19. júní


19. júní - 19.06.1963, Blaðsíða 31

19. júní - 19.06.1963, Blaðsíða 31
ið svo þjált, að þeir fái fullnægt löngunum sín- um og þrám, án þess að gjalda fyrir svo hátt verð, að síðar blandist mönnum hugur um, hvort það hnoss var dýrara, sem haldið var, en hitt sem ef til vil'l var innan seilingar. Og alltaf verða þeir margir, sem finnst lífið aldrei hafa léð sér neitt valfrelsi, en þvingað sig frá hugðarefnunum á veg skyldunnar, grýttan og torgenginn. Lífshamingja er ekki hugtak, sem mælt verð- ur sama mælikvarða hjá öllum, til þess eru ein- staklingarnir of ólíkir. En hitt eru menn sammála um, að flestir þeir verði glaðari menn, sem fá tækifæri til' að þroska hæfileika sína og njóta sem flestra þeirra við störf. Af rannsóknum mann- fræðinga mun nú glötuð sú trú, sem menn áður höfðu á því, að hreinust og dýpst væri lífshamingja þess fólk sem yndi við frumstæða lifnaðarhætti í hagstæðu umhverfi frá náttúrunnar hendi. Þeg- ar farið var að skoða niður í kjölinn samfélög flestra hinna frumstæðu náttúrubarna, kom í ljós, að margt skyggir á þeirra lífsgleði. Fjandsamlegir vættir búa hjá þeim í stokkum og steinum, þeir þjást af sjúkdómum m.a. vegna skorts á hreinlæti og sambúðarlögmál þeirra eru yfirleitt fjarri því að byggjast á góðvild og samúð. Sem sagt, sá efniviður, sem mannskepnan er af gerð reynist hvergi fullkominn, en hvert samfélag skapar sitt lífsform og tekst að vísu misvel um val þeirra hugsjóna, sem eftir er stýrt. Á því stigi, sem við nú stöndum hér, viljum við að saman fari „alefling andans og athöfn þörf“. Með bóklegri og verklegri menntun við hæfi, teljum við einstaklingnum sköpuð bezt þroskaskilyrði, þó að lengi megi deila um, hvaða tegund menntunar verði notadrýgst. Skoðanir eru einnig skiptar um það hvort konum og körl- um hæfi samskonar menntun, hvort það leiði ekki af eðlismun þeirra, að æskilegt sé að þau skipti með sér störfum í þjóðfélaginu. Hvað sem sérhæfingu líður, þá er víst, að mestur hluti al- mennrar menntunar notast jafnt konum sem körl- um til persónuþroska í þeim skilningi, sem nú- tímamenning er mæld. Enginn ber framar brigður á, að hver sú kona, sem aflar sér góðrar verkþekkingar standi betur að vígi í lífsbaráttunni en sú, sem litla sérkunn- áttu hefur, og það jafnt hvort starfssviðið, sem hún hefur valið sér, er ein grein þeirra starfa, sem framkvæma verður á hverju heimili eða ekki. Hins vegar hafa menn síður verið sam- mála um, hvort bóknám væri konum jafn hag- kvæmt og körlum. Ganga andmæli sumra svo langt, að þeir segja, að það sé sóun á fjármunum þjóðarinnar að kosta stúlkur til langskólanáms, og heimskuleg ráðstöfun á tíma stúlknanna að leggja í slíkt, þar sem flestar þeirra giftist og fari að eiga börn og hafi engin not af náminu. Þessi röksemdafærsla hefur mér alltaf þótt mjög einkennileg. Er þá menntun ekkert annað en aðferð til að auka fjáröflunarmöguleika fólks? Ef menntun leiðir ekki til frjórra andlegs lífs, þá er eitthvað bogið við það fóður, sem skólarnir bjóða nemendum sínum. Og hverjum er nauð- synlegra að eiga traustan forða andlegra verðmæta en konunum, sem eiga að vera félagar eiginmanna sinna og uppalendur barnanna? Er ekki sífellt klifað á því, að menn búi lengst og mest að þeirri fræðslu og siðgæðishugmyndum, sem þeir hafi tileinkað sér við móðurkné? Ef það er ekki grundvallarmisskilningur, að kynni af því, sem mest hefur þótt til koma í bókmenntum og öðrum listum, í heimspeki, trú- arbrögðum og fleiri greinum séu göfgandi og þroskandi, þá virðist auðsætt, að fáir hafi betri að- stöðu til að skila þeim áhrifum til komandi kyn- slóða en konurnar. Fyrir þeirra tilstilli ættu áhrif hinna mestu anda að eiga greiðastan gang inn í hversdagslíf manna og áhrif listanna að verða drýgst. Konan er að jafnaði meira á heimilinu en karlmaðurinn og mótar meira allan brag þess. Það er gott og blessað að koma saman á sýningum og söfnum til að njóta myndlistar, eða á hljóm- leikum til að hlusta á tónlist, en slíkt varir aðeins fáar stundir hins daglega lífs. Konan, sem ann list- um og veit á þeim einhver skil, leiðir áhrif frá þeim inn á heimili sitt hvern dag. Móðir, sem kennir barni sínu ljóð og segir því sögu, sem vekur forvitni þess á góðum bókmennt- um eða sveigir smekk þess á tónlist eftir eigin, þróuðum smekk, er virkur aðili í að miðla hinum mannbætandi áhrifum listanna. Hún fremur en nokkur annar aðili, getur vakið hjá æskufólki áhuga á hugðarefnum, sem endast alla ævina til þess, að frístundirnar auðgi líf þeirra, í stað þess að hverfa við neikvæðar lífsvenjur. Ef við miðum við það, að stúlka, sem hefur góða greind og er hneigð til bóknáms, ljúki stúd- entsprófi um tvítugt, giftist svo og stofni heimili, þá finnst mér vandséð, að hún sé verr á vegi stödd en stallsystir hennar, sem aðeins hefur lok- 19. JÚNÍ 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.