Lífið - 01.01.1936, Page 57

Lífið - 01.01.1936, Page 57
LÍFIÐ 53 yin, myndi slíkt meira en lítið áhyggjuefni fyrir Tseng. Ma er áhrifamaður, sem talið er að gæti komið öllu í bál og brand í Sinkiang aftur, hvenær sem er, ef hann léki lausum hala. En í höndum Rússa er hann svo vel geymdur að það er ör- y&gi fyrir því, að Tseng og Rússar geta setið að kjötkötlunum í Sinkiang. Rússar eru að rannsaka málmauðæfi Sinkiangs. Svo ætla þeir að hjálpa til að vinna málmana. Með því að Rússar stjórna málmvinslunni, er trygging fyrir því, að hún verði gerð með fullkomnustu tækni nútímans. Rússar leggja fram alt það fé, sem þarf til hins fyrirhugaða námareksturs. Rann- sókn hinna rússnesku málmfræðinga hefir þegar ieitt í Ijós, að í Sinkiang er gnægð ýmsra hinna ^ytsömustu málma, svo sem kola, járns og gulls. Rað kemur sér vel að Rússar eru með hverju árinu að auðgast meira og meira, því málmvinsla þessi kostar mikið fé. Áhrif frá Nanking hafa farið minkandi ár frá ári og eru nú, að því er virðist, alveg úr sögunni. Tseng hershöfðingi býður Nankingsstjórninni ó- takmarkað byrginn. Og verandi undir vernd Rúss- lands, getur hann það. Nýlega þverneitaði hann. stjórninni í Nanking um leyfi til að mega flytja Póst og farþega loftleiðina yfir landamæri Sinki- angs. Stjórnin í Nanking óskaði sem sé að mega annast póst- og farþegaflutning innan landamæra Sinkiangs. Það,að Tseng hershöfðingi hafnaðislíku afdráttarlaust, sannar, eins og fleira, að Sinkiang °g Nanking eru skilin „að borði og sæng“.

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.