Fréttablaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 8
8 2. desember 2010 FIMMTUDAGUR
1 Hver er stofnandi Wikileaks?
2 Hver er fyrirliði kvennalands-
liðsins í fótbolta?
3 Hvort er orðið Hagkaup í
eintölu eða fleirtölu samkvæmt
nýjum leiðbeiningum Íslenskrar
málnefndar?
SVÖR
1. Julian Assange 2. Rakel Dögg Braga-
dóttir 3. Eintölu
MENNING Skrifpúlt Sveinbjarnar Egilsson-
ar, kennara, þýðanda og skálds, var í gær
afhent til varðveislu á Bessastöðum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
veitti púltinu viðtöku úr hendi afkomenda
Ragnars Ásgeirssonar garðyrkjuráðunauts,
bróður Ásgeirs forseta. Ragnar keypti púlt-
ið af Einari Benediktssyni skáldi þegar sá
síðarnefndi fór í Herdísarvík á sínum tíma.
Skrifpúltið er sögulegur gripur enda voru
mörg snilldarverk úr bókmenntasögunni
unnin við það.
Sveinbjörn var kennari í Bessastaðaskóla
fyrir um 200 árum og fyrsti rektor Lærða
skólans. Samhliða skólastörfum þýddi hann
forn grísk rit, orti ljóð og mótaði rannsókn-
ir á texta um íslenska tungu.
Hann þýddi á íslensku kviður Hómers,
sex samræður Platons og önnur forngrísk
rit. Jafnframt íslenskaði hann Opinberun-
arbók Biblíunnar, aðra Mósebók og Spá-
mannabækurnar. Þá þýddi hann Snorra-
Eddu og Íslendingasögur á latínu og orti
jólasálminn Heims um ból eftir þýskri fyr-
irmynd.
Sveinbjörn orti líka barnakvæðin ástsælu
Fljúga hvítu fiðrildin og Fuglinn segir bí
bí bí.
Benedikt Gröndal, sonur Sveinbjarn-
ar, eignaðist púltið og vann við það. Hann
var náttúrufræðingur og rithöfundur og
lauk meistaraprófi í norrænum fræðum við
Hafnarháskóla, fyrstur Íslendinga. Líkt og
faðir hans kenndi Benedikt við Lærða skól-
ann auk þess að teikna, yrkja ljóð og semja
sögur og leikrit.
Síðar eignaðist Einar Benediktsson púlt-
ið. Eins og Sveinbjörn og Benedikt vann
Einar við púltið að ýmsum sinna þjóðþekktu
verka.
Skrifpúltið hefur lengi fylgt ætt Ragnars
Ásgeirssonar. Létu afkomendur hans gera
það upp. Það verður fært á þjóðminjaskrá
og varðveitt á Bessastöðum um ókomna tíð.
bjorn@frettabladid.is
Mörg snilldarverk unnin
við skrifpúlt Sveinbjarnar
Skrifpúlt Sveinbjarnar Egilssonar hefur verið afhent til varðveislu á Bessastöðum. Við púltið vann hann, og
síðar Benedikt Gröndal og Einar Benediktsson, að mörgum snilldarverkum bókmenntanna.
Í sögu Bessastaða sem kom út árið
1947 segir Vilhjálmur Þ. Gíslason:
„Sveinbjörn Egilsson er tákn hins
besta og lífshæfasta í Bessastaða-
skóla. Og meira en það. Hann er
ímynd þess, sem þróttmest var og
fágaðast í íslenskum menntum
á 19. öld. Í eðli hans og störfum
þrinnast saman sterkustu og
fínustu þræðir íslenskra mennta
og íslensks manngildis eins og
það var spunnið öldum saman úr
þjóðlegum fræðum og innlendu
sögueðli og úr klassískri mennt og
kristinni kenningu. Í engum íslensk-
um manni síðari alda, sem látið
hefur eftir sig ritaðar heimildir, hafa
þessir þrír máttarviðir menningar-
innar komið eins vel fram, hvergi
hafa þeir mótað annan mann svo
einsteyptan og heilsteyptan eins og
Sveinbjörn Egilsson, engan mann
með eins lifandi og gullnu jafnvægi
milli lærdóms og listar og lífs.“
Gullið jafnvægi
SKRIFPÚLTIÐ AFHENT Afkomendur Ragnars Ásgeirssonar afhentu í gær
púltið til varðveislu á Bessastöðum. Það stendur nærri brjóstmynd af
Ásgeiri Ásgeirssyni, fyrrverandi forseta, bróður Ragnars. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HAGANLEGT Ljóst er að vandað var til verka við smíði skrifpúltsins á
sínum tíma. Afkomendur Ragnars létu gera það upp eftir kúnstarinnar
reglum áður en þeir afhentu það til varðveislu á Bessastöðum.
EIGENDASAGAN Í púltinu er að finna
skjal yfir eigendur þess. Fyrstur var
Sveinbjörn Egilsson, þá Benedikt Grön-
dal, svo Einar Benediktsson, þá Ragnar
Ásgeirsson svo Úlfur Ragnarsson og loks
Ragnar Önundarson.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Humar2000 kr.kg
Skötuselur
Sjáumst eldhress
á eftir.
Skatan er klár í slaginn
Skelflettur Humar5900 kr.kg
2890 kr.kg
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
SVISS, AP Miklir kuldar og óvenju-
mikil snjókoma torvelda fólki
lífið víða í Evrópu þessa dagana,
einkum þó norðan til í álfunni.
Að minnsta kosti átta manns
hafa orðið úti í Póllandi og flug-
völlum hefur þurft að loka í Bret-
landi, Danmörku og Sviss, auk
þess sem þúsundir bílslysa hafa
orðið, þar af tvö þúsund í Þýska-
landi í fyrrinótt.
„Það er óvenjukalt loft yfir
stórum hluta austanverðs Atl-
antshafs og þegar það mætir
hlýju lofti, til dæmis frá Miðjarð-
arhafinu, fáum við mikið af snjó,“
segir Hainz Maurer, veðurfræð-
ingur í Sviss.
Frostið var víða 20 til 30 stig á
Celsius og spáð er miklum næt-
urkuldum áfram en í dag ætti að
draga úr snjókomunni.
Loka þurfti Gatwick-flugvelli
við London í gær og þurfti af þeim
sökum að fresta um 600 flugferð-
um. Einnig þurfti að loka flugvell-
inum í Genf og miklar tafir urðu
á flugvellinum í Zürich.
Í Danmörku voru íbúar á Sjá-
landi hvattir til að halda sig heima
meðan versta veðrið gengi yfir.
- gb
Mikil snjókoma og kuldar setja mannlífið úr skorðum víða í Evrópu:
Átta hafa orðið úti í Póllandi
Á ÞOTU Í SKOTLANDI Þessi piltur
skemmtir sér vel í snjónum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÉLAGSMÁL Atvinnuleitendur sem
tryggðir eru innan atvinnuleysis-
tryggingakerfisins fá desember-
uppbót. Ríkisstjórnin samþykkti
á fundi sínum í gær tillögu Guð-
bjarts Hannessonar, félags- og
tryggingamálaráðherra, þar að
lútandi.
Fram kemur á vef Vinnumála-
stofnunar að full uppbót sé 44.857
krónur, en greiðsla hvers og eins
reiknist í hlutfalli við rétt hans til
atvinnuleysisbóta árið 2010.
„Uppbótin verður greidd þeim
sem hafa staðfest atvinnuleit á
tímabilinu 20. nóvember til 5.
desember á þessu ári og ræðst
heildarfjárhæðin af fjölda daga
sem viðkomandi hefur verið
skráður án atvinnu,“ segir á vef
stofnunarinnar. - óká
Desemberuppbót í vinnuleit:
Full uppbót er
tæp 45 þúsund
KÖNNUN Ríkisstjórnin nýtur stuðn-
ings 36 prósenta þjóðarinnar sam-
kvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup.
Það er 6 prósentustigum meiri
stuðningur við ríkisstjórnina en
mældist í sambærilegri mælingu í
október. Þetta kom fram í fréttum
Ríkisútvarpsins í gær.
Í lok október mældist ríkis-
stjórnin með 30 prósenta fylgi og
hafði þá ekki notið minni stuðnings
frá kosningum, en mælist nú með
36 prósent.
Samfylkingin bætir við sig, fer
úr 18 prósentum í síðustu mæl-
ingu í tæp 22 prósent. Sjálfstæð-
isflokkurinn tapar fylgi, fer úr 36
prósentum í 34. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur mælst stærsti flokkur
landsins undanfarna sjö mánuði,
samkvæmt Ríkisútvarpsins.
Vinstri græn fá tæplega 18 pró-
sent, Framsóknarflokkurinn 13
prósent og Hreyfingin tæp 8 pró-
sent.
Tæplega 6.800 manns tóku þátt í
könnuninni og var svarhlutfall 67
prósent, 12 prósent aðspurðra tóku
ekki afstöðu og 18 prósent sögðust
skila auðu eða ekki myndu kjósa ef
gengið yrði til kosninga nú.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn stærsti flokkur landsins samkvæmt Gallup:
Fylgi stjórnarinnar 36 prósent
LEIÐTOGAR RÍKISSTJÓRNARINNAR Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms nýtur 36 pró-
sent fylgis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖNNUN Katrín Jakobsdótt-
ir menntamálaráðherra er vin-
sælasti ráðherrann samkvæmt
nýjum þjóðar-
púlsi Gallup.
Um 32 prósent
aðspurðra segj-
ast vera ánægð
með störf henn-
ar en 38 pró-
sent óánægð.
Þetta kom fram
í fréttum RÚV
í gær.
Tæplega 21
prósent aðspurðra er ánægt með
störf Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra en um 63 pró-
sent óánægð. Rúm 30 prósent eru
ánægð með störf Steingríms J. Sig-
fússonar fjármálaráðherra, en 55
prósent óánægð. Aðeins 12 prósent
aðspurðra eru ánægð með störf
Árna Páls Árnasonar viðskipta-
ráðherra og 65 prósent óánægð.
Óánægja með störf ráðherra:
Mesta ánægjan
með Katrínu
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Afbrotum í vest-
urbæ Reykjavíkur hefur fækk-
að á milli ára. Þetta kom fram á
fundi lögreglunnar með lykilfólki
í hverfinu á mánudag. Innbrot-
um á svæðinu hefur fækkað mikið
á milli ára ef bornir eru saman
fyrstu tíu mánuðir ársins við sama
tímabil í fyrra. Þetta á við um inn-
brot í bíla og fyrirtæki en innbrot
á heimili eru næstum því jafn-
mörg á umræddu tímabili. Lög-
reglan segir þetta áhyggjuefni en
með samstilltu átaki sé líka hægt
að fækka innbrotum á heimili.
Afbrotatölur í Reykjavík:
Færri afbrot í
Vesturbænum
VEISTU SVARIÐ?