Lífið - 01.01.1936, Side 72

Lífið - 01.01.1936, Side 72
68 LÍFIÐ Haldið er, að hún hafi fyrst borist hingað til lands 1820. 1821 er getið um, að dáið hafi um 300 manns úr henni á Vestur- og Norðurlandi; hefir síðan verið á gangi flest árin fram til 1860, er hún geisaði á Austurlandi og um Þingeyjar- og Eyja- fjarðarsýslur. Jón Finsen, læknir þar, lýsir veik- inni þannig: Sjúklingarnir lágu máttvana með mik- inn hita og stundum óráði, svo að líktist þungri taugaveiki. Skófir komu fyrst á utanvert tannhold- ið, vangan að innan og góminn, breiddist svo upp í nefið, stundum jafnvel niður í vélindi. Húðin varð stundum þur og snörp og flagnaði af. Hár datt af mörgum. Sömu einkenni eða svipuð hafði veikin á þeim tímum erlendis. í sumum sveitum sýktust ná- Jega öll börnin og helmingurinn dó. — Þannig gekk fram undir aldamótin, þó ekki sé unnt að lýsa gangi veikinnar vegna þess að skýrslur vanta, en margt virðist benda til þess, að hún hafi verið landlæg síðan 1820. Eins og getið er um í bókinni, Bakteríuveiðar, reyndu 2 læknar, annar franskur en hinn þýskur, að gjöra'blóðvatnsmeðal með gerlarækt til varnar og lækningar veikinni, og var því spýtt undir húð- ina. — Hér á landi var þetta gjört í fyrsta sinn á Seyðisfirði í júlímánuði 1895 af dr. Hornemann, dönskum lækni, á eftirlitsskipinu Heimdalli. — Síðan tóku læknarnir á Austurlandi upp þessa lækningaaðferð, sem allir kannast nú við og hefir gefist vel, sérstaklega eftir að læknum hefir fjölgað, svo að til þeirra hafi náðst nógu fljótt. —

x

Lífið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.