Lífið - 01.01.1936, Side 54
50
LIFIÐ
olíu og bensín í skiftum fyrir hráefni, svo sem ull,
bómull og kvikfénað. Frá Rússlandi er aragrúi
bifreiða fluttur inn í Sinkiang og koma þær í stað
úlfaldalesta og flutningsvagna, sem hestum, eða
uxum var beitt fyrir. Svo ferðalög og flutningar í
Sinkiang á ,,gamla mátann“ eru úr sögunni.
í fyrstu var ráðgert að leggja járnbraut frá
Turkib til Urumchi. En það virðist svo sem horfið
hafi verið frá því ráði, að minsta kosti fyrst um
sinn, og stærra og víðtækara vegakerfi valið í stað
þess. Rússneskir sérfræðingar réðu þessu algerlega.
Kína sér, að Rússland er að leggja undir sig
verslunina í vesturhluta landsins. Stjórnin í Nan-
king hefir, enda þótt vonlaust virðist um árangur,
sýnt viðleitni á að taka í taumana. Hún fékk Sven
Hedin til að athuga skilyrði um vegalagningu, er
beindi viðskiftastraumnum til Nanking. Hann
komst að þeirri niðurstöðu, að unt væri að byggja
tiltölulega ódýr akbrautakerfi, er hraðaði svo ferð-
um og flutningum frá Sinkiang til kínverskra
markaða, að slíkt þyrfti framvegis ekki að taka
meira en tvær vikur í stað tveggja mánaða, eins
og verið hefir.
En svo náði þetta ekki lengra. Nanking var með
bollaleggingarnar, en Rússland hófst handa. Svo
mikinn dugnað sýna leiðtogarnir í Moskva, sér-
fræðingar þeirra og starfsmenn allir, að búist er
við að verkinu verði lokið í haust. Með þessu ná
Rússar alræðisvaldi yfir afdrifum fólks í Sinkiang
í nútíð og framtíð.
Hvað Japana snertir, með tilliti til uppgangH