19. júní


19. júní - 19.06.1957, Page 4

19. júní - 19.06.1957, Page 4
landsins. En alltaf var allur hugur hennar við það bundinn að geta aflað sér einhverrar mennt- unar, og fékk hún nú upp úr þessu tækifæri til þess að dveljast einn vetur á hinum nýstofnaða kvennaskóla að Laugalandi i Eyjafirði. Frá þess- um árum fær hún þann vitnisburð, að hún hafi um tvítugsaldur verið svo fróð og víðlesin, að þess hafi verið fá dæmi, námsgáfurnar frábærar, skiln- ingur skarpur og minnið óskeikult, en jafnframt þessu hafi viljaþrekið verið óbilandi.. Mun hún hafa þurft á öllum þessum góðu gáfum að halda á sinni stormasömu ævi. Frá Laugalandi réðist Brí- et nú fyrst sem heimiliskennari hjá Þórði Guð- johnsen, kaupmanni á Ftúsavík, en síðan var hún nokkur ár þar uppi í sveitunum á ýmsum stöð- um, vann við heyskap á sumrum, en að saumum eða kennslu á vetrum. Man ég, að sem ung stúlka heyrði ég oft fólk úr Þingeyjarsýslunni minnast þessarar dvalar hennar þar, þvi hún hafði hið mesta gaman af kappræðum við þá menn, sem þá bar mest á þar í sveit, svo sem Jón frá Múla, Þor- gils gjallanda og Jakob Hálfdanarson; lét hún aldrei sinn hlut, en áheyrendur skemmtu sér hið bezta. Mátu þessir menn Bríetu jafnan mikils og tókst ævilöng vinátta á milli hennar og ýmsra þeirra. Árið 1884 fluttist Bríet til Reykjavikur og átti þar heima það sem eftir var ævinnar. Mun hún þá fljótlega hafa kynnzt manninum, sem varð lífs- förunautur hennar og baráttufélagi á meðan hon- um entist líf, en það var Valdemar Ásmundsson, ritstjóri Fjallkonunnar. Hann ritaði grein um kven- frelsi í 1.—2. tbl. Fjallkonunnar 1885. Var þetta óvenjulega frjálslynd og vel rituð grein, og hefur orðið Bríetu hrein opinberun að kynnast slíkum skoðunum hjá ungum menntamanni. Upp úr því hófust kynni þeirra. Bríet skrifaði nú sjálf sína fyrstu blaðagrein, sem birtist í Fjallkonunni vorið 1885 og hét: „Nokkur orð um frelsi og menntun kvenna“, og 30. des. 1887 heldur hún svo fyrsta opinbera fyrirlesturinn, sem kona hefur haldið á íslandi og nefndi hann: „Nokkur orð um frelsi og menntun kvenna. Fyrirlestur um hagi og réttindi kvenna“. Var fyrirlesturinn síðar sérprentaður. Vafalaust hefur þessi framhleypni ungrar stúlku, að fara að tala opinberlega og gera kröfur fyrir hönd kvenna, mætt mjög misjöfnum dómum, en hitt er og víst, að það vakti mikla athygli og um- tal, enda fara nú kvenréttindamál upp úr þessu að verða sífellt umræðuefni manna á meðal. Þau Bríet og Valdemar giftist árið 1888 og hófst þá samstarf þeirra við blaðamennskuna, sem hún mun alltaf hafa látið sig miklu skipta. Hún segir um mann sinn í minningargrein eftir hann látinn, að hann hafi hafið kvenréttindafánann á loft með ritgerðum sínum í Fjallkonunni, og að honum hafi verið eins annt um framfarir kvenna sem karla. Hún segir líka í æviminningum sinum, að hún hafi átt honum mikið að þakka í sambandi við þroskaferil sinn, sambúðin við hann hafi opnað sér nýjan menntaheim, þar sem hún fékk aðgang að innlendum og útlendum bókum, blöðum og timaritum, og aukið tækifæri til að umgang- ast náið frjálslynda og víðsýna gáfumenn, sem marga hverja bar þá hæst í íslenzku þjóðlífi. Hún segist jafnan hafa getað borið allt undir hann og hann hafi kennt sér það lítið, sem hún kunni i blaðamennsku. Hún segir líka, að rétt eftir að þau giftust hafi hann stungið upp á, að hún færi að gefa út kvennablað, en sér hafi þá fundizt það óhugsandi, en 6 árum seinna tók hún hugmynd- ina upp og fór þá að gefa út Kvennablaðið árið 1895. Sama árið og Kvennablaðið hóf göngu sína byrj- aði að koma út á Seyðisfirði annað kvennablað, Framsókn; ritstjórar þess voru þær mæðgur Sig- riður og Ingibjörg Skaftason. Var Framsókn hreint kvenréttindablað, en hafði jafnframt bindindismál á stefnuskrá sinni. Taldi Bríet rétt, að blöðin skiptu með sér verkum, og lét því Kvennablaðið fyrst framan af gefa sig mest að málum heimilanna og menntun kvenna, enda var í þá daga greiðari að- gangur að konunum í gegnum þau mál, en gefa þá jafnframt smáinntökur af kvenfrelsismálunum. Eftir að Framsókn hætti að koma út, tók Kvenna- blaðið að fullu upp merki kvenréttindanna og hélt áfram þeirri baráttu, þangað til konur höfðu hlot- ið kosningarrétt og kjörgengi, fyrst 1915, en með sömu skilyrðum og karlmenn með fullveldisstjóm- arskránni 1918. Kvennablaðið kom út i 25 ár, eða til ársins 1920, treysti frú Bríet sér þá ekki til að standa lengur undir því fjárhagslega. Er þetta því átakanlegra sem blaðið var mjög vinsælt meðal íslenzkra kvenna, en innheimta tókst svo treglega, að skuldir söfnuðust upp og varð ekki við ráðið, enda peningaráð kvenna lítil í þá daga, og ekki var blaðið alls staðar vel séð af bændun- um. Alla ævi þaðan í frá harmaði Bríet að hafa þurft að hætta við útgáfu Kvennablaðsins og dreymdi um, að K.R.F.I. hæfi útgáfu nýs blaðs. Kaupendur blaðsins munu og margir hafa saknað þess mjög. 2 19. JtJNl

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.