Fréttablaðið - 02.12.2010, Síða 24
2. desember 2010 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
Prentsmiðjan Svansprent í Kópa-
vogi má nota norræna umhverf-
ismerkið Svaninn, þekktustu
umhverfisviðurkenningu Norður-
landa.
Í tilkynningu fyrirtækisins
kemur fram að umhverfismerkið
Svanurinn hafi verið tekið í notk-
un árið 1989 og frá þeim tíma hafi
um 6.000 vörur og þjónusta hlotið
slíka vottun.
„Eigendur og starfsfólk Svans-
prents hafa um nokkurt skeið
unnið skipulega að því að gera
alla framleiðslu prentsmiðjunn-
ar vistvæna sem leiddi til þess að
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðhera afhenti Svansprenti
Svaninn sem staðfestingu vott-
unarinnar við hátíðlega athöfn í
prentsmiðjunni nýverið,“ segir í
tilkynningunni.
Eigandi og stofnendur Svans-
prents eru hjónin Jón Svan Sig-
urðsson og Þuríður Ólafsdóttir en
prentsmiðjan hóf starfsemi árið
1967. Hjá Svansprenti vinna nú
þrjár kynslóðir fjölskyldunnar, en
alls starfa þar um 30 manns.
„Framvegis getur prentsmiðjan
notað Svansmerkið á prentgripi og
aðrar prentvörur til að undirstrika
að prentsmiðjan fylgi afar ströng-
um vistvænum gæðakröfum.“
Fram kemur í tilkynningu fyrir-
tækisins að meðal krafna Svansins
sé að minnst 95 prósent allra efna
sem notuð eru í framleiðslunni séu
samþykkt af Svaninum, afskurður
sé lágmarkaður og að pappír sé úr
nytjaskógum og framleiddur sam-
kvæmt ströngum kröfum. - óká
VOTTUN AFHENT Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti nýverið Jóni Svan
Sigurðssyni og fjölskyldu hans Svaninn. MYND/KOM
Svansprent fær vottun og má nota umhverfismerki Svansins:
Öll framleiðslan á að vera vistvæn
MILLJÓNIR KRÓNA eru heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni í nóvember. Það jafngildir 77 milljónum króna í
meðalveltu á dag. Meðalveltan á dag nam 132 milljónum í október. Úrvalsvísitalan lækkaði um tvö prósent í mánuðinum. 1.698
Framtakssjóður Íslands hefur lokið
við áreiðanleikakönnun á fyrir-
tækjum í eigu eignarhaldsfélags-
ins Vestia.
Finnbogi segir úrskurðar Sam-
keppniseftirlits til að ljúka viðskipt-
unum beðið. „Ég vona að það verði á
næstunni. Það er slæmt fyrir fyrir-
tækin ef það dregst,“ segir hann.
Innan Vestia eru fjögur fyrirtæki
sem Landsbankinn tók yfir í eftir-
mála efnahagshrunsins: Icelandic
Group, Teymi, Húsasmiðjan og
Plastprent. Fyrir á sjóðurinn þriðj-
ungshlut í Icelandair Group.
Eftir áreiðanleikakönnunina,
sem upphaflega var stefnt á að
ljúka um miðjan nóvember, hefur
verðmiðinn á Vestia lækkað um
fjóra milljarða, úr 19,5 milljörð-
um króna í 15,5. Þá heldur Lands-
bankinn eftir nítján prósenta hlut
í sjávarútvegsfyrirtækinu Ice-
landic Group, stærstu eign Vestia.
Þessu til viðbótar lækkaði verð-
mat á Húsasmiðjunni og Plast-
prenti og hefur það áhrif á virðið.
Þá mun Landsbankinn kaupa fjórð-
ungshlut í Framtakssjóðnum í stað
þrjátíu prósenta. Sex af átta starfs-
mönnum Vestia hafa hætt síðan í
ágúst, þar á meðal framkvæmda-
stjórinn.
Finnbogi segir stefnu sjóðsins
þá að skrá stærstu félögin á hluta-
bréfamarkað. Það eru Icelandair
Group og Icelandic Group auk þess
sem upplýsingatæknifyrirtækið
Skýrr, sem heyrir undir Teymi,
verði þar á meðal. Vinna við skrán-
ingu er ekki hafin, að sögn Finn-
boga. - jab
Munar um Icelandic Group í samningnum:
Framtakssjóður borgar
minna fyrir Vestia
KAUPIN INNSIGLUÐ Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins, og
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, innsigluðu söluna á Vestia seint í ágúst.
Stefnt var að því að ljúka áreiðanleikakönnun um miðjan nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
VERTU MEÐ VIÐSKIPTIN
Í RASSVASANUM
Meiri Vísir.
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi
á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Engin friðhelgi var gefin og ekk-
ert útilokar að Björgólfsfeðgar
og fyrrverandi bankaráð gamla
Landsbankans verði krafnir um
bætur vegna hugsanlegra brota
eða vanrækslu í starfi.
Skilanefnd og slitastjórn Lands-
bankans hefur krafið fyrrverandi
bankastjóra og forstöðumann fyr-
irtækjasviðs gamla Landsbank-
ans um 37 milljarða króna vegna
vanrækslu í starfi. Þá er ekki talið
útilokað að endurskoðendafyrir-
tækið PricewaterHouseCoopers
sé bótaskylt vegna vanrækslu við
endurskoðun uppgjöra bankans
frá 2007 og fyir að bæta eiginfjár-
stöðu hans. Slitastjórn telur ekki
útilokað að eiginfjárhlutfall Lands-
bankans hafi verið undir átta pró-
senta lögbundnu lágmarki í lok árs
2007. Í uppgjöri er það sagt 11,7
prósent.
Herdís Hallmarsdóttir, lögmað-
ur sem sæti á í slitastjórn Lands-
bankans, segir skýrslur hafa verið
teknar af fyrrverandi stjórnend-
um gamla Landsbankans, milli-
stjórnendum og starfsfólki. Við
skýrslutökur var spurt um afskipti
fyrrverandi eigenda bankans og
bankaráði af rekstri hans.
„Ekkert hefur komið fram við
rannsóknina sem gefur tilefni til að
ætla að þeir [innskot blm. Björg ólf-
ur Guðmundsson og Björgólf-
ur Thor Björgólfsson] beri skaða-
bótaskyldu gagnvart bankanum á
grundvelli þess að þeir hafi verið
svokallaðir skuggastjórnendur og
haft afskipti af rekstri hans,“ segir
hún.
Skilanefnd og slitastjórn Lands-
bankans greindi opinberlega frá
því í gær að hún hafi krafið þá
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J.
Kristjánsson, fyrrverandi banka-
stjóra Landsbankans, um bætur
upp á samtals 37 milljarða króna
með áföllnum kostnaði vegna van-
rækslu í tveimur málum. Þá er Elín
Sigfúsdóttir, fyrrverandi forstöðu-
maður fyrirtækjasviðs bankans,
krafin um átján milljarða vegna
hlutdeildar í öðru málanna.
Bótakrafan á hendur þremenn-
ingunum varðar meinta vanrækslu
á innheimtu ábyrgðar Kaupþings
banka í Lúxemborg upp á átján
milljarða króna vegna láns Lands-
bankans til Fjárfestingarfélagsins
Grettis, sem var eigu Björgólfs-
feðga. Saknæmið felst í því að
ganga ekki að tryggingunni þrátt
fyrir slælega skuldastöðu Grettis,
að mati skilanefndar Landsbank-
ans.
Krafan á hendur þeim Sigurjóni
og Halldóri varðar veitingu láns
upp á nítján milljarða króna til
fjárfestingarbankans Straums 2.
október 2008, örfáum dögum áður
en Fjármálaeftirlitið greip inn í
rekstur Landsbankans. Björgólf-
ur Thor Björgólfsson var stjórnar-
formaður Straums og helsti hlut-
hafi hans.
Krafan er óskipt og felur í sér
að geti einn ekki greitt hana fellur
hún á þá sem eftir standa.
Þeir Sigurjón og Halldór sendu
frá sér tilkynningar í gær þar sem
þeir vísa kröfunni á bug.
jonab@frettabladid.is
Krefjast milljarða af
fyrri bankastjórum
Slitastjórn Landsbankans hefur tekið um fjörutíu skýrslur af þrjátíu fyrrver-
andi starfsmönnum gamla bankans. Ekkert réttlætir kröfu á hendur Björgólfs-
feðgum. Endurskoðendur eru taldir hafa breytt uppgjöri bankans frá 2007.
SKILANEFND OG SLITASTJÓRN LANDSBANKANS Ekkert útilokar að sótt verði að bankaráði gamla Landsbankans, að sögn Herdísar
Hallmarsdóttur, sem sæti á í slitastjórn Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA