19. júní


19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 23
1. TBL. 1993 23 SKRIFSTOFU JAFNRÉTTISMÁLA Ábyrgðarmaður: Elsa S. Þorkelsdóttir Hvað varð um karla- nefndina? Fjórða alþjóðaráð- stefna Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna Starfsmat - tæki í jafnlaunabaráttunni Alþingi samþykkir framkvæmdaáætlun á sviði jafnréttismála Rannsókna á launa- myndun - nýr flötur á umræðunni um launamál kvenna og karla Landsfundur jafn- réttisnefnda sveitar- félaga Sömu laun og þeir Hart tekið á kynferð islegri áreitni á vinnustað hjá dönsk- um dómstólum Leiðir lcrafa atvinnulífsins um aukna hagræðingu til þess að misréttið á vinnumarkaði aukist? Umræðan um stöðu kvenna á vinnumarkaði er í hugum okkar margra jafn gömul umræðunni um jafnrétti kynja. Svo kunnuglega hljómar í eyrum okkar krafan um launajafnrétti og krafan um fjölgun kvenna í stjórnunar- og ábyrgðar- störfum, svo dæmi séu tekin. Þó svo okkur finnist oft að lítið hafi miöað þá er staöreyndin sú að aukin menntun kvenna hefur fært þeim aukna ábyrgð og tryggari stöðu á vinnumarkaði. Því til stuðnings má benda á nýjustu vinnumarkaðskönnun Hagstofunn- ar en samkvæmt henni virðist sem konur haldi sínum hlut á vinnumarkaði og gott betur, þrátt fyrir samdrátt í atvinnulífinu og aukið atvinnuleysi. Er þá aðeins horft til starfa kvenna og karla. Enn virðist sorglega lítið miöa í þá átt að draga úr launamisrétti kynj- anna. Margar kannanir hafa verið gerðar á starfsvali og kjörum kvenna og karla. Minna hefur hins vegar verið gert af því að skoða starfsgreinar þeirra og þær kröfur sem geröar eru í hinum ýmsu starfsgreinum. Getur það t.d. verið að ábyrgð og álag sé minna metiö og síð- ur viðurkennt I kvennastörfum en karlastörfum? í um- ræðunni um launajafnrétti hefur því verið haldiö fram. Getur það verið að innan hefðbundinna kvennastarfs- greina sé síður viðurkennd þörfin á stjórnunarstörfum? Sú fullyröing hefur heyrst. Á undanförnum vikum hefur nokkur umræða verið um verksvið og ábyrgð hjúkrunar- fræðinga. í tengslum við þá umræðu vaknar óhjá- kvæmilega sú spurning hvort bein tengsl séu milli kröf- unnar um sparnað og aukna hagræöingu á vinnumark- aði og þess að dregið er úr vægi og virðingu kvennastarfsgreina. Öil þekkjum við dæmi um að ef á að hagræða er byrjað á ræstingarstörfum. Eru stjórn- unarstörf í kvennastarfsgreinum næst á dagskrá? Ýmis teikn eru á lofti sem benda til að konur þurfi að vera sérstaklega vel á verði og bregðast hart viö ef þeim finnst vegið aö störfum sínum og starfsgreinum. Krafan um hagræöingu má ekki verða til þess aö auka misréttiö á vinnumarkaði. Þvert á móti er krafan aö því misrétti verði útrýmt. E.S.Þ.

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.