19. júní - 19.06.1957, Qupperneq 5
Bríet BjarnhéSinsdóttir áttrœS.
Árið 1902 deyr Valdemar Ásmundsson, maður
frú Bríetar, og stóð hún þá ein uppi með tvö börn
þeirra ung. Sjálfsagt hefur henni verið það jafnt
hjartans mál sem metnaðar, að þau fengju hina
beztu menntun sem auðið var. Má nærri geta, að
það hefur ekki verið átakalaust fyrir eignalausa
ekkju að koma báðum börnunum áfram til háskóla-
náms. Dóttir hennar, Laufey, var fyrsta stúlkan, er
samkvæmt nýrri reglugerð Menntaskólans fékk að
sitja í honum og tók á eftir stúdentspróf þaðan,
Eftir það stundaði hún ensku og frönskunám við
Kaupmannahafnarháskóla, en Héðinn, sonur Brí-
etar, varð hagfræðingur frá sama skóla. Sagan um
baráttuna við að ná þessu marki með þeim glæsi-
leik, sem það tókst, verður ekki sögð hér, en upp
úr aldamótunum verða á fleiri en einn veg þátta-
skil í lífi frú Bríetar, og skal nú snúið að því.
Árið 1903 var stofnað Alþjóðakvenréttindasam-
bandið, sem nú er löngu þekkt um allan heim.
Voru félög frá flestum löndum Norðurálfunnar í
sambandi þessu frá byrjun, en inntökuskilyrði var
þá, að félögin hefðu ekkert annað á stefnuskrá
sinni en hrein jafnréttismál kvenna við karla. Frú
Bríet ferðaðist um Norðurlönd 1904 og kynntist
þá mörgum forgöngukonum kvenna i þessum mál-
um og komst í samband við Mrs. Chapman Catt
í New York, sem var forstöðukona og stofnandi
þessara samtaka. Urðu þessi kynni til þess að Brí-
etu var boðið að sækja alþjóðafund félagsins, sem
haldinn var i Kaupmannahöfn sumarið 1906. Má
nærri geta, hvílík opinberun og hvatning það hef-
ur verið hinni íslenzku bardagakonu að hitta þarna
í fyrsta sinn fjölda víðsýnna, óeigingjarnra kvenna,
sem helguðu margar hverjar kvenréttindunum allt
sitt starf. Þær mæðgur Bríet og Laufey sóttu siðan
marga fundi þessara samtaka viðs vegar í Norður-
álfunni og sóttu þangað jafnan nýjar hugmyndir,
nýja trú, nýjan kraft. Mér er kunnugt um, af því
að ég hef sjálf kynnzt ýmsum af forgöngukonun-
um, að þær mæðgur voru mjög mikils metnar í
þessum hóp, og að sæti íslands á fundum þessum
þótti mjög vel skipað með þeim sem fulltrúum, og
19. JÍTNl
3