Lífið - 01.01.1936, Qupperneq 5
LÍFIÐ
Abyssinía.
(Að sjálfsögðu fýsir marga að lesa um Abyssiníu, þetta
æfintýraland, hvers afdrif verða á næstu mánuðum eða ár-
um til lykta leidd).
EinangraÖa borgin.
Harar er sú borg í Abyssiníu, sem hefir afar
mikla hernaðarlega þýðingu. Falli hún í hendur
óvinanna, er lífæð landsins, járnbrautin frá Addis
Abeba til Djibouti, skorin í sundur. Á því hvort
þetta verður, eða ekki, byggist að miklu leyti, að
því er virðist, árangur styrjaldarinnar.
Harar er að vísu ekki stór, tæplega tvisvar
sinnum fólksfleiri en Rvík. Hún hefir ekki þann
„luxus“ upp á að bjóða, sem Rvík hefir. Hún er
engan veginn „ultra moderne", eins og höfuðstað-
ur íslands. En þó er hún — nú á dögum — alt
önnur borg en hún var, meðan hún var ,,lokuð“
borg. Eftirfarandi frásögn er frá þeim tíma, er
hún var einangruð frá umheiminum og öllum út-
lendingum bannað, að viðlagðri dauðarefsingu, að
stíga fæti sínum inn fyrir ,,múra“ hennar.
Richard Burton var fyrsti Evrópumaður, að því
er talið er, sem heimsótti Harar 1855. Hann lagði
l