19. júní


19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 13

19. júní - 19.06.1993, Blaðsíða 13
2. TBL. 1993 13 Nauðsyn samstöðu Einn athyglisverðasti kafli bókarinnar heitir Standið saman og þar tekur höfund- ur á ýmsum innri vandamála kvennahreyf- inga sem venjulega geri vart við sig og hamli árangri í starfi. Hún tekur dæmi af vantrausti kvenna á kynsystrum sínum og undirstrikar nauðsyn þess að konur bendi á kosti hverrar annarrar og byggi hver aðra upp. Hún segir að grundvallarforsenda þess að konum takist að ná völdum og áhrifum sé að þær standi saman og ekki bara í litlu hópunum, þar sem þær þekki og dái hver aðra, heldur þurfi líka víðtæka kvennasamstöðu sem nái út um allt sam- skiptanetið sem þær eru búnar að koma sér upp. Þegar komið er að því að eitthvert karlavígið er að falla segir Inger Arlemalm að ekki sé rúm fyrir persónulega andúð eða ólíkar skoðanir í einstökum málum. Þá er „órjúfandi samstaða kvennahópsins lífs- spursmál." Um leið bendir hún á klofn- ingshættuna sem svo oft geri vart við sig þegar fyrstu konurnar eru að ná markinu og þeim bjóðast áhrif og völd. Bakslag eða ný sókn? Þetta eru engin ný sannindi og þau gilda jafnt um aðra hópa sem berjast fyrir því að rétta hlut sinn. A úrslitastund er samstaðan afar mikilvæg en þá er líka hættan mest á að hún bresti ef ólíkir hagsmunir rekast á. Þrátt fyrir marga merka landvinninga í ís- lenskri kvennabaráttu er Ijóst að staða kvenna á Islandi er almennt mun lakari en staða kynsystra okkar annars staðar á Norðurlöndum. Að sumu leyti er um að kenna skorti á samstöðu og ég leyfi mér að halda því fram að nokkur góð tækifæri hafi farið forgörðum á liðnum árum þar sem hæfar konur hafa verið reiðubúnar að taka við völdum og ábyrgð í ríkisstjórn, borgar- stjórn og fleiri háum embættum en skort stuðning kynsystra sinna, bæði innan eigin flokka og yfir flokkalandamæri, til ná því marki. Nýjasta kvennabókin sem nær metsölu á Vesturlöndum er Bakslagið (Backlash The Undeclared War Against Women) eftir bandaríska rithöfundinn Susan Falludi. Bæði bókin og bakslagið fengu mikla og góða umfjöllun í seinasta tölublaði Veru. Á næsta ári verða bæjar- og sveitarstjórnar- kosningar á Islandi og því er um ár til stefnu til að koma í veg fyrir að bakslag geri bága stöðu íslenskra kvenna enn bág- ari. Ég vil undirstrika þá skoðun mína, sem ég byggi á fenginni reynslu, að það sé beint samhengi á milli þátttöku kvenna í félags- og stjórnmálum og kjara kvenna og barna í þjóðfélaginu almennt. Konur á Norðurlöndum haf náð lengra sem hópur en konur nokkurs staðar annars staðar í heiminum. Ég tel fulla nauðsyn á að ís- lenskar konur taki baráttuaðferðir sínar til endurskoðunar og ég er sannfærð um að margt má af okkar norrænu kynsystrum læra. Beygjum okkur ekki undir bakslagið. Blásum heldur til nýrrar sóknar. ÆMk HANS PETERSEN HF TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTA KODAK LJHJJMiim ^arbtx n k BUNAÐARBANKINN Traustur banki Verðtrygging og háir raunvextir. Vextir bókfærðir tvisvar á ári. Lausir til útborgunar eftir það. Hver innborgun bundin í 30 mánuði.* Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar. Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma. Lántökuréttur til húsnæðiskaupa. Lánsupphæð hámark 2,5 milljónir til allt að 10 ára. * Ef nauðsyn bcr til getur reikningseigandi sótt um heimild til úttcktar á bundinni fjárhæð gcgn innlausnargjaldi. M STJÖRNUB0H V BÚNAÐARBANKANS Þar sem öryggi og hámarksávöxtun fara saman IXIXIXIXIXIXIXIXIXIXIXIXIXIX^ IVÍTA HÚSIO / SÍA

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.