19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 3
2. TBL. 1993
3
RITSTJÓRASPJALL:
Betur tná ef duga skal
Sól hefur hækkað á lofti en
samt eru þungbúin ský við
efnahagslegan sjóndeildarhring
íslensku þjóðarinnar. Aukið
atvinnuleysi er eins og mara á
þjóðfélaginu og mörgum reynist erfitt að
koma auga á sólina, sem þó er hæst á lofti
um það leyti sem 2. tölublað ársins kemur
út, á sjálfan kvennadaginn.
Atvinnuleysi er böl sem flestar þjóðir
eru að takast á við um þessar mundir með
misjöfnum árangri. Böl þetta á sér margar
hliðar og athyglisvert er
að hlýða á skoðanir at-
vinnulausra á Rás eitt í
Ríkisútvarpinu en þar er
nú sérstakur þáttur sem
fjallar um atvinnuleysi
og leiðir til að takast á
við það. Astæða þess að
um þetta er fjallað í leið-
ara 19. júní að þessu
sinni er sú að hvetja
konur til átaks - hvetja
nauðsynlegt að finna sér sameiginlegan
vettvang til að vinna að hagsmunum sín-
um. Einn slíkur vettvangur er Kvenrétt-
indafélag íslands, þetta 87 ára gamla félag,
sem hefur unnið að jafnréttismálum síðan
um aldmót. Sumir kunna að spyrja hverju
félagið hafi áorkað. Af mörgu er að taka og
gott dæmi um það er kjörgengi og kosn-
ingaréttur kvenna en stofnendur félagsins
voru í fylkingarbrjósti baráttunnar um
þetta mikla jafnréttismál. Algengt er að
heyra ungar konur, sem nýkomnar eru út á
konur til samheldni og
nýsköpunar. Víða er sótt Ritnefnd 19. júní starfsárið 1993: Neðri röð f.v. Bryndís Kristjánsdóttir, Kristín
að konum á vinnumark- Leifidóttir, Inga Dóra Sigfúsdóttir. Efri róð f.v. Sigrún Sigurðardóttir, Valgerður K.
aðinum og er þeim því Jónsdóttir, ELlen Ingvadóttir, Steinunn Jóbannesdóttir og Stefanía Traustadóttir.
vinnumarkaðinn, velta því fyrir sér hvort
jafnréttisfélög séu virkilega nauðsynleg.
Svarið er því miður já. A undanförnum ár-
um hefur KRFÍ haldið ýmis námskeið til
þess að kynna konum rétt sinn og efla þær
til dáða. S.l. vetur var haldinn fjöldi nám-
skeiða sem allflest voru vel sótt. Félagatalan
hefur aukist hröðum skrefum á undanförn-
um mánuðum en betur má ef duga skal. Eru
lesendur blaðsins eindregið hvattir til að hafa
samband við skrifstofu KRFI og skrá sig í fé-
lagið. Það er opið öllum er vilja réttlátt þjóð-
félag - þjóðfélag jafnréttis
kynjanna!
Fyrsta tölublaði 19.
júní á árinu, blaði í
breyttri mynd, var vel
tekið. Samstarf KRFÍ og
Jafnréttisráðs í útgáfum-
álum er ánægjulegt og
gefur vonum um gott
framhald byr undir báða
vængi.
19. júní óskar þjóð-
inni til hamingju með
kvennadaginn.
19. júní
2. tbl. 43. árgangur
1993
Utgefandi:
Kvenréttindafélag íslands
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ellen Ingvadóttir
Prófarkalesari:
Þórdís Kristleifsdóttir
Ljósmyndir:
Rut Hallgrímsdótdr
og fl.
Auglýsingar:
Sigrún Gissurardóttir
Utlit, setning, prentun og
bókband:
Prentsmiðjan Oddi
EFNISYFIRLIT:
3 Ritstjóraspjall
4Hin tvöfalda mismunum fatlaðra
kvenna.
í þessari sláandi grein fjallar Inga Dóra
Sigfúsdótdr um lífsskilyrði fatlaðra
kvenna, atvinnumöguleika þeirra o.fl.
10
Bakslag - eða ný sókn?
Hvernig lítur ísland út í augum íslenskr-
ar konu sem dvalist hefur erlendis um
nokkurra ára skeið? Steinunn Jóhannes-
dóttir svarar því.
14
Bókmenntasýn: í þessum nýja þætti í
19. júní gefst lesendum kostur á því að
tjá sig um bókmenntir fýrr og nú. „Að
vera litterær dama“ er grein eftir Elínu
Oddgeirsdóttur.
15
18
Fréttir úr starfi Kvenréttindafélags ís-
lands
Að „kjarna“ jafnréttið er athyglisverð
grein eftir Valgerði K. Jónsdóttur um
Hjallastefnu Margrétar Pálu Ólafsdóttur
fóstru en stefna þessi hefur hlotið mikla
athygli.
23
VOG skrifstofu jafnréttismála: Fréttir af
starfi Jafnréttisráðs og kærunefndar.
Umfjöllun um ýmsar aðkallandi spurn-
ingar í launmálum, mismunun á vinnu-
stöðum, kynferðislega áreitni o.fl.
30
Karlmenn aðalhindrunin: Fyrir skömmu
hélt Anita Roddich, stofnandi og eigandi
Body Shop verslunarkeðjunnar, fróðlegt
erindi í Reykjavík. 19. júní var að sjálf-
sögðu á staðnum.
32
Konunum hefur aldrei dottið í hug að
þær væru síðri en karlmenn, segir Hildur
Petersen framkvæmdastjóri í viðtali við
Bryndísi Kristjánsdóttur.
Hún stýrir menningarmálanefnd Norð-
urlandaráðs. Rannveig Guðmundsdóttir
fékk ekki mikinn undirbúningstíma þeg-
ar hún tók við formennsku í þessari
stóru nefnd.
Punktafréttir 19. júní hafa vakið verð-
skuldaða athygli. Blaðið heldur áfram að
líta á atburði innanlands og utan með
mismunandi alvarlegum augum.