19. júní - 19.06.1957, Blaðsíða 18
önnur auglýsing í sama blaði 15. júní 1955:
„Stúlku vantar í fræðslumálaskrifstofuna til síma-
vörzlu, vélritunar o. fl. Laun samkv, 14. launa-
flokki. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og starfsferil skal senda i fræðslumálaskrifstof-
una fyrir 30. júní n.k. Fræðslumálastjóri."
Þessi litlu orð: „og fleira“, sem hnýtt er aftan
við störfin, sem símastúlkunum eru ætluð, síma-
varzla, vélritun o. fl., geta orðið drjúg, þegar til
starfanna kemur, þó þau séu meinleysisleg og láti
lítið yfir sér í skammstöfun í auglýsingu, en hver
svo sem þessi „fleiri“ störf eru, fá þær ekki laun
samkv. þeim, heldur símavörzlunni.
Nákvæmlega sömu sögu er að segja um fjöl-
marga ritara, þeir eru látnir vinna ýmiss konar
skrifstofustörf, eftir þvi sem þurfa þykir, og oft og
tíðum er vélritun lítill hluti af vinnu þeirra, en
laun skulu þær taka eftir starfsheitinu, en ekki
störfunum, sem þeir eru látnir vinna.
Það er þetta, sem ég kalla röng eða fölsk starfs-
heiti, gerð beinlínis í því augnamiði að halda
kaupi kvenna niðri og fá þannig ódýran vinnu-
kraft.
Við þessu er að vísu til mótleikur, sem ég vil
hvetja konur til þess að beita, ef þurfa þykir og
þær eru órétti beittar í þessu tilliti. Og hann er sá
að biðja um erindisbréf. Þeim konum, sem látnar
eru vinna önnur störf en starfsheiti þeirra gefur
tilefni til að álíta að þær eigi að vinna, vil ég ein-
dregið ráðleggja að fá slík bréf. Þær þurfa ekki
annað en skrifa ráðuneyti viðkomandi stofnunar
og óska eftir erindisbréfi, og er þá ráðuneytinu
skylt að verða við þeirri ósk, samkv. 6. gr. laga
II. kafla um réttindi og skyldur starfsmanna rík-
isins, en þar segir svo: „Hver sá, er stöðu ráðstafar,
getur sett starfsmanni erindisbréf, enda skal að
jafnaði setja slik fyrirmæli, ef hann óskar þess,
hvort sem það varðar starf hans almennt eða ein-
staka grein þess eða greinar.“ Með öðrum orðum,
hver fastráðinn starfsmaður á heimtingu á því að
fá nákvæma skrá yfir þau störf, sem ætlazt er til,
að hann leysi af hendi í starfi sínu.
Margar konur hafa þá sögu að segja, að það sé
eins og að fara í geitarhús að leita sér ullar, að
fara í fjármálaráðuneytið til þess að fá launakjör
sín leiðrétt. Persónulega þekki ég dæmi þess, að
þrátt fyrir ítrekuð tilmæli forstjóra um að fá leið-
rétt launakjör kvenstarfsmanns sins, hefur því ekki
verið sinnt. Svo vel er hægt að ímynda sér, hvern-
ig ástandið muni vera, þar sem forstjórar leggja
ekki hönd að verki i slíkum málum.
Eftir því sem ég bezt veit, er aðeins einum
manni í ráðuneytinu falið að fjalla um launamál
allra starfsmanna ríkisins. Þar virðist ekki þurfa
til að vanda, eðlilegra fyndist manni óneitanlega,
að fleiri mönnum væru falin á hendur svo ábyrgð-
armikil, viðkvæm og persónuleg mál. Og einhvern
tima liefur verið skipuð nefnd á íslandi af minna
tilefni.
Það vakti athygli okkar, sem störfuðum að þess-
um undirbúningi, hve misjöfn kjör kvenna eru
hjá hinum ýmsu stofnunum. Þó manni virðist það
liggja í augum uppi, að þeir, sem vinna sömu eða
hliðstæð störf hjá einum og sama vinnuveitanda,
eigi rétt til sömu launa, þá virðist annað vera
uppi á teningnum.
Það er náttúrlega engin leið í stuttu erindi að
rekja starfssögu kvenna hjá mörgum stofnunum,
þó freistandi hefði verið, en þó langar mig til að
nefna hér eina stofnun, sem virðist ekki gera kon-
um sérlega hátt undir höfði i launamálum.
Af 18 konum, sem þar vinna, fyrirfinnst ekki
kona í 10. launaflokki, 1 kona í 11. launaflokki,
3 í 12., 6 í 13. og 7 i 14. flokki, auk einnar, sem
er sendill, en i skýrslunni var ekki tilgreint í hvaða
launaflokki hún væri, en hún hefur sjálfsagt ekki
kunnað á mótorhjóli og hefur þar af leiðandi ekki
rétt til 12. launaflokks. Mig langar til að taka hér
fáein einstök dæmi úr skýrslunni, sem okkur barst
þaðan. Þar vinnur kona í 12. launaflokki við venju-
leg skrifstofustörf, starfsaldur 23 ár. 1 athuga-
semdadálk er skrifað: (sömu störf og karlar í 9. fl.).
Kona í 13. launaflokki, starfsaldur 7 ár. I athuga-
semdadálk er skrifað: (starfið áður unnið af karl-
manni í 9. lfl.). Kona í 13. launaflokki, starfsald-
ur 4 ár. I athugasemdadálk er skrifað: (sömu störf
og karlmenn í 8. lfl.). Kona í 14. launaflokki, starfs-
aldur tvö ár. 1 athugasemdadálk er skrifað: (starf-
ið áður unnið af karlmanni í 10. launaflokki).
Kona í 14. launaflokki, störf: venjuleg skrifstofu-
störf. I athugasemdadálk er skrifað: (sömu störf
og karlar í 9. lfl.).
Hjá Flugráði fyrirfinnst ekki ritari, en ótrúlegt
er það samt, að þar sé aldrei sleginn stafur á rit-
vél. Hitt þykir mér líklegra, að forstjórinn þar
hafi skilning á þeim ömurlegu kjörum, sem ritur-
um eru búin, og hafi með einhverri lagni kom-
izt í kring um þetta starfsheiti, þótt ég viti það
ekki með vissu, þar sem við höfum ekki skýrslur
þaðan.
Þið hafið nú fengið svolitla nasasjón af því,
hvemig þessum málum er háttað og því óréttlæti,
16
19. JÚNl