelsi.
Fini, sem er forseti neðri deildar
þingsins, hefur hvatt Berlusconi til
að segja af sér og stóð á mánudag-
inn við hótanir sínar um að segja sig
frá stjórnarsamstarfinu.
Verði vantraust samþykkt verður
boðað til þingkosninga. Vinsældir
Berlusconis hafa dalað undanfarið
en hann segist sannfærður um gott
gengi í kosningabaráttunni.
Sama dag og vantrauststillagan
kemur til atkvæða á þinginu, 14.
desember, tekur stjórnarskrárdóm-
stóll landsins til meðferðar umdeild
lög, sem Berlusconi fékk samþykkt
á þingi til þess að losna tímabundið
undan réttarhöldum vegna spilling-
armála og skattsvika. Samkvæmt
lögunum má fresta slíkum málum
ef sakborningar gegna embætt-
um sem þeir hafa verið kosnir til.
Margir telja lögin brjóta í bága við
stjórnar skrá landsins. - gb
Örlög Silvio Berlusconi ráðast á tveimur vígstöðvum um miðjan næsta mánuð:
Borinn undir þing og dómara
FYRRVERANDI SAMHERJAR Berlusconi
og Fini á góðri stund. NORDICPHOTOS/AFP