Lífið - 01.01.1936, Qupperneq 53
lífið
49
framfarir í vegagerð snertir, heldur á öllum svið-
um, hlýtur kommúnisminn að ryðja sér mjög til
rúms á þessum slóðum. Enda er það einmitt
þannig.
Fé það, er hið auðuga Rússland leggur að mörk-
um til umbóta í Sinkiang, hefir ekki verið birt í
tölum. En það er óefað geysimikið. Jafnframt
þessu nýtur Rússland alls konar fríðinda, sem aðr-
ar þjóðir eru bolaðar frá, og má svo heita að
Rússland gerist faðir og móðir Sinkiang, er svo
blæðir í augum bæði stjórninni í Nanking og hern-
aðarklíkunni í Tokio. En þær fá ekki að gert.
Rússneskur varningur streymir inn í Sinkiang
og Tibet. Ríkisauðvald Rússlands hefir náð ótak-
mörkuðu valdi yfir auðlindum Sinkiangs og not-
færir sér þetta til hins ýtrasta. Á næstu árum
munu Rússarkollvarpa núverandi skipulagiallsiðn-
aðar og annarar framleiðslu þar og byggja annað
upp í staðinn, þar sem fullkomnasta tækni nútíð-
arinnar verður notuð, og kemur að notum, til á-
vinnings bæði fyrir Sinkiang og Rússland.
Um nokkurra ára skeið, eftir byltinguna, var
kaupmönnum í Sinkiang leyft — sem stéttar-
bræðnxm þéirra í Evrópu var bannað — að versla
í Rússíandi, selja vörur sínar þar og láta svo pen-
ingana ganga til kaupa á rússneskri framleiðslu.
Samkvæmt núverandi verslunarsamningi eru öll
þessi viðskifti þannig, að rússneska ríkið sjálft og
landstjórnin í Sinkiang annast þau í sameiningu
milliliðalaust. Rússland skuldbindur sig til að láta
Sinkiang í té alls konar verksmiðjuframleiðslu,
4