19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 22
22
2. TBL.1993
Viðhorf eru lífieigari en lög og þau breytast ekki nema unnifí sé markvisst gegn þeim.
skal í forskólum og jafnvel í skólakerfinu?
Margrét Pála segir að vinna þurfi markvisst
að því að styrkja þá þætti sem lenda milli
stafs og hurðar í blönduðum hópi. „Blönd-
un sem aðferð hefur ekki dugað, svo skipt-
ing í einhverjum mæli bíður á þröskuldi
skólakerfisins, skipting sem stefnir að já-
kvæðri blöndun síðar meir,“ segir hún. A
Akureyri var gerð tilraun til að kynjaskipta
börnum í 8. bekk gagnfræðaskólans þar og
í ljós kom umtalsverður munur á árangri
kynjanna, stúlkunum í hag. Þær virðast
ánægðari með að vera í hópi kynsystra
sinna en strákarnir með kynbræðrum sín-
um enda hafa rannsóknir sýnt að strákarnir
fá mun meiri athygli, hvatningu og tíma
en stelpurnar í blönduðum deildum og
skiptir þá engu hvort kennarinn er karl-
eða kvenkyns.
Orkuflutningur frá konum til
karla
í lokaskýrslu um kynskiptar deildir við
Gagnfræðaskóla Akureyrar bendir Valgerð-
ur Bjarnadóttir, félagsráðgjafi og einn af
meðlimum stjórnarnefnda verkefnisins, á
þær kenningar, sem hafa verið settar fram
af Onnu G. Jónasdóttur stjórnmálafræð-
ingi og Lynn Andrews rithöfundi, að mik-
ill orkuflutningur fari frá konum til karla í
samskiptum þeirra. Karlar hafi þannig í
margar aldir nýtt sér orku eiginkvenna og
ástkvenna til að ná árangri í starfi. Konan
gefur manninum orku með því að veita
honum ást, athygli, umhyggju og aðdáun,
sjái um að hann sé hreinn og saddur og
kynferðislega fullnægður. Ef konan upp-
fyllir ekki þessar þarfir leitar maðurinn eft-
ir orku frá annarri konu, svo sem ástkonu,
móður eða systur. Þetta orkuflæði hefur
einnig færst yfir á önnur svið, svo sem á
konur sem eru aðstoðarmenn ráðherra,
varaformenn og fleira þess háttar. Því sé
ekki ólíklegt að þetta orkuflæði sé einnig
til staðar í blönduðum bekkjum, þ.e. að
strákarnir fái ókeypis orku frá stelpunum á
kostnað þeirra sjálfra.
Ágætu konur og aðrir lesendur þessa blaðs
Plöntusalan
í Fossvogi
býður ykkur og öllum landsmönnum úrval
trjáa og runna, skógarplöntur í bökkum,
kraftmold á stofublómin og ráðgjöf í vanda.
Opið 8-19, um helgar 9-17
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Fossvogsbletti 1, sími 641770 og 641777