Fréttablaðið - 03.11.2010, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 2010 3
Árið 2010 tryggði Jón Örn sér svo
Íslandsmeistaratitil í torfærunni
eftir sigur í fjórum umferðum af
fimm.
„Já, það hefur eitthvað tínst
inn,“ segir Jón Örn hógvær þegar
talað er um öll þessi verðlaun.
„Þetta hefur gengið alveg ótrú-
lega vel síðan ég byrjaði.“
Samkvæmt símaskránni er Jón
Örn búsettur á Selfossi en hann
keppir fyrir Bílaklúbb Akureyr-
ar. Hvernig stendur á því? „Ég á
reyndar hvorki heima á Selfossi
né Akureyri heldur bý á Svína-
vatni,“ segir Jón Örn og hlær.
„En maður þarf að vera í klúbbi
til að fá að keppa og hvers vegna
ekki Akureyri alveg eins og
hvað annað? Ég er reyndar líka í
klúbbi fyrir sunnan, en ákvað að
keppa fyrir BA þegar ég byrjaði
og hef haldið mig við það.“
Spurður um framtíðarplönin
kemur Jón Örn blaðamanni í
opna skjöldu: „Ég veit það bara
ekki. Verð ekki með í torfærunni
á næstunni allavega. Búinn að
selja útgerðina og hættur í þessu
í bili.“ Hættir á toppnum? „Já,
eigum við ekki að segja það
bara,“ segir Jón Örn og hlær. „En
það væri kannski gaman að prófa
eitthvað annað.“
Aðrir sem tilnefndir voru sem
akstursíþróttamaður ársins 2010
voru: Ásta Sigurðardóttir, Örn
Ingólfsson, Haukur Þorvaldsson,
Björgvin Ólafsson og Jón Bjarni
Hrólfsson.
fridrikab@frettabladid.is
Akstursíþróttamaður ársins 2010, Jón
Örn Ingileifsson, er hættur keppni í
torfærunni, í bili að minnsta kosti.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
44
0
89
Verðdæmi:
Frá kr. 99.900
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára á Parquemar smáhýsum með 2
svefnherbergjum, 16. mars í viku.
Frá kr. 109.900
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna á Parquemar
í studio, 16. mars í viku.
Frá kr. 99.900
Aukaferðir í vetur
Fjölbreytt gisting í boði!
Heimsferðir bjóða nú sex aukaflug til Kanarí í
febrúar og mars, vegna mikillar eftirspurnar.
Bjóðum beint morgunflug með Icelandair.
Gríptu tækifærið og tryggðu þér sæti í
frábæra ferð í vetur.
Að sjálfsögðu nýtur þú þjónustu frábærra
fararstjóra okkar á Kanarí allan tímann.
1. febrúar – UPPSELT
1. febrúar – Viðbótarsæti
8. febrúar – Aukaflug
22. febrúar – UPPSELT
22. febrúar – Aukaflug
1. mars – UPPSELT
2. mars – Aukaflug
16. mars – Aukaflug
23. mars – Aukaflug
Beint morgunflug
með Icelandair
Tryggðu
þér
sæti strax
!
KAUPMANNAHÖFN - LA VILLA
Guesthouse á besta stað í bænum.Stúdíoíbúðir
og herbergi. Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. GSM. 0045 2848 8905
Ferðamaður er maður sem er á ferðalegi eða á leið-
inni eitthvert. Ferðamaður er oftast maður
sem hefur tekið sér ferð á hendur til að
kynnast öðru landi eða landsvæði, en
getur líka verið maður sem hvergi
festir rætur.
Heimild: www.is.wikipedia.org
Alþjóðlega ferðavefsíðan Trip
Advisor veitti heimagistingunni
Bænir og brauð viðurkenningu.
„Þetta er náttúrulega afskaplega
ánægjulegt og ekkert nema gott
um það að segja þegar maður fær
ánægða gesti og þeir láta í sér
heyra, ummælin voru náttúrulega
kveikjan að þessu öllu saman,“
segir Gréta Sigurðardóttur, sem
rekur heimagistinguna Bænir og
brauð í Stykkishólmi. Alþjóðlega
ferðavefsíðan Trip Advisor veitti
Grétu viðurkenningu á dögunum
fyrir afburðaþjónustu við ferða-
menn nú í sumar.
Milljónir manna nýta sér Trip
Advisor í hverjum mánuði en
ferðasíðan hefur að geyma fjölda
umsagna og einkunna sem ferða-
menn setja inn um ferðir og gist-
ingu. Umsagnir um Bænir og
brauð eru allar á einn veg á síð-
unni þar sem þjónustan er lofuð í
hástert.
Spurð hverju megi þakka þessi
jákvæðu ummæli, segist Gréta
bæði vera heppin með staðsetn-
ingu og svo reyni hún að vanda sig
eftir fremsta megni. „Ég býð upp
á góða svefnaðstöðu og hollan og
kannski svolítið óvenjulegan morg-
unmat, sem hefur slegið í gegn og
ofan á það bætist fallegt útsýni.“
Hún bætir hógvær við að svo hafi
hún reynt að sýna góða þjónustu og
vera til staðar fyrir gestina.
Ekki er nema ár síðan Gréta opn-
aði Bænir og brauð. Fram að því
hafði hún enga reynslu af ferða-
þjónustu og skilur eiginlega ekki
hvers vegna þar sem starfið sé
óhemju skemmtilegt. Viðurkenn-
inguna frá Trip Advisor segir hún
gefa sér byr undir báða vængi og
ekki annað í stöðunni en að halda
áfram að standa sig vel, enda muni
ferðamenn sjálfsagt framvegis
heimsækja hana með miklar vænt-
ingar. - rve
Fær fullt hús stiga
hjá Trip Advisor
Gréta með viðurkenninguna frá Trip
Advisor. Hún segist ekki vita til að
vefsíðan hafi áður veitt íslenskum ferða-
þjónustuaðila viðurkenningu.
MYND/ANNA MELSTEÐ
Að sögn Grétu eru áhrif Trip Advisor ótvíræð, þar sem mikill meirihluta gestanna
hefur kynnt sér þjónustuna á vefsíðunni.
Framhald af forsíðu
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið
sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins.
Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.