Sameiningin - 01.03.1906, Side 7
3
N. Steingrimr Þorláksson stýrir, fylgja mcö ókeypis eins
og áðr. Póststjórnin leyfir nú ekki lengr, að það fylgiblaö
(,,Börnin“) komi út sérstakt, og voru þá einu urræðin að láta
það renna inn í „Sameininguna“ og verða sérstök deilcl í henni,
aftast i hverju tölublaði hennar. Þannig verðr þá hvert númer
„Sameiningarinnar" hér eftir, fyrst um sinn að minnsta kosti,
heilar tvær arkir, eða réttum helmingi stœrra en áðr var. Og
má það, að vöxtunum til, heita stórkostleg framför, sem vænta
má, þegar hugsað er um hið lága verð, að afli blaðinu margra
nýrra kaupenda.
Þegar „Sameiningin“ nú, þannig stœkkuð, en með ekki
hærra verði en áðr, eftir alla erviðleikana, sem henni liafa mœtt
í liðnu tíðinni, byrjar tuttugasta og fyrsta aldrsár sitt, getr hún
tekið sér í munn orð þau, sem höfð eru eftir Árna Oddssj'ni, er
hann eitt sinn sté af baki á Þingvelli við Öxará eftir æfintýra-
ferð sína utan úr Danmörk, og sagt: „Plér em eg kominn fyrir
guðs náð, en ekki þina, Herlegdáð!“
-------o-------
Um leið og „Sameiningin" bj'rjar 21. ár sitt skal það tekið
fram, að fjárhagr blaðsins þarf endilega nú aö fœrast í lag, en
til þess útheimtist að eins það, að áskrifendr allir greiöi fyrir-
fram borgun sina fyrir þennan árgang eins og til er ætlazt. Og
skora eg hér með sterklega á menn að gjöra það. Að öðrum
kosti lendum vér í vandræðum með útgáfu blaðsins. En sé það
gjört, ber blaðið sig áreiöanlega vel.
Þar sem „Sameiningin" verðr nú helmingi stœrri en áðr,
áti þess þó verö hennar sé neitt hið minnsta hækkað frá þvi, er
ávallt hefir verið að undanförnu, þá ætti öllum að vera ljúft að
verða vel við áskoran þessari og greiða áskriftargjaldið hið
hráðasta.
Útsölumönnum „Sameiningarinnar“ öllum sendi eg við upp-
haf þessa árgangs endrskoöaðan kaupendalista, til þess þeir geti
innheimt frá áskrifendum öllum það, sem þeir skulda fyrir
blaðið, og ætti svo allir að hafa borgað að fullu fram að Marz-
mánuði 1907 fyrir næsta kirkjuþing.
Þeir, sem senda mér borgun úr Bandaríkjunum, gjöri svo
vel að senda póstávísanir eða express-ávísanir, en ekki ávísanir
upp á banka þar, því á þeim eru æfinleara afföll hér í Canada.
JÓN J. VOPNI,
féhirðir og ráðsmaðr „Sam.“