Lífið - 01.01.1936, Side 29

Lífið - 01.01.1936, Side 29
LÍFIÐ 25 ur sætt sig við, eru enn þá fáar og vafasamar. Þ6 er ein, sem öðrum fremur virðist njóta hylli hjá öllum þjóðum. Það er sú stefna að draga úr versl- unarfarganinu milli þjóðanna, vinna að því, að hver þjóð reyni að bjargast upp á eigin spýtur og sækja sem minst til annara þjóða. Þessi stefna er ákaflega athyglisverð fyrir okk- ur Islendinga, sem um tugi ára höfum bygt allan okkar þjóðarbúskap á erlendum markaði. Ef þessi erlendi markaður þverrar eða þrýtur, þá er grund- vellinum kipt undan búskap þjóðarinnar og fjár- hagslegt öngþveiti blasir við. Ef svo skyldi fara, ekki á alt að fara í kaldakol, verðum við að finna nýjan grundvöll traustari, skapa okkur nýja afkomumöguleika. Horfurnar á því að til þess uiuni koma, verða skýrari með hverju ári, sem líður. Þær þjóðir, sem áður hafa keypt útflutningsvör- ur okkar í hlutfalli við eftirspurn neytendanna, fara nú að skamta okkur markaðinn. Og við meg- um alveg vera við því búnir, að sá skamtur verði sí og æ minni, eftir því sem árin líða. Á þennan hátt getur meginstoðin undir þjóðarbúskap okkar, erlendi markaðurinn, brostið á fám árum. Þetta eitt er nóg til þess, að steypa þjóðinni í fjárhags- logt úrræðaleysi, þótt ekki sé talin önnur ástæða, sem verkað getur á sama hátt: að við verðum und- lr í samkepni á erlendum markaði. En ef þetta fer svo, að erlendur markaður fyrir íslenskar sjávarafurðir og landbúnaðarafurðir þverrar að miklum mun, eða þrýtur með öllu, hvað

x

Lífið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.