19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 24
24
1. TBL.1993
llvað varð um
karlanefndina?
Heldur hefur verið hljótt um nefnd þá
sem félagsmálaráðherra skipaði til að
fjaila um stöðu karla í breyttu samfélagi
með jafnari verkaskiptingu og fjöl-
skylduábyrgð en nefndin gekkst fyrir af-
ar fjölmennri og velheppnaðri ráðstefnu
vorið 1992 þar sem staða karla var
rædd frá alveg nýjum sjónahóli.
Af nefndinni er það helst að frétta að
hún er þessa dagana aö leggja síðustu
hönd á lokaskýrslu sína til ráöherra um
breytta stöðu karla og leiðir til aö auka
ábyrgð þeirra á fjölskyldulífi og börnum.
Skrifstofu jafnréttismála hafa borist
drög að þessari skýrslu og er hún um
margt fróðleg lesning. Þar er m.a. að
finna ýmsar athyglisverðar tillögur til
ráöherra um úrbætur í þessum málum.
Nefndin leggur m.a. til að sjálfstæður
réttur feðra til fæðingarorlofs veröi
Árið 1995 er kannski langt undan og
þó - undirbúningur fyrir næstu kvenna-
ráðstefnu Sameinuöu þjóðanna er að
minnsta kosti hafinn. Ráðstefnan verð-
ur í Peking 4. til 15. seþtember 1995.
Búiö er að ráða aðalframkvæmdastjóra
ráðstefnunnar en þaö er Gertrude
Mongella frá Tansanfu. Gertrude Mong-
ella hefur gegnt ýmsum ráðherraem-
bættum í heimalandi sínu, m.a. um
málefni kvenna. Hún hefur tekið þátt í
mörgum ráöstefnum og margs konar al-
tryggður að lögum en þessi krafa hefur
oröiö sífellt háværari á undanförnum
misserum. Kærunefnd jafnréttismála
hefur nú til meðferðar tvö mái frá feðrum
sem eiga engan rétt til töku fæðingar-
orlofs. Þaö má einnig skjóta því hér inn
að í sænska þinginu kom nýlega fram til-
laga til breytingar á lögum um almanna-
tryggingar, þess efnis að feður fái sjálf-
stætt eins mánaðar fæðingarorlof og
tekjutap bætt að fullu. Þessi mánuöur
skyldi eingöngu ætlaður feörunum þann-
ig að ef þeir nýttu sér ekki þessi réttindi
sín innan tiltekins tíma féllu þau sjálf-
krafa niður. Ekki var talið líklegt að þessi
breytingartillaga næði fram að ganga en
hugmyndinni hefur veriö varpað á loft og
er hún vissulega athyglisverð.
Tvær tiilögur nefndarinnar snúa beint
að Jafnréttisráði og starfsháttum Skrif-
þjóðastarfi um stöðu kvenna og var t.d.
formaður Afríkuhópsins á síðstu kvenna-
ráðstefnu Sameinuöu þjóðanna, sem
var í Nairobi I Kenýja árið 1985.
Samhliða hinni oþinberu ráðstefnu
munu kvennarhreyfingarnar og ýmis
grasrótarsamtök væntanlega skipu-
leggja sitt þing. Peking er langt í burtu
og kannski verða íslenskar konur og ís-
lensk grasrótarsamtök þar fá. En von-
andi getur einhver mætt.
stofu jafnréttismála. Annars vegar legg-
ur nefndin til að starfshættir Jafnréttis-
ráðs verði gerðir víötækari og að stuðl-
að verði að því aö ráðið fýlgi eftir
umræðum um málefni karla. Nauðsyn-
legt sé aö beita kynjakvóta við tilnefn-
ingar I ráðið. Hins vegar er lagt til að
gerðar verði breytingar á áherslum I
starfsemi Skrifstofu jafnréttismála
þannig að sjónarmið karla fái þar meira
vægi en veriö hefur. Skiþuð verði sér-
stök ráögjafamefnd til tveggja ára sem
hafi það hlutverk að auka hlut karla í
jafnréttisumræðunni og tryggja að sjón-
armið þeirra komist til skila. Einum
starfsmanni skrifstofunnar verði falið
að fylgja ákvörðunum nefndarinnar eft-
ir.
Af öörum tillögum til ráðherra í
skýrslu karlanefndar má nefna tilmæli
um aö fundin verði meðferðarúrræði fýr-
ir ofbeldismenn, að kannað verði hvort
feður hafi áhuga á aö taka fæðingar-
orlof og/eða axla aukna fjölskyldu-
ábyrgð og að jafnframt verði könnuð
viðhorf þeirra til jafnlauna og jafnstöðu
kynjanna. Þá hvetur nefndin til þess að
rannsókn verði gerð á úrskurðum í for-
sjár- og umgengnisréttarmálum til að
leiða í Ijós stöðu feöra I forsjárdeilum
og umgengnisréttarmálum til að skýra
hvað ráöi úrskurðum. Jafnframt verði
forsjárlausum feörum tryggt, svo sem
kostur er, samneyti við börn sín og að-
stoð ef misbrestur verður þar á.
Margar fleiri tillögur er að finna í
skýrslunni en hér hefur aðeins verið
tæpt á nokkrum þeirra. Fróðlegt veröur
að fylgjast með hverjar af þessum til-
lögum koma til framkvæmda.
R.H.
Fjórða alþjóðaráðstefna Samein-
uðu þjóðanna um málefni kvenna