19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 15
2. TBL. 1993
15
Ný stjórn KRFI kosin á aðalfundi félagsins í mars sl.
Fréttir úr starfi KRFÍ
Umsjón: Lilja Ólafsdóttir
Ekki er svo ýkja langt síðan 19. júní kom
út síðast. Samt er þó nokkuð í frásögur
færandi af atburðum síðan þá.
Mýjar leiðir í uppeldis- og
kennslumálum
Þann 27. mars var haldinn morgunverðar-
fundur á kaffihúsinu Sólon Islandus. Þar
ræddu Kári Arnórsson, skólastjóri, Kristján
Magnússon, sálfræðingur, Margrét Pála
Ólafsdóttir, forstöðumaður, Páll Skúlason,
prófessor og Ragnhildur Bjarnadóttir, lekt-
or um nýjar og áhugaverðar leiðir í upp-
eldis- og kennslumálum frá sjónarhóli jafn-
réttis.
Fundurinn var afar vel sóttur og líflegar
íyrirspurnir og umræður að loknum hin-
um ágætustu framsöguerindum. Greinilegt
er að þetta efni er ofarlega í hugum fólks.
Við höfum líka orðið varar við að
laugardagsmorgnar eru vinsæll fundartími
yfir veturinn. Verður reynt að taka mið af
þeirri reynslu í starfmu næsta vetur.
Aðallundur
félagsins var haldinn 29. mars. Að sjálf-
sögðu voru þar fyrst og fremst á dagskrá
hefðbundin aðalfundarstörf, en einnig
flutti Stefanía Traustadóttir, félagsfræðing-
ur á Skrifstofu jafnréttismála, erindi um
kynferðislega áreitni á vinnustöðum.
Ályktun
Ástandið í málefnum fæðandi kvenna hef-
ur verið ofarlega á baugi í vetur. Því var á
aðalfundinum samþykkt eftirfarandi álykt-
un:
Aðalfundur Kvenréttindafélags íslands,
haldinn í Reykjavík 29. mars 1993, skorar
á heilbrigðisyfirvöld að leita tafarlaust leiða
til varanlegra úrbóta á því ófremdarástandi
sem ri'kir í málefnum fæðandi kvenna á höf-
uðborgarsvæðinu, þar sem fjöldi fæðinga
hefúr farið langt fram úr þeim fjölda sem
Kvennadeild Landspítala er ætluð fyrir.
Stjórnarkjör
Eins og félagsmönnum er kunnugt er hluti
af stjórn félagsins kjörinn á landsfundi til
fjögurra ára en hluti stjórnar kjörinn á að-
alfundi. Stjórnarmenn kosnir á aðalfundi
sitja í tvö ár. Stjórnarmenn kosnir á aðal-
fundi eru nú:
Aðalmenn:
Inga Jóna Þórðardóttir, formaður
Jónína Margrét Guðnadóttir, varaformaður
Ellen Ingvadóttir, ritari
Lilja Ólafsdóttir, gjaldkeri
Bryndís Hlöðversdóttir, meðstjórnandi
Varamenn:
Guðný Benediktsdóttir
Hulda Karen Ólafsdóttir
Ragnhildur Hjaltadóttir
Stjórnarmenn kjörnir á landsfundi:
Gerður Steinþórsdóttir
Oddný Vilhjálmsdóttir
Ragnhildur Vigfúsdóttir
Sigrún Jonny Sigurðardóttir
Soffía Guðmundsdóttir
Til vara:
Áslaug Brynjólfsdóttir
Dóra Guðmundsdóttir
Elsa S. Þorkelsdóttir
Guðiún Hallgrímsdóttir
Mikið fölmenni var á fundi KRFI á Café Sólon íslandus í mars en par var fallað um
nýjar leiðir í uppeldis- og kennslumálum.