Fréttablaðið - 03.11.2010, Side 36
MARKAÐURINN 3. NÓVEMBER 2010 MIÐVIKUDAGUR10
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Ú R F O R T Í Ð I N N I
Neytendavitund hefur verið
í deiglunni að undanförnu en
er ekki alfarið nýtt fyrirbæri
eins og þessi mynd sýnir fram
á. Nokkar kvennalistakonur,
þar á meðal þær Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, Guðrún Hall-
dórsdóttir, Kristin Einarsdótt-
ir, Anna Ólafsdóttir Björnsson
og Guðný Guðbjörnsdóttir, fóru
í innkaupaleiðangur í tilefni hins
alþjóðlega baráttudags kvenna
þann 7. mars 1991 þar sem til-
gangurinn var að sýna hversu
mikil sóun fólst í pakkningum
um hinar ýmsu vörur. Einnig
vildu þær sýna fram á hversu
mikil ábyrgð hvíli á herðum
kvenna þegar að umhverfis-
vernd kemur því þær sjá oftast
um heimilisinnkaupin.
„Meira að segja hollustuvörur
eru bæði í poka og kassa,“ sögðu
nokkrar þeirra í samtali við
blaðamann DV og voru síður en
svo ánægðar með það.
Nú, tæpum tuttugu árum síðar,
hefur lítið breyst í þeim efnum
þrátt fyrir ríkari áherslu á um-
hverfismál í flestu tilliti. Enn má
víða finna óhóflegar umbúðir
um neytendavöru. - þj
Konur vöktu athygli
á umhverfismálum
Fjárfestar eiga að veðja á að hrá-
vara muni hækka í verði, sérstak-
lega silfur og hrísgrjón. Þetta segir
Jim Rogers, einn af þekktari fjár-
festum Bandaríkjanna. Hann hóf
ferðalag sitt umhverfis jörðina á
sérútbúnum gulum Mercedes Benz
með eiginkonu sinni hér á landi í
byrjun árs 1999.
Rogers sagði í samtali við banda-
rísku sjónvarpsstöðina Bloomberg
þar sem hann talaði frá Singapúr á
dögunum, að hvað svo sem banda-
ríski seðlabankinn geri á næstunni
muni hrávöruverð halda áfram að
hækka.
„Ef hagkerfi heimsins lagast þá
mun hrávöruverð hækka því skort-
ur er í vændum,“ segir Rogers og
bendir á að ákveði seðlabankinn
að setja prentvélarnar í gang með
það fyrir augum að auka peninga-
magn í umferð muni það eitt og
sér hafa áhrif á eignaverð, geta af
sér bólur, þar með talið á hrávöru-
markaði. Ákveði hann hins vegar
að halda gengi Bandaríkjadals
lágu gagnvart öðrum gjaldmiðl-
um muni það hafa áhrif á verðið,
sem muni hækka í dollurum talið.
Því til viðbótar muni Kínverjar og
önnur efnuð Asíuríki halda áfram
að fjárfesta í hrávöru sem muni ýta
verðinu upp, að hans mati. - jab
Jim Rogers veðjar á
hrávörumarkaðinn
SLAKUR FJÁRFESTIR Hvað sem gerist í
heimshagkerfinu mun hrávöruverð hækka
í verði, segir einn af þekktari fjárfestum
Bandaríkjanna. MARKAÐURINN/AFP
MARKAÐURINN/GVA
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 · ORMSSON.IS
FÆST Í ORMSSON VERSLUNUM UM LAND ALLT
VANDAÐUR NETBÚNAÐUR
Fyrir heimilið og
heimaskrifstofuna
TEW-637AP
Tengdu við gamla beininn og fáðu betra
samband á þráðlausa netinu.
12x hraðinn og 4x drægni miðað við
G-staðalinn. Einföld uppsetning.
Verð: 12.200 kr
Betra samband
TPL-303E2K
2 einingar sem nota
raflagnirnar sem innanhúsnet.
Allt að 200Mbps og hægt að
nota 16 einingar saman.
Hægt að hafa allt að 300m á
milli eininga á sömu grein.
Verð: 20.700 kr
Raftenglar sem nettenglar
TEW-649UB
Tengdu tölvurnar þínar við þráðlaust net.
8x hraðinn og 4x drægni miðað við
G-staðalinn. Einföld uppsetning.
Verð: 4.990 kr
Öflugt USB netkort
Lipurð, snerpa og kraftur Pors-
che Cayenne S lúxusjeppans gera
það að verkum að helst ættu ekki
aðrir að setjast undir stýri en
aldur hafa og þroska til að
stilla sig um að tæta fram
úr öðrum bílum þótt
getan til þess sé vissu-
lega fyrir hendi. Bíllinn
er kjörinn handa þeim
sem unun hafa af því að
aka kraftmiklum bílum og
hafa gaman af því að keyra.
Vandfundinn er jepplingur sem
betur lætur að stjórn.
Bíllinn sem að þessu sinni var
tekinn til kostanna er af 2007 ár-
gerð, með átta sílindra 4,8 lítra
benínvél, lítil 385 hestöfl. Því er
ekki að undra að afl bílsins og
upptaka sé með því fyrsta sem
fangar athyglina við reynslu-
akstur hans. Þannig gæti maður
ímyndað sér að ökumaður mætti
gæta sín á því að detta ekki upp
undir 150 kílómetra hraða á
klukkustund við einfalda fram-
úrtöku á tvöföldum kafla á
Hellisheiði. Nokkuð sem undirrit-
aður myndi þó aldrei viðurkenna
að hafa látið koma fyrir sig. Um
leið getur maður ímyndað sér að
ökumaður fyndi lítið fyrir slíkum
hraða á hraðbrautum útlanda þar
sem slíkt er heimilt.
Bílinn er afar stöðugur, enda
búinn sérstakri stöðugleika-
stjórnun og jafnvægisstanga-
búnaði (PDCC) sem sér um að
rétta vagn bílsins af í kröpp-
um beygjum og lágmarka halla.
Í torfærum breytist svo virkni
stanganna þannig að þær heim-
ila fulla slaglengd fjöðrunar. Bíll-
inn er búinn tölvustýrðum demp-
urum og hægt að hækka bílinn
og lækka með einum hnappi við
hlið ökumanns. Þar er líka hægt
að smella bílnum í „sport“ ham
þar sem fjöðrun er öll stinnari
og inngjöfin snarpari. Í þeim
ham er hættast við að ökumað-
ur slysist til að taka af stað með
slíkum látum að helst líkist þotu
í flugtaki og hemji sig ekki fyrr
en hundrað kílómetra hraða er
náð, tæpum sjö sekúndum síðar.
Sportjeppinn breytist á auga-
bragði í sportbíl.
Bíllinn er mörgum góðum kost-
um búinn sem of langt mál yrði
upp að telja og vart að maður
telji sig þurfa að nefna rafdrifnar
rúður, spegla og framsæti.
Stefnuvísandi beygjuljós sönn-
uðu þó gildi sitt í skammdeginu,
en þau taka að lýsa þegar bíllinn
fer hvað hægast áður en beygt er
og auðvelda akstur þar sem veg-
lýsing er engin. Á móti kemur að
ljósgeisli bílsins er heldur hátt
stilltur og truflaði nokkra öku-
menn annarra bíla á Heiðinni það
mikið að þeir sáu sig til neydda
til að blikka ljósum sínum. Lítið
mál ætti þó að vera að stilla af
geislann.
Þá sönnuðu sig í kuldakasti
síðustu daga hægindin sem því
fylgja að hafa hita í sætum, en
að sama skapi reyndi lítið á topp-
lúguna, þótt gaman væri að vita
af henni. Bíllinn er hinn smekk-
legasti að innan, með leðurinn-
réttingu, en mætti að ósekju
bjóða upp á meiri upplýsingar í
mælaborði (svo sem um bensín-
eyðslu).
Raunar er það svo að þetta
eintak var í upphafi sérpantað án
svokallaðs „aðgerðastýris“ og án
skriðstillingar (e. cruise control),
nokkuð sem líklegt verður að telj-
ast að þreyttur forstjóri á heim-
leið myndi telja ómissandi í bíl
sínum, svona til þess að ná slök-
un eftir annasaman dag. Vilji
hann hins vegar fá útrás með
því að beita sér í akstrinum, þá
er þetta klárlega rétti bíllinn.
Umboðsaðili segir hins vegar
lítið mál að koma skriðstillinum
fyrir í bílnum, ekki þurfi nema að
smella stönginni í við stýrið.
Í reynsluakstrinum var bíll-
inn oftar en ekki í „sport“ ham
og því ef til vill lítið að marka
bensíneyðsluna, en hún er þó
furðu lítil miðað við stærð vél-
arinnar og afl. Í langkeyrslu dett-
ur eyðslan allt niður í 10 lítra á
hundraðið. Í hefðbundnum (og
hófstilltum) blönduðum akstri
má ímynda sér að eyðslan sé á
milli 14 og 15 lítrar á hundraðið.
Þá má draga enn meira úr eyðsl-
unni með því að smella sex gíra
tiptronic sjálfskiptingunni yfir í
handskiptingu. Er þá bæði hægt
að nota gírstöngina til að skipta,
eða takka í stýrinu.
Bíll eins og þessi er ekki
gefins, en uppsett verð er litlar
9,9 milljónir króna. Þar er hins
vegar sagt umsemjanlegt og til
skoðunar að bjóða hann tíma-
bundið á um milljón undir því
verði. En úr því komið er í þenn-
an verðflokk hvort eð er, þá væri
kannski ekki heldur úr vegi að
kíkja bara á nýjan Cayenne með
dísilvél. Í þeim er skriðstillirinn
líka staðalbúnaður.
Hættulega snarpur
PORSCHE CAYENNE S Jepplingur sem fær er í flestan sjó og verður svo eins og sport-
bíll með því einu að þrýsta á hnapp. Stöðugleikakerfi bílsins sannaði ágæti sitt í hálku og
vætutíð síðustu daga. MARKAÐURINN/ÓKÁ
Porsche Cayenne S, árgerð 2007
Ásett verð: 9.900.000 krónur
Ekinn: 44.750 km
Lengd: 479,8 cm
Breidd: 192,8 cm
Litur: Dökkgrár
Sætafjöldi: 5
Þyngd: 2.433 kg
Burðargeta: 647 kg
Slagrými: 4.806 cm3
Afl: 283,0 kW
Eldsneyti: Bensín
H E L S T U S T A Ð R E Y N D I R
Óli Kristján
Ármannsson
blaðamaður tekur
til kostanna notaða
bíla og metur hvort
þeir fái staðið undir
því að kallast for-
stjórabílar.
Yfir Heiðina með Óla Krist jáni