19. júní - 19.06.1979, Qupperneq 5
Rætt við
Guðbjörgu Guðmundsdóttur
Bam - fjölskylda - barátta
»Frá Kvenréttindafélaginu — á
eg að selja 19. JÚNÍ fyrir þær?“
heyrðist sagt skærri röddu, þegar
blaðamaður frá 19. JÚNÍ spurði
ebir Guðbjörgu Guðmundsdóttur,
Austurgerði 10, Reykjavík.
I engdadóttir hennar svaraði í
sirnann og þetta var það fyrsta,
sem hinni öldnu höfðingskonu
kom í hug, þegar Kvenréttindafé-
lag íslands var annars vegar —
söluherferð og barátta og hún ætl-
aði ekki að víla neitt fyrir sér, nú
fremur en endranær.
í tilefni af Alþjóðaári barnsins
var hún beðin að spjalla um börn,
fjölskylduna og annað það, er hún
kysi sjálf. Guðbjörg er fædd á
Seyðisfirði 2. nóvember 1898 og
varð því 80 ára síðastliðið haust.
Hún er há, beinvaxin, létt í spori
og hvik í hreyfingum, glaðleg, með
á nótunum og tilbúin að takast á
við hlutina.
Margar ævir
Þróunin hefur verið svo ör, að
^cr finnst ég hafa lifað margar
ævir, en cinu gildir hvaða thnabil
hefur verið í lífi mínu, ég hef alltaf
unnið. Foreldrar mínir voru að-
flutt á Seyðisfirði og ég kynntist
aldrei afa og ömmu, en ein föður-
systir mín kom til Seyðisfjaröar,
henni kynntist ég vel og við snerum
bökum saman.
A þessum árum var Seyðisfjörð-
ur miðstöð athafnalífs og í beinum
tcngslum við útlönd m. a. vegna
símans sem þar kom á land 1906.
3