Fréttablaðið - 10.02.2011, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 10. febrúar 2011 19
Heimurinn tók andköf, þegar herforingjar hrifsuðu til
sín völdin í Grikklandi vorið
1967. Hvernig gat annað eins
og þetta gerzt í vöggu lýðræðis-
ins? Grikkir höfðu að vísu ekki
alveg óflekkaðan lýðræðis feril,
en þeir höfðu búið við lýðræði í
meira en hundrað ár, allar götur
frá 1864, þegar ný stjórnar-
skrá var leidd í lög og allir full-
tíða grískir karlmenn fengu
kosninga rétt. Lýðræði var þó
lagt til hliðar árin 1915-25 og
1936-43; heimsstyrjaldirnar
tvær tóku sinn toll. Grísku her-
foringjarnir tóku völdin, sögðu
þeir, til að koma í veg fyrir
valdatöku kommúnista, en þeir
lögðu aldrei fram nein haldbær
gögn máli sínu til stuðnings.
Valdaránið sjálft kostaði engar
blóðsúthellingar, en herinn
gerði sig síðar sekan um pynt-
ingar og morð. Ríkisstjórn her-
foringjanna var óhæf, spillt og
einangruð. Þegar þeir hrökkl-
uðust frá völdum sumarið 1974,
gerðist það einnig án blóðs-
úthellinga. Lýðræði komst aftur
á. Grikkland var komið heim.
Makleg málagjöld
Sjö ára valdatíð herforingja-
klíkunnar hafði kallað van-
sæmd yfir Grikkland og rekið
fleyg milli Grikkja og náinna
bandamanna þeirra. Hvernig
skyldi bregðast við því? Átti
þjóðin að fyrirgefa og gleyma?
Það gat hún ekki gert með
góðu móti, því að fyrirgefning
útheimtir iðrun, og herforingj-
arnir voru forherðingin upp-
máluð. Málið var leitt til lykta
í gríska þinginu að loknum lýð-
ræðislegum kosningum haustið
1974. Herforingjarnir og
nokkrir undirsátar þeirra voru
dregnir fyrir dóm. Réttarhald
var nauðsynlegur liður í hrein-
gerningunni eftir sjö ára niður-
lægingu grísku þjóðarinnar
og var talið nauðsynlegt til að
draga úr líkum þess, að sagan
endurtæki sig. Auðvitað höfðu
herforingjarnir brotið lög. Þeim
reyndist engin stoð í neyðar-
lögum, sem þeir höfðu sjálfir
sett til að firra sig ábyrgð
á brotum gegn eldri lögum.
Þessir menn þurftu að fá mak-
leg málagjöld, svo að herinn
mætti skilja, hvað biði þeirra,
sem létu sér koma til hugar að
reyna að ræna völdum síðar.
Valdaræningjarnir fengu
þunga dóma 1975. Þrír voru
dæmdir til dauða, einn fékk
lífstíðar fangelsi, sjö voru
dæmdir í fimm til tuttugu ára
fangelsi og tveir voru sýknaðir.
Dauðadómunum var síðan
breytt í lífstíðar fangelsi. Að
auki voru átta menn dæmdir
fyrir að bera ábyrgð á að
berja niður mótmæli gegn
herforingja stjórninni 1973, þar
sem 24 mótmælendur týndu
lífi. Dómarnir í því máli náðu
frá 25 ára fangelsi upp í sjö-
falt lífstíðarfangelsi. Loks var
réttað sérstaklega yfir pyntinga-
meisturum hersins. Nokkrir
þeirra fengu fjögurra til sjö
ára fangelsisdóma öðrum til
viðvörunar. Því má bæta við,
að George W. Bush, fyrrum
Bandaríkjaforseti, hætti nú í
vikunni við að fara til Sviss
af ótta við að vera handtekinn
þar fyrir að bera ábyrgð á
pyntingum á föngum í haldi
Bandaríkjahers. Lögin ná nú
yfir landamæri.
Fangaverðir hafa vitnað
um samskiptasiði grísku her-
foringjanna innan fangelsis-
múranna. Þeir ávörpuðu hver
annan með miklum virktum:
Má ég bjóða yður meira kaffi,
herra forseti? Má ég biðja ráð-
herrann að gera svo vel að rétta
mér sápuna? Höfuðpaurinn
kaus að snæða kvöldverðinn
einsamall. Ólíkt öðrum föngum
voru herforingjarnir geymdir
í loftkældum klefum og höfðu
aðgang að sjónvarpi og tennis-
völlum. Ríkisstjórnin hugðist
náða herforingjana 1990, en
hún hvarf frá þeirri fyrirætlan
vegna harðra mótmæla, meðal
annars úr röðum íhaldsmanna,
jafnaðarmanna og kommúnista.
Tveim var sleppt vegna heilsu-
brests, nokkrir dóu í fangelsinu,
einn lifir enn.
Uppreisn Araba
Hvers vegna rifja ég þetta
upp núna? Ein ástæðan er, að
Arabar hafa nú loksins risið upp
gegn kúgurum sínum. Neistinn,
sem kveikti bálið, var trúlega
hækkun matar verðs vegna
loftslags breytinga, sem leiddu
af sér hitabylgju og uppskeru-
brest í Rússlandi í fyrra. Fyrst
var forseti Túnis hrakinn burt,
og flokkur hans, sem hafði áður
öll ráð í hendi sér, var leystur
upp og bannaður með lögum.
Nú er eftir að ná þýfinu af
forsetanum og fjölskyldu hans.
Næst kom röðin að Egypta-
landi. Þar hefur Múbarak for-
seti ásamt fjölskyldu og vinum
auðgazt ótæpilega í 30 ára
valdatíð hans. Þegar stjórnmála-
menn auðgast, gera þeir það
næstum aldrei innan ramma
laganna. Múbarak forseti þráast
við að víkja til að vernda völd
sín og auð. Margt bendir til, að
böndin hljóti einnig að berast
að Alsír. Ég var þar um daginn.
Þar er næstum ekkert eins og
það á að vera. Yfirmenn hersins
hafa alla þræði í hendi sér og þá
um leið olíuauðinn, sem á þó að
heita þjóðareign. Lög landsins
leyfa vafalaust, að þeim sé
stungið inn fyrir spillingu. Það
yrði öðrum til viðvörunar. Vilji
er allt sem þarf.
Þeir ávörpuðu hver annan með miklum
virktum: Má ég bjóða yður meira kaffi,
herra forseti?
Þorvaldur Gylfason
Prófessor
Í DAG
Hvað gerðu Grikkir? AF NETINUHótfyndni og dass af
hroka
Ég sé að Egill Helgason, þátta-
stjórnandi og Jónas Kristjánsson,
fyrrverandi ritstjóri, hafa tekið til
sín umfjöllun mína um snillinga
ársins í síðasta Pressupistli
mínum. Og það með réttu. Friðrik
Þór Guðmundsson, blaðamaður,
virðist einnig hafa gert það, en
hann var þó ekki einn af snilling-
unum í mínum huga. [...] Þessir
ágætu menn saka mig um skæt-
ing og hótfyndni í pistli mínum
og hafa þeir örlítið til síns máls.
Samt hljóma ásakanir þessara
manna um skæting og hótfyndni
mína ekki ósvipað og skammir
strætisróna yfir því að aðrir skuli
fá sér í staupinu annað slagið. Ég
viðurkenni að spara eigi skæting
og hótfyndni í þjóðmálaumræð-
unni en stundum er það nauðsyn-
legt til að sýna fram á fáránleika
umræðunnar. Jafnvel þarf
stundum „dass” af hroka með.[...]
Snillingar réttlætisins hefðu ekkert
nema gott af því að kynna sér
hvernig réttarfar þróast í ríkjum,
sem sogast inn í óskapnað
pólitískra hugmyndakerfa, sem
telja sig bjóða meira og ríkulegra
réttlæti, en hið klassíska réttarríki,
sem Vesturlönd hafa þróað, getur
veitt.
Blaðamaðurinn, þáttastjórnand-
inn og ritstjórinn hafa aðgang
að nokkrum stærstu fjölmiðlum
landsins og því áhrifamiklir í
umræðunni. Þessir menn boða
menningarbyltingu og líkt og í
öllum slíkum byltingum þarf að
knésetja sjálfstæða dómstóla.
Ég mun berjast gegn öllum slíkum
hugmyndum.
Pressan.is
Brynjar Níelsson
Lambakjötveisla
SPOT er einn glæsilegasti veitinga- og skemmtistaður landsins og býður nú upp á lambakjötveislu frá föstud. til sunnud.
Boðið er upp heilt læri eða hrygg með öllu meðlæti fyrir 4-eða fleiri á aðeins 2.500 kr. á manninn.
Kynntu þér nýjan og glæsilegan matseðil á spot.is
Hringdu og pantaðu í síma 544 4040 og við útbúum fyrir þig dýrindismáltíð.*
Spot Bæjarlind 6, Kópavogi | Sími: 544 4040 | spot@spot.is | www.spot.is
*Ath! Panta þarf með minnst þriggja tíma fyrirvara og að lágmarki fyrir 4.
NÝ
JU
NG
Á
ÍS
LA
ND
I