Sameiningin - 01.08.1950, Blaðsíða 25
Sameiningin
103
prestakalli á síðastliðnu hausti, fékk nefndin séra Sigurð
Ólafsson, í Selkirk, til að inna af hendi bráðabirgða þjónustu
í þarfir heimilisins; hefir hann, með leyíi safnaðarnefndar
Selkirk safnaðar, frá byrjun október mánaðar, flutt þar
messur vikulega, og átt samtal við vistfólkið, venjulegast
á fimtudögum, og flutt þar 36 guðsþjónustur, haft 4 útfarir.
Sunnudaginn, 4. júní, hafði hann þar fjölmenna altaris-
göngu.
Þar sem að aðal byg'ging heimilisins er nú orðin æði
gömul, fer nauðsynin á viðgerð vaxandi ár frá ári. Á þessu
ári hefir verið gert kostnaðarsamt og mikið verk við máln-
ingu innanhúss. í ráði er að gera við þak eldri byggingar-
innar á þessu sumri; er efni nú til þess fengið, og maður
ráðinn til að vinna verkið.
Nýr „power mower“ hefir verið keyptur til þess að
létta undir starf umsjónarmanns við slátt á grasfletinum
umhverfis heimilið. Sú er hugsjón nefndarinnar að gera
alt er í hennar valdi stendur til að fegra staðinn og um-
hverfið — eru þar blómabeðin og fögur tré — og gera það
inndælan stað, eftir því sem að auðið er.
Á síðastliðnu hausti gaf Mr. Halldór Sigurdsson, í
Winnipeg, heimilinu hátalara (amplifier); var það bæði góð
og hagkvæm gjöf, er gerir rúmliggjandi fólki og þeim
sem örðugt eiga með göngu upp og ofan stiga unnt að njóta
alls þess er fer fram í samkomusal heimilisins. Er nefndin,
og alt fólk á Betel, gefandanum innilega þakklátt fyrir
gjöfina. Var gjöfin formlega viðtekin og helguð 8. júní,
að gefanda og konu hans viðstöddum, ásamt meirihluta
Betel nefndar, vistfólki og starfsfólki og mörgu fólki frá
Selkirk; en þann dag hafði hið eldra kvenfélag Selkirk;
safnaðar heimsótt Betel.
„Electric water heater“ hefir verið keyptur á árinu,
og er nú í notkun.
Óvenjulega mikil veikindi hafa verið á heimilinu í
síðustu tíð. Sem stendur, eru fimm í sjúkradeildinni, fjórir
í smærri sjúkradeild, aðrir sjúklingar í sérherbergjum, alls
tíu talsins. Alt þetta fólk þarf mikla og nákvæma aðhjúkr-
un. Þess utan eru margir á heimilinu er þurfa stöðuga
aðhjúkrun og umönnun, þótt ekki geti rúmliggjandi talist.
Fer þeim stöðugt fjölgandi er þurfa æ meiri hjúkrunar við.
Tvær ástæður liggja hér til: fyrst, hið óraskanlega lög-
mál að „ellin leggur alla að velli“. Fólk, er notið hefir