Sameiningin - 01.08.1950, Blaðsíða 21
Sameiningin
99
kennaramót í Sunrise Camp ættu að hjálpa þessum þroska;
cg ættum vér að leggja þeim eitthvert lið. Nefnd mun að
sjálfsögðu fjalla um málið.
Ungmennastarf
Ungmennafélög eru fá í kirkjufélaginu. Sem heild hafa
þau ekki getað nú síðari árin gert nein átök, svo sem fyrri
er þau gáfu út blað og höfðu árleg þing. Æskunni megum
vér ekki gleyma, þá gleymir hún okkur.
Bandalag lúterskra kvenna hefir með sumarbúðum sín-
um gripið hér inn í og verið oss lyftistöng á sviði æskunnar.
Þrettán ár munu nú vera síðan Bandalagið hóf sína „summer
camps“. Fara þeir nú að skifta þúsundum unglingarnir sem
hafa þar notið kristinnar leiðbeiningar. Prestarnir hafa hér
hjálpað allnokkuð, þótt starfið komi þegar þeim var mest
þörf á hvíld frá starfi. En þyngstu byrðina hafa konurnar
borið af starfi þessu, og ber oss sem kirkjufélagi að þakka
og meta, en líka að örfa, hjálpa og hvetja. í sumar hefur
skólinn sitt starf 3. júlí, og stendur fram í ágúst.
Stewardship
Síðastliðin kirkjuþing hafa kosið séra Eric Sigmar, í
Glenboro, „Stewardship Secretary“. Hans starf er að vera
ekkar vökumaður, minnandi söfnuði á málefni kirkjunnar.
Hann hefir fjölritað og sent út ársfjórðungs bréf til safnaða
og forseta. Einnig hefir hann verið reiðubúinn að heimsækja
söfnuði sem þess æsktu, og þannig persónulega hjálpa og
leiðbeina. Kirkjufélagið hlýtur gott af slíku starfi, og mun
að sjálfsögðu efla það en ekki af draga. Skipulagning á því
myndi auka áhrif þess.
❖ * * *
There is much that needs to be done. Sixty-five years’
history reveals clearly that our fault has not been that we
dared too much, but rather we dared too little. Our Christian
effort has never impoverished us, but rather have we
impoverished the Christian effort. We never gave until it
hurt, but rather it hurt us to give.
E. H. FÁFNIS, President of Synod