Sameiningin - 01.03.1906, Side 22
i8
anna) ;. sd. 29. Apr.: Mark. 4, 1—-20 (Dœmisagan um sáðmann-
mn). — Af lúterskum ritum, sem útskýra lexíur þessar, er
hentugast The Augsburg Teachcr, sem kemr út í Philadelphia
(1424 Arch St.ý mánaðarlega og kostar 55 ct. um árið.
Þeir dr. Torrey og Alexander, trúvakningarmennirnir al-
kunnu, eru komnir í hóp þeirra manna, sem samkvæmt ákveSn-
um samningum rita viö óg við greinir í blaSiS „Sunday School
Times“. Torrey ritar þar. um önnur eins efni og þessi: „MeS
hverju móti getum vér látið biblíulestr vorn koma oss að mest-
um notum?"—„Hvernig eiga menn að fara með hina torskildu
staði í ritningunni ?“—„Hvernig .aS láta bœnina verða sterkt
lífsafl?"—„Hvernig eiga . krjstnir menn að skemmta sér?“—
„Ilvernig getum vér yitað, hvað guð vill oss til handa?“
Greinir TorreyTs, sem þegar hafa, birzt, eru mjög aögengilegar
og uppbyggilegar.
:Þingvallanýlendu-söfhuSr hefir nýlega ályktaS aS kalla til
sín til prestskapar séra Árna.prófast Jónsson á Skútustöðum
viS Mývatn. Sú ályktan er gjörS í von um, aS Konkordía-
söfnuðr, sem . er þ.ar í sömu byggSinni, verði með, og sömu-
leiðis kirkjufélagssöfnuðirnir í Vatnsdalsbyggö þar í nágrenn-
inu (HólasöfnuSr og ísafoldarsöfnuSr), og aS all-miklu leyti
kvað vissa fengin fyrir því. . Þetta eru sömu söínuöirnir, sem
sendu séra Jóni Ólafi Magnússyni köflunarbréf í fyrra. En það-
eru ekki miklar likur til aS séra Árni sjái sér fœrt að taka köllun
þessari. Hann er nú á 57. aldrsári.
f austrparti Foam Lake byggSarinnar íslenzku hefir fyrir
skömmu — rétt eftir nýár — verið myndaðr lúterskr söfnuSr,
sem nefnist Kristnes-söfnuðr. Eftir þvi, sem hr. Jónas Sam-
sonarson hefir ritaS „Lögbergi“, var í þaö fyrirtœki ráðizt —
með fram að minnsta kosti — út af bending frá séra Einari
Vigfússyni, sem ferðaðist frá Winnipeg þangað út snemma á
jólaföstu, dvaldi þar fram undir nýár, flutti þar prédikan nokkr-
um sinnum og vann önnur fleiri prestsverk. Hinn nýi söfnuSr
hefir þegar byrjað sunnudagsskóla. Búizt er við samskonar
safnaöarmyndan í vestrparti þessarar víölendu fslendinga-
byggSar, og myndi báðir söfnuðirnir þá, sennilega verða sam-
taka í því aö útvega sér bráðnauðsynlega prestsþjónustu.
Séra Björn B. Jónsson ritar oss 1. Marz: „Af systur Jó-
hönnu Hallgrímsson hefi eg það frétt, að fyrir eitthvaö þrem