Fréttablaðið - 03.11.2010, Page 2
2 3. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á
Akureyri hefur höfðað opinbert
mál fyrir Héraðsdómi Norður-
lands eystra á hendur konu á sjö-
tugsaldri fyrir að hafa látið hend-
ur skipta vegna flökkugjarnra
hænsna og ferða þeirra.
Konunni, sem ákærð hefur
verið, er gefin að sök líkamsárás
og hótanir. Hún er sökuð um að
hafa laugardaginn 29. maí 2010,
í garði við Aðalstræti á Akur-
eyri, hótað því að drepa hænur
annarrar konu. Hænurnar höfðu
strokið yfir í garð ákærðu kon-
unnar. Henni er síðan gefið að
sök að hafa ráðist að hænsna-
eigandanum, slegið til hennar
með neti sem hún var með til að
fanga hænurnar, rifið bol sem
hún var í, rifið í hár hennar og
togað fast í og síðan slegið hana
ítrekað í andlitið beggja megin.
Afleiðingar árásarinnar fyrir
hænsnaeigandann urðu þær að
hún hlaut roða á vinstra eyra og
sár og blóðtaum við hljóðhimn-
una og eymsli á hálsinum vinstra
megin.
Hænsnaeigandinn sem er
nokkru yngri en árásarkonan,
eða á sextugsaldri, gerir bóta-
kröfu á hendur henni upp á rúm-
lega 433 þúsund krónur. - jss
Líkamsárás vegna hænsnastríðs á Akureyri fyrir héraðsdóm:
Hótaði strokuhænum lífláti
STROKUHÆNUR Hænurnar vissu ekki hversu alvarlegar afleiðingar flakkið í þeim
hafði.
TURNINN Á LÆKJARTORGI Kominn á
sinn stað og bíður eftir leigjanda.
SKIPULAGSMÁL Um helmingur
af ellefu tilboðum sem bárust
í rekstur Turnsins á Lækjar-
torgi reyndist ekki uppfylla skil-
mála útboðs framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar.
Að sögn Óla Jóns Hertervig hjá
framkvæmdasviðinu ætluðu þess-
ir tilboðsgjafar að vera með veit-
ingasölu en slíkt er ekki mögulegt
í Turninum. Óli segir að enn eigi
eftir að fara nákvæmlega yfir til-
boðin en ljóst sé að þeirra á meðal
séu tilboð sem uppfylli skilmála
um menningartengda starfsemi.
Kveðst hann búast við að lokið
verði við að fara yfir tilboðin um
næstu helgi. - gar
Engin veitingasala í Turninum:
Mörg tilboð
eru strax úr leik
MENNING Sóknarnefnd Þingvalla-
sóknar er nú að láta endurnýja
hleðslur í kring um kirkjugarð-
inn á Þingvöllum.
Endurhlaða á suður- og vest-
urhlið garðveggsins sem eru að
falli komnar að því er kemur
fram í styrkbeiðni sóknar-
nefndarinnar til sveitarstjórnar
Bláskógabyggðar.
Í fyrra var sett upp nýtt sálu-
hlið í kirkjugarðinum. Það er
eftirmynd hliðs sem stóð áður
við garðinn og er smíðað eftir
ljósmynd frá um 1880.
Heildarkostnaður við allar
endurbætur garðsins er áætlað-
ur tæplega 7,4 milljónir króna.
Bláskógabyggð styrkir verkið
með 300 þúsund krónum. Á
vegum Þingvallanefndar var
kirkjustéttin endurnýjuð. - gar
Endurbætur á Þingvöllum:
Hlaða nýjan
kirkjugarðsvegg
UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra fundaði í
gær með Sergei Lavrov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, í Ósló.
Ráðherrarnir lýstu yfir vilja
til að efla samstarf landanna á
ýmsum sviðum, sérstaklega í orku-
málum og málefnum norðurslóða.
Össur lýsti þeirri afstöðu Íslands
að það bæri að skoða sem strand-
ríki, þar sem umtalsverður hluti af
efnahagslögsögu þess liggur norð-
an heimskautsbaugs. Hann lýsti
andstöðu við að ríki héldu fundi
um norðurslóðir utan Norður-
skautsráðsins. - sv
Utanríkisráðherrar funda:
Auka samvinnu
í orkumálum
DÓMSMÁL Par sem ákært hefur verið
fyrir að að taka og geyma 64 myndir
af tíu ungum stúlkum þar sem þær
voru í sturtu, fær ekki myndirnar,
samkvæmt dómi Hæstaréttar. Hins
vegar fá maðurinn og stúlkan sem
stóðu að myndatökunum aðstöðu
á lögreglustöð til þess að skoða
myndirnar og undirbúa með þeim
hætti vörn sína í málinu. Hæstirétt-
ur lítur svo á að brýnir hagsmunir
stúlknanna standi framar afhend-
ingu þessara málsgagna.
Myndatökurnar stóðu yfir langt
tímabil og voru kærðar til lögreglu.
Stúlkurnar tíu sem um ræðir eru
leikmenn knattspyrnudeildar Völs-
ungs á Húsavík.
Stúlkan sem tók myndirnar með
símanum sínum var einnig í lið-
inu og hafði því aðstöðu til að taka
sturtumyndirnar.
Hún er ákærð, ásamt mann-
inum, sem er rúmlega tvítugur,
fyrir að hafa skipulagt myndatök-
urnar. Þá er stúlkan ákærð fyrir
að hafa tekið myndirnar og afhent
manninum þær. Hann er ákærður
fyrir að hafa gefið stúlkunni fyrir-
mæli um myndatökurnar, tekið við
myndunum og geymt hluta þeirra
á fartölvu heima hjá sér.
- jss
Maður og stúlka sem ákærð voru fyrir að mynda tíu ungar stúlkur í sturtu:
Skulu skoða myndir á lögreglustöð
FARTÖLVA Hluti myndanna var geymdur
í tölvu sem maðurinn hafði undir
höndum.
SLYS Mildi þykir að ekki fór verr
þegar stór jeppi keyrði aftan
á jeppling í blindbyl á Hrúta-
fjarðarhálsi í gærdag, með
þeim afleiðingum að jeppling-
urinn lagðist alveg saman. Var
hann kyrrstæður vegna aftan-
ákeyrslu við snjómoksturstæki,
en var mannlaus.
Ökumaður bílsins fór upp í
snjómoksturstækið til að bíða
eftir aðstoð vegna árekstursins,
en jepplingurinn var óökufær
og nauðsynlegt var að slökkva
á honum.
Um tveimur mínútum seinna
keyrði jeppinn aftan á bílinn
á mikilli ferð, en að sögn lög-
reglunnar á Blönduósi var
jepplingurinn óþekkjanlegur
eftir seinni áreksturinn og það
hafi verið kraftaverki líkast að
bíllinn hafi verið mannlaus.
- sv
Slys á Hrútafjarðarhálsi:
Kraftaverk að
ekki fór verr
SAMGÖNGUMÁL Álit Flugmálastjórn-
ar Íslands, þar sem ekki eru tald-
ar forsendur til að veita fyrirtæk-
inu ECA heimild til flugstarfsemi á
Keflavíkurflugvelli að svo stöddu,
var ekki sent áfram til fyrirtæk-
isins. Mánuður er liðinn frá því
að samgönguráðuneytinu barst
svarið.
Ögmundur Jónasson samgöngu-
ráðherra staðfestir að svarið hafi
ekki verið sent ECA.
Melville Ten Cate, forstjóri ECA,
er staddur hér á
landi og í sam-
tali við Frétta-
blaðið sagðist
hann vongóð-
ur um að geta
hafið starfsemi á
næstunni. Gekk
Ten Cate þar út
frá bréfi sem
Kristján Möller
sendi Flugmála-
stjórn rétt áður
en hann steig úr
stóli samgöngu-
ráðherra.
Ten Cate sagði
að mikið af rang-
færslum hafi ein-
kennt umræðuna
um fyrirtækið
hér á landi. Hér
verði einungis
viðhaldsvinna en ekki flugæfing-
ar.
Hann sagðist fullviss um að orða-
lag í því bréfi, þar sem ráðherra
felur flugmálastjóra að hefja und-
irbúning á skráningu loftfara, gefi
til kynna að stjórnvöld séu að vinna
í málunum og að góðar líkur séu á
að leyfið verði veitt.
„Það síðasta sem ég frétti varð-
andi flugrekstrarleyfi var bréf frá
Kristjáni Möller sem var einnig
undirritað af forsætisráðherra.
Þar var Flugmálastjórn sagt að
flýta skráningarferlinu af bestu
getu,“ segir Ten Cate.
Forsvarsmenn ECA töldu þess
vegna að flestar hindranir væru
úr vegi. Ten Cate segir að starf-
semi fyrirtækisins sé í raun þegar
hafin hér á landi. Fimm starfs-
menn hafi verið ráðnir og fyrstu
flugvélarnar komi til landsins í
upphafi næsta mánaðar.
Ögmundur segir hins vegar
að ráðuneytið hafi ekki afgreitt
málið.
„Flugmálastjórn hefur svarað
okkur og sagt að það sé margt á
huldu um þetta [starfsemi ECA]
og margt sem þarf að gera áður
en málið verður til lykta leitt. Þá
er spurning hvort að menn séu til-
búnir til að leggja út í mikil fjár-
útlát vegna slíks og það hefur ekki
verið tekin ákvörðun um að gera
það.“
Ögmundur lagði áherslu á að
þegar rætt væri um atvinnuhags-
muni af því að fá starfsemi ECA
til landsins megi ekki líta framhjá
þeim hagsmunum sem þegar fel-
ast í fluggeiranum hér á landi.
„Ég er ekki tilbúinn að tefla
okkar hagsmunum í tvísýnu þegar
ávinningurinn af [starfsemi ECA]
er mjög óljós því að það er margt
á huldu um þetta fyrirtæki.“
Spurður hvort hann hygðist
senda ECA skilaboð varðandi
svar flugmálayfirvalda í fram-
haldinu sagði hann að það myndi
ekki standa á ráðuneytinu að gera
það.
thorgils@frettabladid.is
Samgönguráðuneytið
sendi ekki svar til ECA
Forstjóri ECA er staddur hér á landi til að undirbúa komu herflugvéla fyrir-
tækisins. Hann hafði ekki fengið boð frá stjórnvöldum um að flugmálayfirvöld
mæltu ekki með að veita fyrirtækinu leyfi. Segir starfsemina þegar hafna.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
MELVILLE TEN CATE
SUKHOI SU-30 Svipaðar vélar verða í flota ECA á Keflavíkurflugvelli og eru þær fyrstu
væntanlegar í næsta mánuði, að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins.
SPURNING DAGSINS
Hákon, gufa ekki allar hug-
myndir upp á svona fundum?
Nei, viskan kemur innan frá svo að
hún magnast bara upp.
Hákon Már Oddsson kvikmyndagerðar-
maður er áhugamaður um gufuböð og
hefur meira að segja fundað í slíkum
böðum.
Skorað á Jón Bjarnason
Flateyringar og Önfirðingar skora
á Jón Bjarnason sjávarútvegsráð-
herra að koma til fundar við íbúa,
bæjaryfirvöld og stjórnendur Eyrar-
odda hf. vegna boðaðra fjöldaupp-
sagna hjá Eyrarodda. Mikil andstaða
ríkir meðal íbúa vegna áformanna.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
BORGARSTJÓRNARMÁL
Vilja að starfsmenn taki þátt
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
vilja að starfsmenn Reykjavíkurborgar
taki þátt í gerð fjárhagsáætlunar fyrir
næsta ár. Ein nýjung í fjárlagagerð eftir
hrun hafi verið að óska eftir aðkomu
starfsmanna og það hafi gefist svo vel
að nú skuli endurtaka leikinn.