19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 37
2. TBL. 1993
37
Það skiptir talsverðu máli að vera starfandi
heima fyrir í þingnefnd af sama toga og
núorðið er farið að tala um þetta sem já-
kvæðan þátt í því að tengja saman störf
þeirra sem eru að vinna í Norðurlandaráði
og þeirra sem eru að vinna á þjóðþingun-
um. Það hefur vantað að áherslurnar sem
verið er að leggja í Norðurlandaráði skili
sér inn í störfin í þjóðþingunum og þar
með samfélögin okkar. Til ráðstefnunnar í
Færeyjum buðum við fulltrúum frá menn-
ingarnefndum þjóðþinganna og mynduð-
um þannig tengsl sem ég trúi að verði já-
kvæð í samstarfmu."
-Hver eru helstu verkefnin á vegum þinn-
ar nefndari
„Þegar ég kem inn í þessa nefnd sem
formaður eru að verða heilmiklar breyting-
ar í samstarfinu í Norðurlandaráði. Oll
löndin eru með áætlanir um að fara í nán-
ara Evrópusamstarf, þ.e.a.s. að verða þátt-
takendur í Evrópska efnahagssvæðinu og
þrjú landanna eru að ákveða að sækja um
aðild að Evrópubandalaginu en Danmörk
er aðili nú þegar. Forsætisráðherrar land-
anna létu því endurmeta samstarfsverkefni
Norðurlandanna; skoða hver þeirra ættu
að hafa forgang þegar löndin fara að vera
með í miklu stærra samstarfi. Akveðið var
að leggja höfuðáherslu á menntamál og
jafnframt á rannsóknir og fræðslumál, um-
hverfismál, réttindamál þegna — þar með
félags- og neytendamál, efnahagsmál, sjáv-
arútvegsmál og löggjafamál. Jafnframt var
ákveðið að menningarmálin fengju nýtt og
aukið gildi. Við þessar aðstæður kom ég
inn sem formaður.
A Norðurlandaráðsþingi var síðan ákveðið
að árið 1996 fái menningarmálin 50% af
fjárlögum Norðurlandaráðs. Sem sagt að
auka við þau um 25% á næsta ári og svo
aftur á þarnæsta ári. Það eru 40 stofnanir
starfræktar í Norðurlandaráði og u.þ.b.
800 verkefni í gangi hverju sinni, þannig
að næstum er hægt að segja að eitt verkefni
fari í gang á hverjum degi. Þarna er ákveð-
ið að skera skuli niður á öllum öðrum svið-
um en menningarmálunum og færa fjár-
magnið þangað. í ljós kom, sem er mjög
eðlilegt, að það var talsverður sársauki í
mörgum þeirra sem þurfa að fara að draga
saman. Það var því mjög sérkennileg staða
að vera formaður menningarmálanefndar
Norðurlandaráðs og uppgötva skyndilega
ergelsi og allt að því andúð allra þeirra sem
eiga að skera niður til að við fáum þá pen-
inga sem að er stefnt!“
Allir nemendur á
Norðurlöndiiniini lái ad
heimsækja annað land
-Á hvaða þiztti menningarmála á að leggja
áherslu?
„Nefndin er alveg sammála um að leggja
fyrst og fremst áherslu á fjögur meginsvið:
Fjölmiðlasvið, börn og unglinga, nemenda-
skipti og önnur skipti, og tungumálasvið.
Fjölmiðlar ná sterkast til fólks — ekki síst
barna og unglinga — og má þar nefna fram-
leiðslu og dreifingu efnis. Samstarf um mál-
efni barna og unglinga almennt, nemenda-
skipti og kennaraskipti. Reyna að koma á
skiptum fólks sem starfar á sviði menningar
og lista. Efla Nordplus en þar er fólki í fram-
haldsnámi gert kleift að taka hluta námsins í
einhverju hinna Norðurlandanna. Nordplus
Junior styður fólk á framhaldsskólastiginu til
að komast í smátíma í heimsókn í skóla í
öðru landi. Á sviði nemendaskipta hefur ver-
ið lögð sú lína í menningarmálanefndinni að
stefna beri að því að hver nemandi á Norð-
urlöndunum geti farið einu sinni til dvalar
eða heimsóknar til einhvers annars af Norð-
urlöndunum!
Nordjobb viljum við gera að varanlegu
verkefni en það er starfsmiðlun fyrir ungl-
inga til að fá sumarstarf í einhverju hinna
Norðurlandanna. Þetta hefur verið feyki-
lega vinsælt og hefur stuðlað að varanleg-
um samskiptum ungs fólks á Norðurlönd-
unum. Samstarf á norrænu tungumálasviði
verður að efla, t.d. með því að auka nor-
rænt efni í námsbókum og á fjölmiðlasviði,
ekki síst vegna aukinna alþjóðlegra áhrifa.
Menningarmálanefndin leggur afar mikla
4 %
JB.
RIO KAFFI
Hörku gott
kaffi
Sætún 8, 125 Reykjavík. Sími 6 24 000