Sameiningin - 01.08.1898, Page 28
—92—
þeim mönnum viSvíkjandi, sem bera áttu kristindóminn út um
heiminn : „Helga þá í þínum sannleika". Og hugsum um þessi
orð biðjandi í dýpstu alvöru hjartans. Biðjum guð allir nú ’að
helga oss í hans sannleik. Og látum alvöru þeirrar bœnar
koma fram í því, að vér—ekki nokkrir útvaldir, ekki eins og
tveir menn úr hverjum landsfjórðungi, heldr allir—undantekn-
ingarlaust ailir leggjum sjálfa oss fram eins og fúrn, lifandi,
helga, guði þúknanlega, framseljum oss, hver út af fyrir sig og
allir í einni heild, undir hinn frelsanda og helganda vilja drott-
ins vors Jesú Krists.
Missíúnarferðir.
Eftir stud. theol. Ruxór.F Makteinsson.
Laugardaginn 4. Júní lagði eg á stað til Roseau-nýlend-
unnar í Minnesota. A leiðinni stóð eg við í Pembina og hafði
guðsþjónustu þar á sunnudaginn. því miðr var stór-rigning
allan daginn, svo fáir gátu komið, enda varð ekki af guðsþjön-
ustu í neinni annarri kirkju í bœnum. Pembina-menn sýndu
mér mjög hlýtt og kristilegt viðmót. Næsta dag fór eg með
Great Northern-lestinni frá St. Vincent til Stephen, og þaðan
með pósti til Roseau-bœjar, en jraðan fékk eg keyrslu út í ís-
lenzku byggðina. Voru þá liðnir fimrn dagar frá því eg fór á
stað frá Winnipeg. Um byggðina fór eg því sem næst alla og
hcimsótti meira hluta af búendum þar. Var mér allsstaðar ve^
tekið, og gjörðu margir sér far um, að gjöra mér dvölina sem
skemmtilegasta. Kristindómsvinir eru þar margir, og margir
jreir, er sakna mjög prestsþjónustu þeirrar, er þeir nutu í Dakota-
byggðinni áðr en þeir mynduðu þcssa nýlendu sína. Landar
una þar vel hinum ytra hag sínum, en mjög mikil nauðsyn er
þar á prédikan guðs orðs, stofnan sunnudagsskóla og annarri
uppfrœðslu ungmennanna. Guðsþjónusta var haldin þar sunnu-
daginn, sem eg stóð við, í skólahúsi sem næst miðbiki byggðar-
innar. Var þar meiri hluti íslendinga úr byggðinni saman
kominn og sýndist fólk taka ánœgjulegan þátt í guðsþjónust-
unni. Á leið minni tilbaka kom eg við í bœnum Halloclc og
hitti þar Guðmund gullsmið Guðmundsson og konu hans—og