Fréttablaðið - 03.11.2010, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 03.11.2010, Blaðsíða 35
MARKAÐURINN F R É T T I R 9MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2010 Á föstudaginn hittast leiðtogar G20-ríkj- anna í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu. Vænt- ingar hafa staðið til þess, að deilan mikla um gjaldmiðil Kína verði rædd í þaula, en fulltrúi Bandaríkjastjórnar sagði nú á mánudaginn ljóst að engin niðurstaða muni fást í þessari deilu á fundinum í Seúl. Bandaríkjamenn hafa lengi haft miklar áhyggjur af því hve kínverska júanið er lágt skráð. Kínversk stjórnvöld passa vel upp á að halda genginu lágu, og hafa í því skyni keypt ógrynnin öll af bandarískum dölum síðustu árin. Þetta gerir það að verkum að erlendar vörur eiga ekki greiðan aðgang að kínverskum mörkuðum, því þær eru dýrar í sölu þar í landi. Að sama skapi styrkir þetta kínverskan útflutning. Bandaríkjamenn vilja einnig halda sinni mynt niðri, til að auðvelda sér að komast út úr kreppunni miklu, en með lággengisstefnu sinni gera Kínverjar Bandaríkjamönnum erfitt fyrir. Þessi spenna hefur síðan umtalsverð áhrif á evruna, en einnig á gjaldmiðla upprenn- andi efnahagsvelda á borð við Suður-Kóreu, Taíland, Brasilíu og Suður-Afríku, því þang- að streymir fjármagnið þegar það flýr frá Bandaríkjunum og Kína. Margir hafa áhyggjur af þessu ástandi, og telja kaldrifjað gjaldmiðlastríð í uppsigl- ingu. Í umfjöllun þýska tímaritsins Spiegel er þetta sagt valda því að efnahagskreppan sé að komast á nýtt stig: „Eftir fasteigna- og fjármálakreppu, eftir samdrátt og ríkis- skuldakreppu, þá eru nú eftirskjálftar stóra hrunsins að berast inn á alþjóðlega gjald- eyrismarkaðinn.“ Á fundi fjármálaráðherra G20-ríkjanna í Seúl, sem haldinn var seint í nýliðnum mán- uði, voru þessi mál rædd og fulltrúar allra ríkjanna strengdu þess heit að nota ekki gjaldmiðil sinn sem vopn í því viðskipta- stríði, sem margir óttast að geti verið í upp- siglingu. Þau loforð voru hins vegar ekki baktryggð með neinum formlegum hætti, þannig að allt er í sjálfu sér enn opið. Kreppan sögð að komast á nýtt stig Hættan á því að helstu ríki heims keppist um að lækka gengi gjaldmiðla ekki úr sögunni. BEN BERNANKE OG TIMOTHY GEITHNER Seðlabankastjóri og fjármálaráðherra Bandaríkjanna. NORDICPHOTOS/AFP Sniðið að þörfum þíns fyrirtækis Gott dreifikerfi og traust þjónusta skiptir lykilmáli. Hafðu samband við söluráðgjafa í 599 9500 og við finnum leið sem hentar þínu fyrirtæki. Treystu Vodafone fyrir þínum fjarskiptamálum vodafone.is Velta með hlutabréf Nasdaq OMX- kauphallarsamstæðunnar á Norð- urlöndunum nam jafnvirði 452,6 milljarða íslenskra í október. Með- alveltan á hverjum degi síðast- liðna tólf mánuði hefur til sam- anburðar numið 444,3 milljörðum króna. Þá jukust viðskipti á hlutabréfa- markaði á milli mánaða en dag hvern í október skiptu 294.397 hlutabréf um hendur miðað við 277.411 á dag síðastliðna tólf mánuði. Í tilkynningu frá kauphallar- samstæðunni í gær kemur fram að eitt nýtt félag hafi verið skráð á aðalmarkað í nýliðnum mánuði. Í heildina hafa sautján ný félög verið skráð á markað, þar af ellefu á aðalmarkað. Ekkert félag hefur verið skráð hér síðan Skipti, móð- urfélag Símans, var skráð á hluta- bréfamarkað í mars 2008. - jab Eitt félag á markaðinn SÝSLAÐ Í KAUPMANNAHÖFN Velta með hlutabréf var yfir meðallagi hjá Nasdaq OMX-kauphallarsamstæðunni á Norðurlöndunum í nýliðnum mánuði. Dominique Strauss-Kahn, fram- kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins, segir alþjóðlegu fjár- málakreppuna hafa kostað þrjá- tíu manns atvinnuna um allan heim. AFP-fréttastofan hafði eftir f r a m k v æ m d a s t j ó r a n u m í vikubyrjun að leiðtogar tuttugu stærstu iðnríkja heims sem funda í Suður-Kóreu um helgina, verði að setja atvinnusköpun í algjöran forgang með það fyrir augum að vinna bug á kreppunni. Þá muni um að á næstu tíu árum muni 450 milljónir manns koma á vinnu- markaðinn. Dominique Strauss-Kahn sagði jafnframt að þótt dregið hafi verulega úr atvinnuleysi væri kreppunni hvergi nærri lokið. - fri Atvinnumál efst á blaði FRAMKVÆMDASTJÓRI AGS Dominique Strauss-Kahn segir mikilvægt að búa til atvinnutækifæri fyrir þær milljónir manna sem munu leita á vinnumarkað á næstu tíu árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.