19. júní


19. júní - 19.06.1957, Blaðsíða 27

19. júní - 19.06.1957, Blaðsíða 27
Kletturinn er svartur og kaldur, það fer um hana hrollur í sólskininu, ef hún bara lítur þangað. Þó getur hún ekki varizt að gefa því auga í laumi, hvort ekki mundi einhvers staðar hægt að fóta sig. En það er ekki af því, að hún ætli að reyna það, nei nei, hara sjá hvort það væri nokkur leið, kannski fyrir fullorðna. Hún ætlar upp fyrir foss- inn og fara þar yfir, götuslóðann. En það getur ekki gert neitt til, þótt hún fari aðeins snöggvast fram á gilbarminn, hérnamegin er hann svo lágur. Það liggja skáhallar kinda- slóðir niður í gilið hér og þar og vísa henni leið- ina, sumstaðar eru grashnottar í hallanum, og ef hún þræðir aðeins lengra á ská og styður annarri hendi við klettinn, sem skagar lengst fram, þá kemst hún á sylluna fyrir framan hann, og þar eru hvannir og burknar i sprungum og skútum undir klettinum, þar getur hún sezt og hengt fæt- urna fram af, og það er bæli í lágu grasinu, því kindur hafa sofið þar nýlega. Það er alls ekki af því að hún ætli að fara þarna yfir ófæruna, að hún heldur áfram að þræða sig niður grasgeirana, þegar hún stendur upp aftur, en það hefur aldrei verið bannað að fara niður þarna megin, og það er svo lafhægt, að það getur hver sem er komizt upp aftur. Það er hinumegin sem það er háskalegt, þar seytlar víða vatn um bergið, vatn, sem ekki renn- ur, en heldur berginu alltaf röku, og það er skreipt þar, enda ætlar hún ekkert þangað, en það dregur að sér augun, það ætti þó ekki að gera neitt til, það er svo gaman að sjá hvernig kletturinn breyt- ist, þegar komið er nær honum. Henni finnst hann vilja lokka hana til sín og hremma hana, en hún ætlar ekki að láta hann ná í sig, bara koma svolítið nær til að stríða lionum og hlaupa svo í burtu. Nú er hún komin. alla leið niður að læknum og hann er svo lítill að hún gæti stokkið yfir hann á flúðinni, ef hún kærði sig um, en hún kærir sig ekkert um það, því hún ætlar ekki lengra en að læknum, stanza þar ögn og sömu leið til baka. Hún sér ekki lengur heim, sólskinið nær ekki þarna niður, það fer kaldur súgur um gilið og niður vatnsins verður ágengari. Hún hysjar beizlinu betur upp á öxlina og lield- ur járnmélunum föstum svo þau sláist ekki við hana, mælir breidd lækjarins með augunum. Svo stekkur hún yfir flúðina. Það var ekkert, lítið meira en bæjarlækurinn, og hún ætlar strax yfrum aftur og sömu leið til baka uppúr gilinu. Hún kann und- arlega við sig svona nálægt klettaveggnum, vald hans ógnar henni, og hún er bæði hrædd og heilluð. Hún horfir uppeftir gljúfurveggnum og reynir að gizka á, hvað hann muni vera margar mannhæðir hennar, sex? — eða átta? Það er ekki gott að sjá það svona uppfyrir sig. En það eru skriður neðst við lækinn, og það væri vel hægt að komast eftir þeim að klottabelt- inu, ef maður ætti bara nokkurt erindi þ<.ngað, en það á hún ekki og ætlar ekkert þarna upp. En þó byrjaði hún að feta sig upp skriðuna, af eintómri rælni. Hún studdi sig með höndunum, því grjótið var laust og rann til undir fótum henn- ar. Þegar hún leit við sýndist henni láta nærri, að hún væri komin eina hæð sína, hún ætlaði að- eins að fara aðra til, þá væri hægra að gizka á, hvað hátt væri uppá brún, hún var svo vön að klifra, að ennþá var ekkert vont að horfa niður. Og hún fikraði sig lítið eitt til hliðar, meðfram klettaveggnum, studdi höndunum við hann hrjúf- an og nakinn og nú var hún komin að þröngri geil, sem náði alveg uppúr gilinu, en græna víði- flækju bar við himin. Hún mundi eiga eftir minnst fjórar eða fimm lengdir sínar, ef hún væri á leið þarna upp, en hún var ekki á leið þarna upp. Það var bara af því að hún var nú komin svona langt að hana langaði rétt að vita, hvernig það væri að troða sér inní geilina, áður en hún sneri við, og fann þá, að vel mátti troða sér uppeftir henni, með því að spyrna höiidum og fótum í klettana beggja vegna. En nú sneri hún við, óður en það 3rrði um sein- an. Hún renndi í síðasta sinn augunum uppeftir 19. JONl 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.