Lífið - 01.01.1936, Page 79

Lífið - 01.01.1936, Page 79
lífið 75 ilinu, sem var aðfenginn um haustið og fór þaðan um vorið. Kom drengur þessi í heimsókn á heim- ilið löngu seinna og barst þá í tal um veikina, meðkendi hann þá, að hann í forboði húsbónda síns hefði farið til næsta bæjar að vitja um kindur og hefði þá lent inn í tóft til fjármannsins þar og talað við hann um stund. En þessi smaladrengur var sá, er fyrstur lagðist og sóttina hafði flutt. Á 20. öldinni er árlega getið veikinnar í H. S. má því líta svo á, að hún sé orðin landlæg. Sjúkra- talan fer lítið niður fyrir þúsund, þau árin sem hún er lægst, en kemst aftur á móti sum árin upp í 7—8 þúsund, að eg ekki tali um faraldrana 1918, sem talið er að hafi komið frá útlöndum — helst Englandi og jafnvel Ameríku. Einn af þess- um faröldrum var spanska veikin, sem kom til Reykjavíkur 20. október 1918, með Botníu og til Hafnarfjarðar með s.s. Víði frá Englandi. Sjúkra- talan í þessari veiki er óþekt, því skýrslugjörð lækna fór út um þúfur. Héraðslæknirinn í Reykja- vík giskar á að þar hafi sjúkratalan verið ekki undir 10 þúsund, og tiltölulega líkt segja þeir að muni hafa verið í kauptúnunum Akranesi, Eyrar- bakka og Stokkseyri, læknarnir þar, en í sveit- unum var hún mikið vægari. Dánartalan er þar á móti viss. Dánartalan 1916 64, 1917 40, 1918 459, 1919 91, 1920 52, 1921 79, hin árin tæplega 20 að meðaltali. Eins og eðlilegt er eftir að læknarnir hafa haft svo náin kynni af veikinni öll þessi ár, þá hafa þeir

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.