Sameiningin - 01.01.1908, Blaðsíða 25
34i
Kristnes-söfn. fenn aö nýjuj $3, J.O.Jónsson $2, Sólheimasöfn,
("aö nýju) $1.70, Jón BorgfjörS $1, Quill Kake söfn. $50.
Úr bréfi frá íslandi síðan í haust.
„Miklu hefir alþing vort ungaö út af lögum í sumar. Eg
ætla aö eins aS minnast ofr lítiö á kirkjumál vor, sem baö var
að kara í Þetta sinn. Það fækkar prestum aS mun, liækkar
laun þeirra, sem tóra eiga, og setr þá að nokkru leyti á föst laun.
iÞetta á nú víst allt að vera til aS glœSa kirkjulífiS, Því allir eru
samdóma um, aö þaö sé dauSans bágboriS. En ekki get eg
haft trú á því, aö þetta lífgi mikiS hiö sofnaSa kirkjulíf vort.
Frá mínu sjónarmiSi heföi veriS miklu réttara aS láta kirkjuna
eiga sig, aðskilja ríki og kirkju, og sjá svo, hvernig fœri.
MeShaldsmenn þjóSkirkjunnar segja, aS þaS væri sama sem að
innleiSa heiðindóm í landið. Eg er nú ekki hræddr um þaS.
Auövitaö kynni að veröa fyrst í staS íslenzkir nihilista-blettir
inn,an um. En yfirleitt myndi trúarþörf manna hvetja menn til
meiri starfsemi í kirkjulega átt en áSr. AS ætlan minni gæti
trúarástandið varla versnaS. Menn láta auövitaS prestinn
nú skíra og ferma, og jarSsyngja, af gömlum vana aS mér
finnst. En kirkjurnar standa auSar og tómar flesta sunnudaga
ársins, og huslestrar í heimahúsum meir og meir aS leggjast
niSr. Eöa svo er þaö þar sem eg þekki bezt til. Meö þessu
móti fær almenningr þaS álit, aö prestarnir sé hinir óþörfustu
menn, nokkurskonar vond vana-nauSsyn, sem menn verði aS
dragast meö.
„Það er mikiö um þetta ástand talaö hér á landi, og
hvernig eigi að rába bót á Því; því menn eru aö eg held aS finna
meir og meir til þess, aS allt er ekki eins og á að vera í þessum
efnum. En bótina vantar enn, hve lengi sem Þaö verðr.
------Eg hefi dálítiö minnzt á'andatrúna viö þig áSr, og
hefi hallazt aö því, aS hún myndi meinlaus vera. En eg er nú
aS verSa meir og meir sannfœrSr um, aS hún sé mesta rugl,
sem alls ekki borgi sig aS vera aS hugsa um. Og satt aS segja
hefi eg styrkzt í þeirri skoSun viS aS lesa Júliönu eftir Stead,
sem Einar Hjörleifsson þýddi, — Þetta nýja evangelíum, sem
þýSandi leggr aS jöfnu við guSspjöllin. Þegar eg var búin aö
lesa bókina, varS eg alveg hissa á ummælum Einars, aS hann
skyldi geta jafnað slíkum draum og höfuðórum saman viS guS-
spjöllin."