Lífið - 01.01.1936, Síða 52
LÍFIÐ
Sfarfsemi Rússa í Kína.
Stjórnmálamenn í Nanking og Tokio horfa agn-
dofa á starfsemi Rússa í „hálfóháða" fylkinu
Sinkiang (Kínverska Turkestan) í vesturhluta
Kína. Þeir eru efalaust að velta fyrir sér, hvaða
afleiðingar það hefir, að verið er að leggja nýtísku
akbrautir um landið, sem tengja Urumchi, höfuð-
borgina í Sinkiang, og margar aðrar borgir og bæi
við Turkestan-Síberíu-járnbrautina.
Kostnaðinn við þetta vegakerfi annast Rússland
og Sinkiang í sameiningu. Mannvirkjafræðingarnir
allir og ýmsir aðrir starfsmenn eru rússneskir.
Þetta hraðar viðskiftum milli landanna mjög mik-
ið, enda er það í samræmi við viðskiftasamning,
er Rússland og Sinkiang gerðu sín í millum árið
sem leið. Þótt Rússland gengi alveg framhjá Nan-
king — áliti henni slíkt óviðkomandi — er samn-
ingur þessi var gerður, hefir þó sendiherra Rúss-
lands tjáð stjórninni í Nanking, að Rússland hafi
ekki þann pólitíska tilgangí huga, að leggja landið
undir sig. Það mun og sanni næst. En um hitt þarf
ekki að deila, að þar sem viðskifti Sinkiang beinast
meira og meira til Rússlands og sérfræðingar það-
an stjórna högum landsins, ekki að eins hvað