Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1950, Page 12

Sameiningin - 01.08.1950, Page 12
90 Sameiningin vania, og hyggst að taka þar preststarf. Á þeim tæpum tveim árum, sem hann hefir þjónað Blaine prestakalli, hefir starfið aukist og náð festu. Sunnudagaskóli hefir fimmfaldast; kirkjan úti sem inni endurbætt og máluð. Um fimtíu hafa bæzt í söfnuðinn. Hamlað hefir það söfnuðinum, að Hanson mátti ekki íslenzkt mál mæla (svo sterk er hin gamla taug íslendingsins); en hvort það hefir nú ráðið burtför hans, eða mun ráða kosning nýs prests, veit ég ekki. Það er á valdi safnaðarfólks og leiðtoga. Mun mega segja í öllum þrem prestaköllunum — Gimli, Vancouver og Blaine — muni ráða nokkru um gæfusamlega úrlausn prestleysis og framtíðarstarfs hvort safnaðarfóik lætur tungumál notað við guðsþjónustur safnaðanna ráða kristnu samstarfi. Leiðbeinandi huga og bendingar þeirra, sem reynslu hafa á þessu, væri gott að prestaköll þessi vildu athuga af hjarta. Séra G. P. Johnson hefir veitt á árinu nokkra þjónustu við Elliheimilið Stafholt, í Blaine. Einnig mun hann hafa haft nokkrar guðsþjónustur með íslenzku fólki, sem gekk úr Blaine söfnuði fyrir nokkrum árum er hann lét þar af starfi. Séra Guðmundur hefir bakarí og brauðverzlun í Bellingham, sem bindur hann starfi þar. Séra Rúnólfur Marteinsson D.D., heflr verið stöðugt að starfi hjá prestlausum söfnuðum gegnum árið. Er það mikil Guðs blessun að hann hefir þannig getað leyst úr vandræðum svo margra safnaða. Getum við ekki það fullþakkað, sem hann hefir unnið, heldur biðjum Guðs blessun yfir starf hans, líf og heilsu. Virðast manni orð Páls heyrast í virkileika: „Alt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.“ Við þökkum séra Rúnólfi. Eg vil einnig minna hér aftur á séra H. Sigmar D.D. Hann getur unnið mikið starf, og óskar eftir starfi hjá söfnuðum vorum; ætti kirkjufélagið að minnast þess nú í prestleysi voru. Þá hefir Stúd. Theol. Stefán Guttormsson síðan 4. júní þjónað í hinum nýja söfnuði í Cavalier, N. Dak. Hann heíir lokið eins árs námi við Northwestern Seminary, í Minne- apolis. Starfi hans og persónu hefir verið tekið með ágætum þar. Vinnur hann einnig á vegum Northwest Synod, og þjónar Bathgate Lutheran Church. Hann mun hverfa aftur til skóla síns með haustinu, og þarf þá Cavalier prestakall

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.