19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 31
2. TBL. 1993
31
rekstrinum fékk ég ekki lánið. Það þurfti
hins vegar eiginmann minn til að lánið, lít-
il 4,000 pund, fengist. Sennilega trúa
bankastjórar eiginmönnum betur en kon-
um í gallabuxum með börn á arminum."
Það vakti athygli á fundinum, er Anita
svaraði fyrirspurn frá 19. júní um hindran-
ir í vegi kvenna í viðskiptaheiminum, að
einn fundarmanna spurði hvort hún ynni
gegn karlmönnum. Anita var snögg til
svars er hún sagði að slíkt væri fráleitt en
benti á að sér fyndist það augljóst að konur
ættu erfitt með að hasla sér völl innan
stórra fyrirtækja einfaldlega vegna þess að
karlmenn settu þeim stólinn fyrir dyrnar.
Hún sagði jafnframt að konur lentu oftar
en ekki í því að sinna svokölluðum „mjúk-
um“ málum innan fyrirtækjanna einfald-
lega vegna þess að þær hafa annan stjórn-
unarstíl og framgöngu en karlmenn. „Við
konur verðum hins vegar að byrja á því að
sýna hugrekki og láta ekki bugast í barátt-
unni fyrir viðurkenningu á hæfni okkar — á
öllum sviðum!" Þess má geta að lokum að
Anita Roddich hefur hlotið fjölda alþjóð-
legra viðurkenninga fyrir störf að umhverf-
is-, þróunar- og mannréttindamálum.
NORRÆNA HÚSIO
POHJOLAN TALO
NORDENS HUS
R 17030
Velkomín í Norræna
húsið — þar er alltaf
eitthvað að gerast
KAFFISTOF.AN:
Gómsætir réttir fást við vægu verði.
Dagblöð frá Norðurlöndum liggja frammi.
Opið virka daga kl. 9—19
sunnudaga kl. 12—19
BÓKASAFNIÐ er opið virka daga kl. 13—19
sunnudaga kl. 14—17
Norrænar fagurbókmenntir og fagtímarit.
SÝNINGARSALIR í kjallara: Árið um kring
sýningar á norrænni list og listiðnaði.
BONUS