Sameiningin - 01.03.1906, Síða 6
2
það einnig úr sögunni. ,,Fríkirkjan“, sem séra Lárus Halldórs-
son tók að gefa út 1899, varö enn skammlífari. „Frœkorn“,
m'áJgagn hr. Östlunds, Adventista-trúboðans á Islandi, byrjuöu
ári síöar og lifa enn. „Nýtt kirkjublaö“ ]oarf enn sem komiö er
varla aö nefna, því ]iaö byrjaöi ekki fyrr en meö þessu ári.
Á þessum tuttugu árum, sem „Sameiningin“ hefir uppi
veriö, hefir blaðiö aö nafninu ávallt haft sama ritstjóra, þótt
stundum hafi aðrir menn, er hann var bilaör á heilsu eöa á ann-
an hátt forfallaðr, annazt hlutverk ritstjórans. Á sínum eigiu
veikleik í sambandi við þaö sérstaka verk köllunar sinnar hefir
liann þreifað stööugt frá upphafi, einkum fyrir þá sök, hve á-
kaflega marga og milda öröugleika hefir ávallt verið viö aö
stríöa fyrir þannig lagað tímarit. Hve ervitt það muni hafa
verið að halda lífinu í „Sameiningunni“ hér í hinum kirkjulega
írumbýlingsskap getr öllum að nokkru leyti orðið ljóst, er þess
er gætt, hve skammlíf þau urðu trúmálatímaritin tvö í Reykja-
vík, „Kirkjublaðið“ og „Veröi ljós!“, með lútersku kristnina
.alla á íslandi á bak viö sig- Kirkjuleg tímarit öll gátu naumast
annaö en átt örðugt uppdrá.ttar meðal þjóðar vorrar á þeim
tima, sem liðinn er síðan „Sameiningin“ hóf göngu sína, örð-
ugra en öll önnur tímarit. Það var nokkurn veginn auðvitað
fyrir 'fram, ef tekið var eftir losœðinu á svæði trúarinnar hjá
svo raunalega mörgum löndum vorum og stefnu þjóðlífsins í
veraldlega átt. En þvi fremr átti blað þetta við ramman reip
•aö draga sem það var frá upphafi fast ákveðið í því að halda
sitt strik í Jesú nafni, hversu mikið sem kœmi í bága viö rang-
snúinn tíðaranda. En þótt mótstöðuöflin, sem risið liafa upp
gegn blaðinu, hafi vitanlega fyrir þessa sök orðið fleiri og
sterkari en annars myndi hafa orðið, þá má þó telja víst, aö
einmitt fyrir hina trúarlegu stefnufestu sína hafi það; lcomizt
lífs af fram á þennan dag.
Á síðasta ársþingi kirkjufélagsins varð það aö samþykkt,
að um leið og „Sameiningin" byrjaði tuttugasta og fyrsta
ár sitt skyldi blaðið stœkkað að þriðjungi frá því,
sem að undanförnu hefir verið, án þess þó aö verð
þess væri hækkað, og skyldi þó barnablaðið, sem séra