Fréttablaðið - 03.11.2010, Side 4

Fréttablaðið - 03.11.2010, Side 4
4 3. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR DÓMSMÁL Þrír rúmlega tvítugir menn hafa verið ákærðir fyrir líkamsárásir, hótanir, tilraun til fjárkúgunar og vopnalagabrot. Tveimur mannanna er gefið að sök að hafa veist að tveimur lögreglumönnum í ágúst á síð- asta ári, kýlt annan í andlitið og hinn í síðuna. Þá hótuðu mennirn- ir að lífláta sex lögreglumenn og fjölskyldur þeirra. Tveir þeirra, Axel Karl Gísla- son og Viktor Már Axelsson, eru líka ákærðir fyrir að hafa veist að manni í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum, þar sem hann var að setja kornabarn inn í bíl. Annar ógnaði honum með hnífi og báðir kýldu hann og spörkuðu ítrekað í hann. Þá réðust þeir á dóttur manns- ins, kýldu hana í andlit og spörk- uðu í hana og spörkuðu einnig í eiginkonu hans sem reyndi að verja hann árásum. Hótuðu þeir svo manninum hnífstungum og að lokum lífláti ef hann greiddi ekki ætlaða skuld barnabarns síns. A nnar árásarma nnanna hringdi í barnabarnið og sagði því að greiða 60 þúsund krónur innan tuttugu mínútna ella hefðu aðstandendur þess verra af. Krefjast fórnarlömb árásar- mannanna samtals tæplega tveggja milljóna króna í skaðabætur. Axel er einnig ákærður, ásamt öðrum manni, fyrir innbrot í versl- un í Grindavík. Höfðu þeir sett skartgripi í plastpoka fyrir tæp- lega 400 þúsund krónur þegar lög- reglan handtók þá við innbrotið. Þeir Axel og Viktor hlutu báðir dóma í tengslum við innbrot og ofbeldisfullt rán í heimahúsi á Sel- tjarnarnesi. Sá dómur féll fyrir um það bil ári. - jss Þrír rúmlega tvítugir menn ákærðir fyrir líkamsárásir, hótanir og fleiri brot: Hrottar ákærðir fyrir ofbeldisfull brot FYRIR DÓMI Viktor Már Axelsson mætir nú í annað skiptið fyrir dóm, ásamt Axel Karli Gíslasyni. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 17° 12° 11° 14° 15° 11° 11° 24° 15° 21° 11° 30° 8° 16° 22° 9°Á MORGUN Strekkingur með SA- strönd, annars hægari. FÖSTUDAGUR Strekkingur allra syðst, annars hægari. -1 1 -2 -4 -4 22 1 -1 0 1 1 3 2 3 2 3 2 1 -1 -1 11 16 20 10 4 5 13 913 12 13 13 VONT NORÐAN TIL Það má búast við strekkingsvindi eða hvassviðri um vestan vert landið fram eftir degi og talsverðri snjó- komu eða slyddu norðanlands í dag. Veður verður skaplegra syðra en þó má búast við hvassviðri allra syðst á landinu og éljum suðvestan til. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður SAMFÉLAGSMÁL Hið árlega fjáröfl- unarverkefni Slysavarnafélags- ins Landsbjargar, sala Neyðar- kallsins, hefst á morgun. Í ár verður Neyð- arkallinn í líki rústabjörgunar- manns til heiðurs þeim sem tóku þátt í verkefninu á Haíti. Björgun- arsveitin skildi eftir mikið af búnaði sínum í landinu svo hægt væri að nota hann í áframhaldandi hjálparstarfi. Ágóði af sölunni mun meðal annars ganga upp í kaup á nýjum búnaði fyrir sveitina. Neyðarkallinn verður til sölu á vinnustöðum og við verslanir um land allt. - sv Landsbjörg hefur sölu á kalli: Neyðarkallinn í sölu á morgun INDÓNESÍA, AP Eldgos í einu hættu- legasta eldfjalli Indónesíu, Mer- abi, varð til þess að millilanda- flug raskaðist í gær. Vísindamenn hafa varað við því að eldgosið geti staðið í margar vikur. 38 manns létust af völdum eldgossins í síð- ustu viku og hafa yfirvöld lagt til við flugfélög að þau sniðgangi svæðið í kringum fjallið. Gosið hófst í Merabi 26. október síðastliðinn og hafa meira en tíu öflugar sprengingar komið úr gígnum síðan. Um 70 þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna gossins. - sv Eldgos hamlar flugi: Getur varað í margar vikur ORKUMÁL Gjaldskrárhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) gengu í gildi á mánudaginn síðastliðinn, 1. nóvember. Stjórn OR hefur samþykkt að taka upp innheimtu aukafráveitu- gjalds af fyrirtækjum. Í tilkynn- ingu OR segir að gjaldið snúi þá helst að þeim fyrirtækjum sem frekust eru á þjónustuna og að þau greiði í samræmi við afnot sín. Upphæð gjaldsins mun taka mið af vatnsnotkun að frádregnu því vatnsmagni sem áætlað er að fari í framleiðslu fyrirtækisins. Ætla má að gjaldið skili OR um 65 milljónum króna árið 2011. - sv Hækkanir OR hafnar: Aukagjald á frek fyrirtæki Röng mynd birtist með tilkynningu um andlát Jakobínu Fanneyjar Þórhalls dóttur í blaðinu í gær. Auglýs- ing með réttri mynd er á blaðsíðu 22 í blaðinu í dag. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTING FÉLAGSMÁL Forvarnadagurinn var haldinn í Foldaskóla í gær, að frumkvæði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Fjöldi fólks kom saman í Folda- skóla til að taka þátt í umræðun- um. Meðal þeirra sem fluttu ávörp voru forseti Íslands og Jón Gnarr borgarstjóri. Umræður nemenda í grunnskól- um fóru fram á fundinum og fram komu hugmyndir þeirra og tillög- ur varðandi nýjungar og breyt- ingar á æskulýðs- og íþróttastarfi, fjölskyldulífi og öðrum þeim þátt- um sem geta snúið að forvörnum. Allar hugmyndir nemenda verða birtar á vefsíðunni www. forvarnardagur.is - sv Forvarnadagur í Foldaskóla: Hugmyndir nemenda birtar AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is GENGIÐ 02.11.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 205,3648 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 110,45 110,97 176,40 177,26 154,21 155,07 20,679 20,799 18,925 19,037 16,647 16,745 1,3656 1,3736 174,02 175,06 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR EFNAHAGSMÁL Tæplega eitt þúsund eignir hafa verið seldar á nauð- ungaruppboðum af sýslumönnum landsins það sem af er árinu, þar af ríflega 400 íbúðir og 356 bílar. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar, dóms- og mannréttindaráðherra, við fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi. Alls hafa borist uppboðsbeiðnir til sýslumanna vegna 5.184 aðskildra eigna á árinu, en í mörgum tilvikum gera fleiri en einn kröfu um uppboð. Í tæplega fimmta hverju tilviki, samtals 976, hefur uppboðsbeiðnin leitt til þess að eignin hafi verið seld hæstbjóðanda á uppboði. Í þeim tilvikum sem uppboðs- beiðni barst en eignin var ekki seld á nauðungaruppboði var ýmist um það að ræða að eiganda eignarinnar tækist að semja við skuldunauta sína, eða að beiðnin hafi verið dregin til baka af öðrum orsökum. Íbúðalánasjóður er sá einstaki aðili sem oftast hefur krafist upp- boðs á eignum. Sjóðurinn hefur krafist uppboða í 1.733 tilvikum á árinu. Bankarnir hafa krafist saman- lagt 794 uppboða og trygginga- félögin, sem eiga yfirleitt kröfu vegna lögbundinnar brunatrygg- ingar, hafa gert 930 kröfur. brjann@frettabladid.is Þúsund eignir slegnar Ríflega 400 íbúðir og 356 bifreiðar hafa verið seldar á nauðungaruppboði á árinu. Íbúðalánasjóður og bankarnir krefjast oftast nauðungaruppboðs. Nauðungarsölur og uppboðsbeiðnir það sem af er ári 2010 Bílar og önnur ökutæki ■ 356 bílar seldir á uppboði ■ 36,5% af uppboðnum eignum ■ Óskað eftir uppboði á 1.155 bílum Íbúðarhúsnæði ■ 412 eignir seldar á uppboði ■ 42,2% af uppboðnum eignum ■ Óskað eftir uppboði á 2.754 eignum Atvinnuhúsnæði ■ 90 eignir seldar á uppboði ■ 9,2% af uppboðnum eignum ■ Óskað eftir uppboði á 693 eignum Nýbyggingar í eigu lögaðila ■ 92 eignir seldar á uppboði ■ 9,4% af uppboðnum eignum ■ Óskað eftir uppboði á 317 eignum Annað – sumarhús, jarðir og skip ■ 26 eignir seldar á uppboði ■ 2,7% af uppboðnum eignum ■ Óskað eftir uppboði á 265 eignum 356 26 90 92 412

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.