Lífið - 01.01.1936, Page 71

Lífið - 01.01.1936, Page 71
LÍFIÐ 67 reyna það, ef farsótt gengur, því að einn faraldur veitir enga vörn við öðrum. 2. Kvefsótt. (Kvef, vorkvef, haustkvef, nefkvef, hæsi, ræma, hósti, brjóstkvef, brjóstþeli, hita- vella, slen, máttleysi, höfuðverkur, drungi, barnakvef og skólakvef). 1 heilbrigðiskýrslum er kvefsótt sameignarnafn allra þessara kvilla, og er þó ekki alt af víst að or- sök þeirra sé hin sama. ■— Allir vita að kvefið er næmt og gengur eins og faraldur yfir alt land í öllum mánuðum ársins, í öldum, sem ná yfir skemri eða lengri tíma. Sóttkveilcjan er óþekt, en eftir því hefir verið tekið, að útlendingar fá ekki kvef fyrstu árin, sem þeir dvelja hér á landi. — Kvefsóttin er landlæg, og hefir verið það frá ó- munatíð. Kveföldurnar rísa að haustinu, ná há- marki í janúar—febrúar, örfast er samgöngur eru mestar að vorinu, fara síðan rénandi, með lág- marki í september. Er þetta svipað og í öðrum löndum. Sjúklingafjöldi var mestur 1930: 10255. Annars er meðalsjúkratala á ári 7000, og á 10 árum deyja 33. — Veikin er svipuð í öllum aldursflokkum upp að 65 ára aldri, en minni úr því. Eflaust mætti verjast kvefsótt með samgöngu- varúð, sem öðrum næmum sóttum, en það hefir víst aldrei verið reynt, og sennilega þyrftu sótt- varnirnar að vera strangar. Um meðgöngutíma og eyðingartíma, sem og ónæmi kvefsóttar, er ekki kunnugt með vissu. 5*

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.