Sameiningin - 01.03.1906, Blaðsíða 34
30
Þá kallar konungurínn fólkið saman að steininum og segir:
„Vinir mínir! Fyrir þrem vikum síðan velti eg sjálfur steiní
þessum út á veginn. Og iþennan tíma hef eg tekiö eftir því, a8
öilum, sem um veginn hafa farið, hefur sárnað að sjá steininn í
veginum, og þeir hafa vonskast við aðra út af því, að enginn
skyldi taka hann burt. En enginn hefur nent að gera það. Nú
ætla eg að gera það sjálfur.“
Að þessu búnu veltir hann steininum út af veginum. En
sjá! Undir steininum liggur peningapyngja og stendur þetta
skrifað á hana: „Handa þeim, sem veltir burtu steininum.“
Konungurinn opnar pyngjuna og eru í henni 20 gullpeningar
og fagur gullhringur.
En hvað fólki sá.rnaði það nú, að það skyldi ekki hafa tekið
steininn burt! Bóndinn og hermaðurinn, sem líka voru þarna
viðstaddir, og allir hinir, sem farið höfðu fram hjá, vildu nú
gjarnan fá launin. En — þcir höfðu ekki unnið til þeirra. Þeir
höfðu ekki nent að velta steininum úr veginum. Höfðu ekki
riljað leggja það á sig til gagns fyrir almenning.
Kœru börn! Það eru margskonar steinar til. Þeir liggja
í vegi fyrir okkur og í vegi fyrir öðrum. Og það er fjársjóður
fólginn undir hverjum steini. Og því stærri sem hver steinn
er og því meira sem þið þurfið á ykkur að reyna við hann, þvi
stærri verður fjársjóðurinn, sem þið eignist.
Gangið ekki fram hjá steinunum, þótt þeir sýnist stórir.
Verðið ekki vond út af þvi, að þeir sé í veginum. Látið þá ekki
liggja, þó það kosti ykkur áreynslu að eiga við þá eða þó yklcur
finnist, að öðrum sé mest þægðin i þvi, að þeir sé teknir burt.
Segið ekki: „7E, eg nenni ekki að eiga við þá! Aðrir geta gert
það.“ Þið græðið á því að eiga við þá og velta þeim úr vegi.
Munið, að fjársjóður liggur undir þeim. Guð hefur lagt fjár-
sjóð undir hvern stein, sem hann vill þið eigið við og veltið úr
vegi.
Hverjir eru svo steinarnir? Og hver er fjársjóðurinn
Hvert ykkar getur sagt mér það? Eg ætla að byðja ykkur að
sc-gja mér það skriflega. Því barni, sem leysir bezt úr spurn-
ingunni, verða gefin einhver verðlaun. En greinileg utanáskrift
og aldur þess, sem sendir úrlausnina, þarf að fylgja með.
Hverju þeirra þótti vænt umirömmu sína?
fÞýtt.;
Sólin var gengin undir og það var farið að dimma í setu-