Lífið - 01.01.1936, Qupperneq 31
LÍFIÐ
27
Þessi tafla talar máli, sem ekki verður vefengt
eða misskilið. Tilfærslurnar eru stefnufastar: Þeim
sem atvinnu hafa af landbúnaði fer jafnt og stöð-
ugt fækkandi, tiltölulega. Þeim sem hafa atvinnu
af fiskiveiðum fer jafnt og stöðugt fjölgandi. Tala
þeirra sem lifa af iðnaði fer hraðvaxandi á síðustu
áratugum. Samanburður á ástandinu nú og fyrir
74 árum verður þó ekki nákvæmur eftir þessari
töflu. Árið 1860 voru „ölmusumenn“ taldir sér, sem
atvinnuflokkur (!). En það voru aðallega hrepps-
ómagar (5.5%). Vitanlega hafa þeir að mestum
hluta lifað í brauði landbúnaðarins. Hlutfallstala
landbúnaðarins þá hefir því verið sem næst 86.0%.
Á hinn bóginn er alveg víst, að hlutfallstölurnar
eru orðnar aðrar nú, en 1930, þegar síðustu hag-
skýrslur um þetta eru gerðar. Síðan hefir tala iðn-
aðarmanna hækkað. Er nú varla lægri en 16.0%.
Sennilega er hlutfallstala landbúnaðarins eitthvað
lægri nú, segjum 34.0%.
Fyrir 70 árum voru ísl. svo að segja hrein land-
búnaðarþjóð. Nú lifir aðeins þriðjungur þjóðarinn-
ar af landbúnaði, en talsvert fleiri (um 38%) af
fiskiveiðum og iðnaði.
Niðurstöðutölur töflunnar sýna einnig að þeim
fer altaf fjölgandi, hlutfallslega, sem lifa af öðru
en framleiðslu (verslun, samgöngum, kenslu o. fl.),
3.6% 1860, en 28.3% 1930.
Framleiðslugildi.
Þegar íslendingar tóku að stunda fiskiveiðar á
stórum skipum, í því skyni að selja framleiðsluna